Hatrið og ástin börðust um líkama Salmans

„Já, eitt aflið er hat­rið og ofbeldið. Hitt aflið er ástin. Og þessi tvö öfl eru að berj­ast um, bók­staf­lega berj­ast, um lík­ama minn. Þar með skildi ég hvað ég væri að gera,“ segir Salman Rushdie í við­tali sem varð að sögu – þá daga sem hann dvaldi á Íslandi.

Hatrið og ástin börðust um líkama Salmans

„Það var svo fal­legur morgun, dag­inn sem árásin var,“ sagði Salman þar sem við sátum föst í bíl á Suð­aust­ur­landi, ásamt fjórum öðrum ferða­löngum og tveimur líf­vörðum; innan um hund­rað rollur sem tepptu þjóð­veg­inn á leið í réttir. Þá spurði ég hann út í kafla­brot um aðdrag­anda hnífa­árás­ar­innar í bók­inni Hnífur, þegar hann var stung­inn í augað og háls­inn og víðar um lík­amann. „Sólin skein,“ sagði hann var­færn­is­lega bros­andi.

„Já,“ sagði ég hik­andi. „Maður hefur vænt­ingar á björtum morgnum.“ Um leið varð mér hugsað til upp­hafs­ins í skáldævi­sögu hans Joseph Anton þar sem hann skrifar um sig í þriðju per­sónu:

„Eftir á séð, þegar ver­öldin sprakk allt í kringum hann og ógn­andi svart­þrestir söfn­uð­ust saman á klif­ur­grind á skóla­lóð­inni, ásak­aði hann sjálfan sig fyrir að gleyma nafni frétta­kon­unnar á BBC sem hafði sagt honum að líf hans, eins …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár