Heimildin tilnefnd til þrennra blaðamannaverðlauna

Tilkynnt hefur verið um til­nefn­ingar til Blaða­manna­verð­laun­anna fyrir árið 2024. Fjórir blaða­menn Heim­ild­ar­innar hlutu til­nefn­ingu.

Heimildin tilnefnd til þrennra blaðamannaverðlauna
Fjórir blaða­menn Heim­ild­ar­innar voru til­nefndir.

Tilkynnt hefur verið um þau sem til­nefnd eru til Blaða­manna­verð­launa árs­ins 2024. Verð­launin eru veitt í fjórum flokkum –  umfjöllun árs­ins, við­tal árs­ins, rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins og blaða­manna­verð­laun árs­ins. Heim­ildin fékk þrjár til­nefn­ingar en fjórir blaða­menn eru til­nefndir.

Verð­launin verða afhent í Grósku 12. mars næst­kom­andi. RÚV hlaut flestar til­nefn­ingar.

Erla Hlyns­dóttir fékk til­nefn­ingu fyrir við­tal sitt við Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi biskup Íslands og fyrsta kven­biskup lands­ins. „Blaða­maður nær trausti við­mæl­and­ans sem opnar sig í fyrsta sinn um þá skömm og nið­ur­læg­ingu sem hún upp­lifði eftir að óvissa kom upp um lög­mæti emb­ætt­is­gjörða hennar. Blaða­manni tekst þannig að sýna deilur innan Þjóð­kirkj­unnar í nýju ljósi í gegnum sögu bisk­ups,“ segir í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar.

Sunna Ósk Loga­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son eru til­nefnd fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins fyrir frétta­skýr­ingar sínar um fyr­ir­tækið Running Tide. „Áhrifa­mikil umfjöllun sem afhjúpaði skýja­borgir fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide sem seldi van­hugs­aðar lausnir á lofts­lags­vand­anum,“ stendur í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar. 

Þá er Auður Jóns­dóttir er til­nefnd til blaða­manna­verð­launa árs­ins fyrir fjöl­breytt við­töl og umfjall­anir um menn­ingu og tján­ing­ar­frelsi. Í umsögn­inni eru sér­stak­lega nefnd við­töl hennar við Kristin Hrafns­son um mál Julians Assange og rit­höf­und­inn Salman Rushdie.

Hér að neðan má sjá til­nefn­ing­arnar í heild sinni:

Umfjöllun árs­ins 2024

  • Berg­hildur Erla Bern­harðs­dóttir, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, fyrir sjón­varps­þátta­röð­ina Vist­heim­ilin. 
  • Guðrún Hulda Páls­dóttir, Bænda­blað­inu, fyrir umfjöllun um ein­okun á íslenskum mark­aði með koltví­sýr­ing sem er nauð­syn­legur í ylrækt. 
  • Pétur Magn­ús­son, RÚV. Fyrir útvarps­þátta­röð­ina Skaða. 

Viðtal árs­ins 2024

  • Erla Hlyns­dóttir, Heim­ild­inni, fyrir við­tal við Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi biskup Íslands. 
  • Eva Björk Bene­dikts­dóttir, RÚV, fyrir við­tal við Hafdísi Báru Ósk­ars­dóttur sem varð fyrir lífs­hættu­legri lík­ams­árás af hendi barns­föður síns og fyrr­ver­andi sam­býl­is­manns.
  • Kolbeinn Tumi Daðason, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, fyrir við­tal við Davíð Við­ars­son, þar sem sögu hins upp­runa­lega Davíðs Við­ars­sonar eru gerð skil.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins 2024

  • Jóhann Bjarni Kol­beins­son og Árni Þór Theo­dórs­son, RÚV, fyrir umfjöllun um unga, fatl­aða ein­stak­linga sem vistaðir eru á hjúkr­un­ar­heim­ilum fyrir aldr­aða því önnur úrræði skortir í heil­brigð­is­kerf­inu.
  • Sunna Ósk Loga­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, Heim­ild­inni, fyrir frétta­skýr­ingar um Running Tide. 
  • Urður Örlygs­dóttir og Arnar Þórisson, RÚV, fyrir fyrir umfjöllun um man­sal á mat­sölu­stöðum Quang Le.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2024

  • Auður Jóns­dóttir, Heim­ild­inni, fyrir fjöl­breytt við­töl og umfjall­anir. 
  • Freyr Gígja Gunn­ars­son, RÚV, fyrir frétta­skýr­ingar í Spegl­inum. 
  • Hólm­fríður María Ragn­hild­ar­dóttir, Morg­un­blaðið og mbl.is, fyrir umfjöllun um skóla­kerfi í vanda. 

Fyr­ir­vari: Hér er fjallað um mál er varða Heim­ild­ina með beinum hætti.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár