Rak 90 prósent starfsfólks fyrir að skrópa á morgunfund

Baldvin Oddsson, ungur íslenskur athafna­maður, rataði nýverið í fréttir í Banda­ríkj­unum fyrir að reka 99 starfs­menn úr sprota­fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði og rekur. Fram­kvæmda­stjór­inn mun hafa verið ósáttur við slaka mæt­ingu á morg­un­fund, þar sem aðeins ell­efu af 110 starfs­mönnum meld­uðu sig, og til­kynnti þeim sem voru fjar­ver­andi að þau væru rekin.

Rak 90 prósent starfsfólks fyrir að skrópa á morgunfund
Ungstirni Þrátt fyrir ungan aldur hefur Baldvin komið víða við á sínum ferli. Hér er hann lengst til hægri ásamt rúss­neska trompet­leik­ar­anum Timur Martynov og heims­fræga hljóm­sveit­ar­stjór­anum Valery Gergiev í New York fyrir nokkrum árum. Mynd: Baldvin Oddsson / Weimann-Brass

Til þeirra sem mættuð ekki á fund­inn í morgun, þið getið túlkað þetta skeyti sem form­legt upp­sagn­ar­bréf: Þið eruð öll rekin,“ skrif­aði Baldvin Oddsson, trompet­leik­ari og fram­kvæmda­stjóri sprota­fyr­ir­tæk­is­ins The Musicians Club, í skeyti til starfs­manna sinna á sam­skipta­for­rit­inu Slack um miðjan nóv­em­ber.

Starfs­menn­irnir sem erindið átti við voru 99 tals­ins. Einungis ell­efu höfðu mætt á umræddan morg­un­fund. Þau fengu að halda starfi sínu.  

Skila­boðin fóru í dreif­ingu og vöktu athygli banda­rískra frétta­miðla, meðal ann­ars Fortune og The Economic Times. 

„Til­raunir til þess að „slaufa“ mér hafa mis­tek­ist algjör­lega“
Baldvin Oddsson
í færslu á LinkedIn

Flestir starfsmenn í ólaunaðri fjarvinnu

Í skeyt­inu tíund­aði Baldvin ástæð­urnar fyrir upp­sögn­unum en sagði starfs­fólkið ekki hafa staðið við gerða samn­inga. Þá bað hann þá sem sagt var upp að skrá sig út af öllum reikn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins og skila vinnu­tækjum og öðrum bún­aði sem til­heyrðu fyr­ir­tæk­inu.

Í skeyt­inu áminnti Baldvin starfs­fólk sitt fyrir van­þakk­læti og sagði þau hafa farið illa með þau tæki­færi sem hann hafi boðið þeim innan fyr­ir­tæk­is­ins. Baldvin lauk skila­boð­unum með því að segja þeim sem mættu ekki á fund­inn ein­fald­lega að hypja sig.

Hypjið ykkur úr fyr­ir­tæk­inu mínu Baldvin var allt annað en sáttur með slaka mæt­ingu starfs­fólks síns á morg­un­fund og greip til þess ráðs að reka 90 pró­sent af starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég gaf ykkur tæki­færi til að gera líf ykkar betra, til að vinna af elju­semi og vaxa. Þrátt fyrir það hafið þið sýnt mér að þið takið þessu ekki alvar­lega. Af 110 manns, voru aðeins 11 mættir í morgun. Þessir 11 fá að vera áfram. En rest­inni af ykkur hefur verið sagt upp,“ skrif­aði Baldvin.

Í greinum Fortune og The Economic Times er þess getið að meiri­hluti starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins hafi unnið þar launa­laust, ann­að­hvort sem starfs­nemar eða sem ólaun­aðir hluta­starfs­menn, og þá vinna flestir í fyr­ir­tæk­inu störf sín í fjar­vinnu.

Baldvin svarar fyrir sig

Ekki náð­ist í Baldvin við vinnslu frétt­ar­innar, en hann hefur brugð­ist við frétta­flutn­ingi erlendra miðla á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars á LinkedIn viku eftir að hann sagði starfs­fólk­inu upp. Þar sagði  hann að sú mikla athygli sem málið vakti hafi bæði verið góð og slæm. Sumir hafi reynt að slaufa honum á meðan aðrir hafi sent honum stuðn­ings­kveðjur og hrós.

Hann sagð­ist standa við ákvörðun sína og bætti því við að nei­kvæð umfjöllun hefði haft gagn­stæð áhrif. Sú mikla umræða sem fór af stað hefði skilað sér í auk­inni aðsókn á vef­síðu félags­ins sem hefði nýlega slegið sölu­met. Þá hefði starfs­um­sóknum hjá félag­inu fjölgað ört eftir að málið komst í hámæli.

Svaraði fullum hálsiBaldvin sagð­ist á LinkedIn standa við ákvörðun sína og bætti því við að nei­kvæð umfjöllun hefði haft gagn­stæð áhrif.

„Til­raunir til þess að „slaufa“ mér hafa mis­tek­ist algjör­lega,“ skrif­aði Baldvin og bætti því við að fyr­ir­tækið stæði betur eftir að hafa sagt starfs­fólk­inu upp. Baldvin sagð­ist jafn­framt hafa fengið yfir 300 skila­boð frá öðrum fram­kvæmda­stjórum, leið­togum úr við­skipta­líf­inu og stórum frétta­miðlum. Þessum erindum sagð­ist hann ætla að svara á allra næstu dögum.  Heim­ildin sendi Baldvini fyr­ir­spurn um málið. Erindinu hefur ekki verið svarað.

Við­brögðin við færsl­unni voru í takti við efn­is­tök hennar. Sumir gagn­rýndu Baldvin harð­lega í athuga­semda­kerf­inu. Þeim athuga­semdum svar­aði Baldvin gjarnan fullum hálsi. Aðrir hrósuðu Baldvini fyrir að taka djarfa ákvörðun og fyrir að standa fast á sínu.  

Ungstirni í klassíska tónlistarheiminum

Baldvin er sem fyrr segir trompet­leik­ari á þrí­tugs­aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann komið ansi víða við á sínum ferli og spilað fyrir frægar hljóm­sveitir á borð við American Symphony Orchestra, New York Philharmonic og Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands svo eitt­hvað sé nefnt. Þá sinnir hann trompet­kennslu við hinn víð­fræga Julliard-skóla í New York.

Þegar nafni Baldvins er slegið upp í leit­ar­vél má finna ýmsar greinar sem birtar voru á árunum 2010 til 2015, þar sem fjallað var um einn efni­leg­asta trompet­leik­ara lands­ins. Baldvin lauk ein­leik­ara­prófi aðeins 15 ára að aldri og inn­rit­að­ist síðan í list­mennta­skól­ann Interlochen í Michigan. Árið 2015 varð hann einn sig­ur­veg­ara í ein­leik­ara­keppni Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, Ungir ein­leik­arar. Árið 2016 útskrif­að­ist hann með gráðu í klass­ískum hljóð­færa­leik frá Man­hattan School of Music. 

Baldvin hefur ekki aðeins verið við­rið­inn tón­list­ina heldur hefur hann einnig komið að veit­inga­rekstri hér á landi. Árið 2019 stofn­aði Baldvin, ásamt tveimur æsku­vinum sínum í Vest­ur­bænum, mat­ar­vagn­inn Tacoson sem, eins og nafnið gefur til kynna, sér­hæfir sig í að fram­reiða mexíkóska götu­rétti. Fjallað var um stað­inn í frétt sem birt­ist á mbl.is í fyrra. 

Sprotafyrirtæki stofnað 2023

Fyr­ir­tækið The Musicians Club var stofnað árið 2023 og er það rekið af móð­ur­fé­lag­inu Brass Club LLC. Höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru í bænum Sheridan í Wyoming í Banda­ríkj­unum. Félagið rekur staf­rænt mark­aðs­torg sem sér­hæfir sig í sölu á hljóð­færum og öðrum auka­hlutum sem teng­ist hljóð­færa­leik. Á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins kemur fram að fyr­ir­tækið leit­ist við að útvega tón­list­ar­fólki, jafnt byrj­endum sem lengra komnum, hágæða vörur sem við­skipta­vinum býðst að fá sent heim til sín.

Í mán­að­ar­gam­alli færslu sem Baldvin birti á Linkedin-síðu sinni segir hann frá til­drögum þess að hann stofn­aði fyr­ir­tækið:

„Þegar ég starf­aði sem tón­list­ar­maður í Lincoln Center lenti ég einu sinni í því að mig bráð­vant­aði búnað eftir æfingu. Ég upp­götv­aði að sá bún­aður var ekki bara ófá­an­legur í næsta nágrenni heldur í land­inu öllu. Þetta var kveikjan að The Musicians Club,“ skrifar Baldvin og bætir við að nú bjóði fyr­ir­tækið yfir 30.000 mis­mun­andi vörur til sölu sem eiga að létta tón­list­ar­mönnum lífið til muna.

Þá er sömu­leiðis hægt að skrá sig í stakar kennslu­stundir í hljóð­færa­leik á vef­síð­unni. Hægt er að bóka tíma hjá leið­bein­anda í gegnum bók­un­ar­kerfi á vefnum. Kennslan fer ýmist fram í gegnum fjar­fund­ar­for­ritið Zoom eða í eigin per­sónu. Á vef­síð­unni kemur fram að mark­miðið sé að brúa bilið milli nem­enda og hljóð­færa­leik­ara á heimsklassa.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þarna kemur glögt í ljós ástin á einræđis-tendensinum, ađ láta rekas sig án þess ađ taka eyri fyrir vinnuna sína er undirlagjuháttur sem mađur hélt ađ væri sér íslenskt, er þađ augljóslega ekki, og ofaníkaupiđ láta segja sér ađ harđstjórinn væri ađ gefa sjálfbođaliđunum eitthvađ er bara ,,too much"
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár