Nærri þriðjungur kjósenda tók endanlega ákvörðun á kjördag

Aldrei hafa fleiri kjós­endur tekið ákvörðun í kjör­klef­anum eða á kjör­dag sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Svo virð­ist sem Flokkur fólks­ins hafi grætt mest á taktískri kosn­ingu.

Nærri þriðjungur kjósenda tók endanlega ákvörðun á kjördag
Formenn stjórn­ar­flokk­anna Samkvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup voru það helst kjós­endur Flokks fólks­ins sem kusu annan flokk en þann sem þeim leist best á. Þar á eftir komu kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Golli

Tæplega þriðj­ungur kjós­enda gerði upp hug sinn á kjör­dag og er það hlut­fall með því hæsta sem mælst hefur í und­an­förnum alþing­is­kosn­ingum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup þar sem spurt var um ákvarð­ana­töku kjós­enda í alþing­is­kosn­ing­unum 30. nóv­em­ber. 

Samkvæmt nið­ur­stöðu þjóð­ar­púls­ins tóku 18 pró­sent kjós­enda ákvörðun í kjör­klef­anum eða á kjör­stað, níu pró­sent sam­dæg­urs en áður en mætt var á kjör­stað. Þannig ákváðu nær 28 pró­sent kjós­enda end­an­lega á kjör­dag hvernig þeir ráð­stöf­uðu atkvæði sínu. Hlutfall þeirra sem tóku ákvörðun meira en mán­uði fyrir kosn­ingar var örlítið hærra, eða 29 pró­sent. 

Níu pró­sent tóku ákvörðun dag­inn fyrir kjör­dag en 14 pró­sent tóku ákvörðun í vik­unni sem var kosið, 11 pró­sent ákváðu sig einni til tveimur vikum fyrir kosn­ingar og níu pró­sent þremur til fjórum vikum fyrir kosn­ingar. 

Yngra fólk ákvað sig almennt seinna en eldra fólk og fólk með meiri menntun en minni var sömu­leiðis aðeins lík­legra til að ákveða sig seinna. Kjós­endur Mið­flokks­ins voru lík­leg­astir til að ákveða sig meira en mán­uði fyrir kosn­ingar, en 46 pró­sent kjós­enda flokks­ins voru búnir að taka ákvörðun þá. Á sama tíma voru kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka til að ákveða sig á kjör­stað, eða 28 pró­sent. Sama hlut­fall kjós­enda þeirra var hins vegar búinn að ákveða sig mán­uði eða meira fyrir kjör­dag. 

Kjósendur Flokks fólksins „taktískastir“

Einnig var spurt hvort fólk hafi kosið annan flokk en þann sem þeim leist best á, til dæmis frá niðu­stöðum kann­ana. 92 pró­sent svar­enda kaus flokk­inn sem þeim leist best á en átta pró­sent kusu annan flokk en þann sem þeim leist best á. Það voru helst kjós­endum Flokks fólks­ins sem kusu annan flokk en þeim leist best á og þar á eftir komu kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Af þeim sex­tíu svar­endum sem sögð­ust hafa kosið annan flokk en þann sem þeim leist best á leist flestum best á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og næst flestum á Pírata og Mið­flokk­inn. Þar á eftir koma Viðreisn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn. 


Könnunin var gerð dag­ana 5. til 12. des­em­ber 2024. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.726 og þátt­töku­hlut­fall var 47,9 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. 
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár