Fréttamál

Afsögn Ásthildar

Fréttir

Ásthildur Lóa lýsir barnungum barns­föður sínum sem elti­hrelli

Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, sem í gær sagði af sér sem barnamála­ráðherra, segir að pilturinn sem hún átti í sambandi við þegar hann var fimmtán og sextán ára og hún rúmlega tvítug, hafi þrýst á og elti hana með þeim hætti að í dag væri það líklega kallað elti­hrelling. Sjálf hringdi hún ítrekað í konuna sem reyndi að vekja athygli forsætis­ráðherra á málinu og mætti óboðin heim til hennar.
Fréttir

Ásthildur Lóa svarar fyrir samband við unglings­pilt: „Hann sótti mjög í mig“

Ásthildur Lóa Þórs­dóttir tilkynnti um afsögn sína sem barnamála­ráðherra í kvöld, eftir að RÚV greindi frá því að hún eignaðist barn með 16 ára dreng þegar hún var sjálf 23 ára. Í viðtali við Vísi segir hún það ósann­gjarnt, talar um drenginn sem „mann“ og lýsir því sem svo að hann hafi verið svo aðgangs­harður að hún hafi ekki ráðið við aðstæður.

Mest lesið undanfarið ár