Í auga stormsins

Storm­ur­inn er svo­lítið lengi í aðsigi en eftir hlé nær hann fullum krafti.

Í auga stormsins
Leikhús

Stormur

Höfundur Unnur Ösp Stefánsdóttir og Una Torfadóttir
Leikstjórn Unnur Ösp Stefánsdóttir
Leikarar Una Torfadóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Jakob van Oosterhout, Salka Gústafsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Sigurbjartur Sturla Atlason, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir, Marinó Máni Mabazza, Kjartan Darri Kristjánsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Nína Dögg Filippusdóttir (myndband) og Þröstur Leó Gunnarsson (rödd)

Lög og söngtextar: Una Torfadóttir Tónlist: Una Torfadóttir og Hafsteinn Þráinsson Dans og sviðshreyfingar: Lee Proud Tónlistarstjórn: Hafsteinn Þráinsson Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing og myndband: Ásta Jónína Arnardóttir Hljóðblöndun: Þóroddur Ingvarsson Hljóðmynd: Kristján Sigmundur Einarsson og Hafsteinn Þráinsson Dramatúrg: Matthías Tryggvi Haraldsson Hljómsveit: Hafsteinn Þráinsson, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, Tómas Jónsson og Vignir Rafn Hilmarsson

Þjóðleikhúsið
Gefðu umsögn

Biðin eftir frum­sömdum íslenskum söng­leik er loks á enda, eða svona nokkurn veg­inn. Söng­leikja­fram­boð síð­ustu miss­era hefur ein­kennst af glymskratta­söng­leikjum, íslenskum og erlendum. Stormur sver sig í ætt við þetta list­form en nokkur frum­samin lög er þó að finna. Þjóð­leik­húsið stígur fast til jarðar og fær til sín Unu Torfa­dóttur, unga tón­list­ar­konu sem kom eins og storm­sveipur inn í íslenskt tón­list­ar­líf fyrir nokkrum árum, til að semja söng­leik með Unni Ösp Stef­áns­dóttur, sem einnig leik­stýrir. 

Stormur fjallar um vina­hóp sem stendur á tíma­mótum í líf­inu, nýút­skrif­uður úr fram­halds­skóla og stendur á þrös­k­uldi full­orð­ins­ár­anna. En til­vistin er ekki dans á rósum og fram­tíðin er snúið fyr­ir­bæri, spenn­andi og ógn­væn­leg í senn. Leik­hóp­ur­inn er að mestu sam­an­settur af ungu fólki sem stendur í sömu sporum og per­sónur söng­leiks­ins, að feta sín fyrstu skref í heimi full­orð­inna. 

Sjarmerandi og sannfærandi

Sögu­þráð­ur­inn er kannski ekki sá frum­leg­asti sem snýr að und­ir­bún­ingi fyrir útgáfu­tón­leika aðal­per­són­unnar …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár