Þórdís Kolbrún sækist ekki eftir formennsku

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir mun ekki sækj­ast eft­ir embætti á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fe­brú­ar.

Þórdís Kolbrún sækist ekki eftir formennsku
Varaformaður Þórdís Kolbrún hefur gegnt varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum um árabil. Mynd: Golli

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun ekki sækjast eftir embætti formanns né öðru embætti á landsfundi flokksins í næsta mánuði. 

Þessu greinir hún frá í færslu á Facebook-síðu sinni. 

„Í pólitískri dægurmálaumræðu gera flestir ráð fyrir því að ég hljóti að vilja verða formaður í Sjálfstæðisflokknum þar sem ég hef ítrekað sagst telja mig vera færa um að gegna embættinu enda getur formennska í Sjálfstæðisflokknum verið verkfæri til að ná markmiðum fyrir Ísland.

En það hefur ekki verið markmið í sjálfu sér; að það sem keyri mann áfram sé að „vinna leikinn“. Það er ekki sami hluturinn. Ég hef ætíð haft metnað til að sinna þeim verkefnum sem mér er treyst fyrir en ekki sérstaklega upptekin af því að ná tilteknum metorðum,“ skrifar hún.

Raddir sem hafi kallað hæst á endurnýjun fái að reyna sig

Þórdís Kolbrún segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki gott af innanflokksátökum eða „hatrömmum flokkadráttum“ og að hún sé stolt af því að hafa verið varaformaður hans síðustu sjö árin. Á þeim tímamótum sem flokkurinn sé nú á sé eðlilegt að þær raddir sem kallað hafi hæst á endurnýjun fái tækifæri til að reyna sig og flokkurinn fái að velja nýja forystu.

„Ég mun með stolti gera hvað ég get sem þingmaður í sterku liði undir nýrri forystu. Ég hlakka til að vera óbreyttur þingmaður á eigin forsendum - og hluti af liði,“ skrifar Þórdís Kolbrún.

Þá segist hún munu rækta það að hafa skynbragð og skilning „á því sem er að gerast í kringum okkur, og veldur mér raunverulegum áhyggjum. Því miður grunar mig að það sé allt miklu stærra en einstaka innanlandsmál, hvað þá innanflokksmál.“

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins mun fara fram 28. febrúar - 2. mars næstkomandi. Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins, tilkynnti þann 6. janúar að hann hyggðist ekki sækjast eftir endurkjöri, né þiggja þingsæti á Alþingi. Þrátt fyrir að aðeins séu fimm vikur til stefnu fram að landsfundi hefur enginn tilkynnt um framboð sitt til formanns.

Af þeim sem orðuð hafa verið við möguleg framboð eru fyrrverandi ráðherrarnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Doesn't she want to or was she told not to?
    0
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Mótherjar xD anda léttar. Hún þarf þó að endurskoða viðhorfin til Ísrael Palestínu. Trúi varla að hún styddi Ísrael ef hún væri vel kunnug málum. Enginn með hjarta mundi gera það.
    0
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Er ekki hissa. Hef séð alveg for a long time að ÞKRG, þessi ágæta kona, er engan veginn staðsett í réttum stjórnmálaflokki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
1
Innlent

Söfn­uðu hundruð­um millj­óna frá nafn­laus­um að­il­um fyr­ir menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Ís­landi

Rabbíni gyð­inga á Ís­landi virð­ist hafa safn­að 436 millj­ón­um króna frá nafn­laus­um styrkj­end­um til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­fest­ir sem er á svört­um lista í Bretlandi vegna tengsla við Rúss­land klippti á borð­ann. Hann hef­ur styrkt upp­kaup á heim­il­um Palestínu­manna til að stækka byggð­ir gyð­inga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
6
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
3
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár