Meirihlutinn vill styrkina til baka – nema stuðningsfólk Flokks fólksins

Rúmlega helm­ingur kjós­enda vill að þeir flokkar sem hafa hlotið greiðslur úr rík­is­sjóði án þess að vera skráðir sem stjórn­mála­flokkar end­ur­greiði féð. Aftur á móti er stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins – sem á mest undir – lík­leg­ast til að vilja að flokk­arnir haldi fjár­mun­unum.

Meirihlutinn vill styrkina til baka – nema stuðningsfólk Flokks fólksins
Gjald­þrot Inga Sæland, for­maður og stofn­andi Flokks fólks­ins, hefur sagt gjald­þrot blasa við flokknum, verði hann kraf­inn um end­ur­greiðslu 240 millj­óna króna styrkja. Mynd: Golli

Fimmtíu og eitt pró­sent kjós­enda vill að þeir stjórn­mála­flokkar sem fengu rík­is­styrki án þess að upp­fylla öll skil­yrði þar um end­ur­greiði fengna styrki. Þetta eru nið­ur­stöður könn­unar Maskínu. Stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins sker sig úr hvað varðar afstöðu en tæp­lega 46 pró­sent þeirra telja að flokkar í þess­ari stöðu ættu ekki að end­ur­greiða fé.

Flokk­ur­inn hefur verið í eld­lín­unni eftir að Morg­un­blaðið upp­lýsti að Flokkur fólks­ins hefði þegið 240 millj­ónir í styrki frá rík­inu án þess að upp­fylla skil­yrði fyrir styrkjum. Er það vegna þess að flokk­ur­inn er skráður sem félaga­sam­tök en ekki stjórn­mála­flokkur hjá Skatt­inum. 

Vísir greindi svo frá því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði líka þegið styrki án þess að upp­fylla skil­yrði. Það var árið 2022 þegar flokk­ur­inn fékk 167 millj­ónir frá rík­is­sjóði, rétt áður en skrán­ingu flokks­ins hjá Skatt­inum var breytt. 

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins er þó einna mest afger­andi í afstöðu sinni gagn­vart því að flokkar ættu að end­ur­greiða styrki. 73,3 pró­sent stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks er á þeim buxum, á meðan 10,3 pró­sent þeirra telja flokka ekki eiga að end­ur­greiða. 

Könnunin fór fram dag­ana 28. til 31. jan­úar og voru svar­endur 975 tals­ins.

Afstaða stuðn­ings­fólksSvona er afstaða kjós­enda, flokkað eftir því hvaða flokk það styður.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Sökudólgurinn í málinu er fjármálaráðuneytið.

    Það hefði átt að benda flokkunum á að þeir þyrftu að skrá sig sem stjórnmálaflokk til að fá styrkina greidda. Þá hefði ekki staðið á að þeir gerðu það.

    Að greiða út þessa styrki og krefjast þess löngu seinna að flokkarnir endurgreiddu þá er ekki sanngjarnt og hefði alvarlegar afleiðingar.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Enn ein falleinkuninn í einkunnabók opinberrar stjórnsýslu.
    1
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Nú er ég verulega hissa á þér Aðalsteinn Kjartansson!
    -1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Mig langar að spyrja ritstjórn Heimildarinnar hvort þeim liggi svona á að koma áróðri sjálfstæðisflokksins til framkvæmdar ?
    Á maður að fara að hugsa um peninginn , sem ég hef sett í stuðning við Heimildina ?
    -1
  • trausti þórðarson skrifaði
    Það dugði sjálfstæðisflokknum vel að segjast ætla að endurgreiða styrkina frá bönkunum og nú eru allir búnir að gleyma þessu svokallaða hruni.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár