Valkyrjurnar kynna nýja ráðherra á morgun

Val­kyrj­urnar kynna nýja rík­is­stjórn og ráð­herra­skipan á morgun. Þá mun ný rík­is­stjórn funda á Bessa­stöðum síð­degis.

Valkyrjurnar kynna nýja ráðherra á morgun
Þor­gerður Karín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Inga Sælan, for­maður Flokks fólks­ins og Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á góðri stundu. Mynd: Golli

Stefnu­yf­ir­lýs­ing nýrrar rík­is­stjórnar verður kynnt í Hafn­ar­firði klukkan 13:00 á morgun, laug­ar­dag. Þá verður rík­is­ráðs­fundur nýrrar rík­is­stjórnar hald­inn klukkan hálf fimm sama dag.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingum bæði frá Sam­fylk­ing­unni og emb­ætti for­seta Íslands.

Formenn Flokks fólks­ins, Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar munu kynna áherslur nýrrar rík­is­stjórnar í Hafn­ar­firði á morgun auk þess sem greint verður frá skipan ráð­herra.

Klukkan þrjú mun frá­far­andi rík­is­stjórn funda í síð­asta skiptið á rík­is­ráðs­fundi á Bessa­stöðum á morgun. Eftir þann fund kemur ný rík­is­stjórn saman og fundar, eins og fram hefur komið.

Gert er ráð fyrir að lykla­skipti ráð­herra fari fram á sunnu­dag.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár