Kristrún segist fyrst hafa heyrt sannleikann í dag

Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, heyrði fyrst í dag sann­leik­ann um sam­band Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, við barn­ungan dreng í dag. Ást­hildur hefur sagt af sér ráð­herra­dómi vegna máls­ins.

Kristrún segist fyrst hafa heyrt sannleikann í dag
Kristrún Frosta­dóttir seg­ist fyrst í dag hafa kom­ist að sann­leik­anum í máli Ást­hildar Lóu. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist hafa fyrst heyrt af sann­leiks­gildi máls Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur í dag, viku eftir að erindi barst um fund með for­sæt­is­ráð­herra og barna- og mennta­mála­ráð­herra. Þetta kom fram á fundi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu klukkan níu í kvöld.

Kristrún sagði þá að Ást­hildur Lóa hafi verið boðuð á fund með for­sæt­is­ráð­herra í dag þar sem barna- og mennta­mála­ráð­herra gerði hreint fyrir sínum dyrum, sem var að hún hefði átt í sam­bandi við barn­ungan dreng fyrir um 35 árum síðan. Þá var dreng­ur­inn fimmtán ára og hún 22 ára. Ást­hildur varð ólétt í kjöl­farið og eign­að­ist barn með drengnum.

Svo virð­ist sem málið hafi farið leynt, en erindi barst óvænt inn til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir viku síðan þar sem óskað var eftir fundi með for­sæt­is­ráð­herra vegna mál­efna barna- og mennta­mála­ráð­herra. Var sá sem sendi beiðn­ina spurður hvort Ást­hildur Lóa mætti vera við­stödd þann fund, og féllst við­kom­andi á það. Í kjöl­farið …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Agnarsson skrifaði
    Ég verð að segja að ég skil ekki á hvað vegferð þið eruð og bið ykkur í guðanna bænum að losa mig undan því að greiða ykkur hellings pening fyrir að vera áskrifandi af blaðinu, ég skammast mín fyrir að hafa verið að styrkja ykkur, þið eruð verri en Mogginn og mig dettur helst í hug að þið hafið selt samvisku ykkar skammist ykkar og ég segi hér með blaðinu upp, og þið skuluð ekki Voga ykkur að senda mér þennan áróðurs pésa ykkar aftur, ég á nóg af skeinipappir fyrir
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Ásthildar

Ásthildur Lóa lýsir barnungum barnsföður sínum sem eltihrelli
FréttirAfsögn Ásthildar

Ást­hildur Lóa lýsir barn­ungum barns­föður sínum sem elti­hrelli

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, sem í gær sagði af sér sem barna­mála­ráð­herra, segir að pilt­ur­inn sem hún átti í sam­bandi við þegar hann var fimmtán og sextán ára og hún rúm­lega tví­tug, hafi þrýst á og elti hana með þeim hætti að í dag væri það lík­lega kallað elti­hrell­ing. Sjálf hringdi hún ítrekað í kon­una sem reyndi að vekja athygli for­sæt­is­ráð­herra á mál­inu og mætti óboðin heim til hennar.
Ásthildur Lóa svarar fyrir samband við unglingspilt: „Hann sótti mjög í mig“
FréttirAfsögn Ásthildar

Ást­hildur Lóa svarar fyrir sam­band við ung­lings­pilt: „Hann sótti mjög í mig“

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir til­kynnti um afsögn sína sem barna­mála­ráð­herra í kvöld, eftir að RÚV greindi frá því að hún eign­að­ist barn með 16 ára dreng þegar hún var sjálf 23 ára. Í við­tali við Vísi segir hún það ósann­gjarnt, talar um dreng­inn sem „mann“ og lýsir því sem svo að hann hafi verið svo aðgangs­harður að hún hafi ekki ráðið við aðstæður.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár