Ásthildur Lóa lýsir barnungum barnsföður sínum sem eltihrelli

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, sem í gær sagði af sér sem barna­mála­ráð­herra, segir að pilt­ur­inn sem hún átti í sam­bandi við þegar hann var fimmtán og sextán ára og hún rúm­lega tví­tug, hafi þrýst á og elti hana með þeim hætti að í dag væri það lík­lega kallað elti­hrell­ing. Sjálf hringdi hún ítrekað í kon­una sem reyndi að vekja athygli for­sæt­is­ráð­herra á mál­inu og mætti óboðin heim til hennar.

Ásthildur Lóa lýsir barnungum barnsföður sínum sem eltihrelli

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, sem sagt hefur af sér sem mennta- og barna­mála­ráð­herra, útskýrir í langri yfir­lýs­ingu bak­grunn og aðdrag­anda þess að sam­band hennar við barns­föður eldri sonar síns hafi verið gert opin­bert.

Hún lýsir því að hún hafi verið 23 ára þegar sam­band þeirra hófst og barns­fað­ir­inn tæp­lega 16 ára. Sam­bandið hafi ekki byrjað að hennar frum­kvæði, heldur hafi hann þrýst á og elt hana, sem í dag væri lík­lega kallað elti­hrell­ing. Þau áttu saman barn árið 1990, en sam­bandið rofn­aði fljótt og sam­skipti barns­ins við föður sinn voru brota­kennd og að mestu óvirk af hans hálfu, segir í yfir­lýs­ing­unni.

Fór heim til þess sem sendi erindi um málið

Sjálf við­ur­kennir hún að hafa hringt nokkrum sinnum í konu sem reyndi að vekja athygli Kristrúnar Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á mál­inu, og að hún hafi farið á heim­ili hennar í vik­unni eftir að hafa átt ítrekuð sím­töl við hana. Það var ekki fyrr en Ásthildi Lóu varð ljóst að sagt yrði frá mál­inu í fjöl­miðlum, sem hún stað­festi að frá­sögn af sam­bandi við tán­ings­pilt væri rétt við Kristrúnu. 

RÚV greindi frá því í gær að Ást­hildur Lóa hafi átt í sam­bandi við pilt­inn þegar hann var enn fimmtán ára gam­all. Þau hafi farið leynt með sam­bandið, en þau kynnt­ust í ung­linga­starfi í kristi­legu sam­tök­unum Trú og líf. Þau eign­uð­ust svo barn árið 1990, þegar pilt­ur­inn var orð­inn sextán ára og Ást­hildur Lóa að verða 23 ára. 

Fram kom í umfjöllun RÚV að Ást­hildur hafi staðið í vegi fyrir því að barns­föður hennar hafi átt sam­skipti við son sinn. Ást­hildur hafnar þessu og segir hann hafa sýnt því áhuga, nema í nokkur til­greind skipti, að eiga sam­skipti við barnið. 

Sátu með erindið í ráðuneytinu

Hún segir til­efni yfir­lýs­ing­ar­innar vera það að kona – fyrr­ver­andi tengda­móðir barns­föð­ur­ins – hafi sent erindi til for­sæt­is­ráð­herra um meinta tálmun. Þessi kona hafði síðan sam­band við Ásthildi og hót­aði að leita ann­arra leiða, sem síðan leiddi til fjöl­miðlaum­fjöll­unar.

Fram kom í frétt RÚV og við­tali við Ásthildi Lóu í gær­kvöldi að hún hafi fengið upp­lýs­ingar um að nafn­greind kona hefði haft sam­band við for­sæt­is­ráðu­neytið og óskað eftir fundi með Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Þetta var 9. mars síð­ast­lið­inn.

Tveimur dögum síðar, þann 11. mars, hafði aðstoð­ar­maður Kristrúnar sam­band við aðstoð­ar­mann Ást­hildar Lóu, sem í kjöl­farið upp­lýsti hana um nafn kon­unnar og að hún hafi óskað eftir fundi um ráð­herr­ann. Starfs­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins óskaði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um erindi þess sem hafði sam­band.

„Þá bár­ust mér upp­lýs­ing­ar um er­indið og í kjöl­farið þá er tek­in sú ákvörðun um að bjóða ekki upp á einka­fund með for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði Kristrún Frosta­dótt­ir á blaða­manna­fundi í Stjórn­ar­ráð­inu í gær­kvöldi. Svo virð­ist sem ekk­ert hafi gerst í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í kjöl­far þess að efni fund­ar­ins sem óskað hafði verið eftir var ljóst. 

Leitaði konuna uppi á Facebook

Í yfir­lýs­ingu Ást­hildar seg­ist hún ekki hafa áttað sig á því hvaða kona þetta væri en hún hafi leitað hana uppi á Facebook. Segist hún vona að engin lasti sig fyrir að vera for­vitin um hver þessi kona var og um hvað málið snérist.  

„Eftir að hafa leitað fyrir mér sé ég að hún og barns­faðir eldra sonar míns voru vinir á Facebook. Mig fór því að renna í grun um hvaða mál hún vildi tala án þess að ég vissi nokkuð um hver tengsl þess­arar konu og barns­föð­ur­ins væru,“ segir Ást­hildur í yfir­lýs­ing­unni.

Það hafi svo verið 16. mars sem hún hringdi fyrst í kon­una – en ekki það síð­asta. Ást­hildur seg­ist hafa átt nokkur sam­töl við kon­una en fram hefur komið að hún hafi bankað uppá á heim­ili hennar í vik­unni. 

Segir þetta einkamál sitt

Ást­hildur segir að málið sé einka­mál frá því fyrir 35 árum sem teng­ist ekki störfum hennar sem ráð­herra. Hún hafi sagt af sér til að koma í veg fyrir að þetta mál skyggi á störf rík­is­stjórn­ar­innar og ráðu­neyt­is­ins.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem upp­lýs­inga­full­trúi þing­flokks Flokks fólks­ins sendi út fyrir hennar hönd, seg­ist hún ekki ætla að veita frek­ari við­töl og biður um að friður fáist um störf rík­is­stjórn­ar­innar og hennar nán­ustu sam­starfs­fólks.

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Mjög góð grein og gott að sannleikurinn kom fram.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Viðbjóðslegt einelti !
    1
  • ÓY
    Óttar Yngvason skrifaði
    Hetja dagsins. Það er rétta heitið á Ásthildi Lóu eftir upprifjanir á áratugagömlu sambandi hennar og barnsföðurins. Gott að hafa í huga, hver ól upp barnið og kom því á legg, lengst af sem
    einstæð móðir. Þetta er einkamál Ásthildar og hennar fjölskyldu og ekki efni í árásir þeirra pólitísku tapara, sem rétt skriðu inn á þing í hennar kjördæmi eftir hennar stórsigur.
    Ég þekki Ásthildi Lóu ekki og hef aldrei hitt hana, en mér ofbýður óhróður í hennar garð með því að blása upp eldgamalt einka- og fjölskyldumál, sem endaði raunar nokkuð vel.
    Það var rétt ákvörðun í stöðunni að hætta sem ráðherra og treysta ekki fjölmiðlum og pólitískum hrægömmum fyrir hóflegri og málefnalegri umræðu. Eins og fram hefur komið, þá er reynt til hins ýtrasta að koma hér höggi á ríkisstjórnina og hennar flokk.
    Ásthildur á skilyrðislaust að halda sæti sínu á Alþingi. Þar er þörf á konu eins og hún hefur
    sýnt sig í verki.
    7
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Ég er ekki kjósandi Flokks fólksins en finnst það einkennilega við þetta mál vera að fyrrverandi tengdamóðir mannsins hafi frumkvæði af þeim afskiptum sem hér um ræðir til að bendla þingkonuna við tálmun. (Tálmun virðist svo ekki hafa átt sér stað ef marka má frásögn Ásthildar Lóu sem hér er birt).
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Ásthildar

FréttirAfsögn Ásthildar

Ást­hildur Lóa svarar fyrir sam­band við ung­lings­pilt: „Hann sótti mjög í mig“

Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir til­kynnti um afsögn sína sem barna­mála­ráð­herra í kvöld, eftir að RÚV greindi frá því að hún eign­að­ist barn með 16 ára dreng þegar hún var sjálf 23 ára. Í við­tali við Vísi segir hún það ósann­gjarnt, talar um dreng­inn sem „mann“ og lýsir því sem svo að hann hafi verið svo aðgangs­harður að hún hafi ekki ráðið við aðstæður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár