Tólf ára fangelsi fyrir fjársvik

Þyngsti dómur sem fallið hefur fyrir fjár­svik í Danmörku var kveð­inn upp í bæj­ar­rétti í Glostrup í síð­ustu viku. Sá dæmdi, Sanjay Shah, er tal­inn hafa svikið jafn­gildi 180 millj­arða íslenskra króna úr danska rík­is­kass­anum. Hann seg­ist hafa nýtt glufu í skatta­kerf­inu og hefur áfrýjað dómnum.

Mánu­dag­inn 24. ágúst 2015 sat danska rík­is­stjórnin á fundi í Mari­en­borg (emb­ætt­is­bú­stað for­sæt­is­ráð­herr­ans) skammt frá Kaup­manna­höfn. Þar var verið að und­ir­búa fjár­lög næsta árs, þau fyrstu eftir að rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen tók við eftir kosn­ingar fyrr á árinu. Auk ráð­herr­anna sátu fund­inn ráðu­neyt­is­stjórar og nokkrir sér­fræð­ingar.

Karsten Lauritzen skatta­mála­ráð­herra veitti skyndi­lega athygli murri í síma Jens Brøchner, ráðu­neyt­is­stjóra skatta­ráðu­neyt­is­ins. Jens Brøchner stóð upp eftir að hafa lesið skila­boð á sím­anum og fór út úr fund­ar­her­berg­inu. Að ráðu­neyt­is­stjóri yfir­gefi orða­laust vinnufund rík­is­stjórnar er óvenju­legt. Eftir drjúga stund kom ráðu­neyt­is­stjór­inn aftur inn á fund­inn, honum virt­ist brugðið en sagði ekk­ert. 

Að loknum fund­inum, sem stóð fram á kvöld, spurði Jens Brøchner hvort hann gæti orðið sam­ferða í ráð­herra­bílnum, en ráðu­neyt­is­stjór­inn hafði komið á eigin bíl til fund­ar­ins. „Það var auð­vitað vel­komið,“ sagði Karsten Lauritzen og brátt kom ástæðan í ljós. „Þegar við vorum sestir inn í bíl­inn sagði Jens Brøchner mér frá sím­tal­inu áður­nefnda. Sá sem hringdi var starfs­maður í ráðu­neyt­inu til að segja ráðu­neyt­is­stjór­anum að lík­lega hefðu verið sviknir 6,2 millj­arðar danskra króna (120 millj­arðar íslenskir) úr danska rík­is­kass­anum. Ég fékk sjokk,“ sagði Karsten Lauritzen, sem hafði verið skatta­mála­ráð­herra í tvo mán­uði þegar málið kom upp.

Frá­sögnin hér að framan er byggð á við­tali Danska útvarps­ins, DR, við Karsten Lauritzen, við­talið var birt á vefnum 12. des­em­ber 2024, sama dag og dómur í fjársvika­mál­inu féll.

Skatta­mála­ráð­herra Karsten Lauritzen fékk sjokk þegar hann heyrði fyrst af mál­inu. Ekki tók betra við þegar hann kom í ráðu­neytið og átt­aði sig á umfang­inu.

Voru 12,7 en ekki 6,2 milljarðar

Hafi Karsten Lauritzen fengið sjokk, eins og hann lýsti sjálfur, þegar hann fékk fyrstu fréttir af svika­mál­inu, tók ekki betra við þegar hann og ráðu­neyt­is­stjór­inn komu í skatta­ráðu­neytið að kvöldi mánu­dags­ins 24. ágúst 2015, eftir langan fund í Mari­en­borg. Þar til­kynntu sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins þeim að svika­málið væri langtum stærra en þeir 6,2 millj­arðar sem fyrst voru nefndir. Upphæðin væri lík­lega 12,7 millj­arðar danskra króna, eða 248 millj­arðar íslenskar.

Mið­viku­dag­inn 26. ágúst hélt Karsten Lauritzen skatta­mála­ráð­herra frétta­manna­fund. Þegar hann greindi frá mál­inu og upp­hæð­inni, 12,7 millj­örðum, trúðu frétta­menn vart sínum eigin eyrum og báðu ráð­herr­ann um að end­ur­taka upp­hæð­ina. Síðar kom í ljós að danska skatt­stofan, SKAT, hafði fengið vit­neskju um „end­ur­greiðslu­málið“ tveimur mán­uðum áður en gripið var til aðgerða, á þessum tveimur mán­uðum streymdu meira en 2 millj­arðar danskra króna úr danska rík­is­kass­anum til Sanjay Shah og ann­arra sem sóttu um end­ur­greiðslur.   

Ólöglegar endurgreiðslur

Á frétta­manna­fund­inum sagði ráð­herr­ann að grunur léki á að um væri að ræða ólög­legar end­ur­greiðslur. „Jahá, hvernig ólög­legar?“ spurðu frétta­menn og vildu fá að vita meira. Og það fengu þeir og óhætt er að segja að vinnu­brögð skatts­ins kringum end­ur­greiðsl­urnar hafi komið á óvart. Í mjög stuttu og ein­föld­uðu máli geta hlut­hafar í dönsku fyr­ir­tæki sem gengur vel fengið greiddan arð, sem þá er skatt­lagður í Danmörku. Sé hlut­haf­inn búsettur utan Dan­merkur, í landi sem Danmörk hefur sér­stakt sam­komu­lag við, getur hann óskað eftir að fá danska skatt­inn áður­nefnda end­ur­greiddan og borgað skatt af arð­inum í búsetu­land­inu, þar sem skatt­ur­inn er iðu­lega lægri. End­ur­greiðslu­um­sækj­andi sendir umsókn til dönsku skatt­stof­unnar, SKAT, og við­kom­andi fær skatt­inn greiddan. Virðist ein­falt.

Einn hængur á

Í ljós kom að eft­ir­lits­deildin með end­ur­greiðsl­unum var einn maður, sem í dönskum miðlum var kall­aður „mað­ur­inn með gúmmí­stimp­il­inn“. Sá átti að kanna hvort umsækj­andi ætti hluta­bréf í dönsku fyr­ir­tæki og ef allt virt­ist í „orden“ stað­festi hann umsókn­ina með stimpli, og svo sá gjald­kera­deildin um að borga. Það var bara einn hængur á, millj­arð­arnir 12,7 höfðu aldrei verið greiddir í skatt til danska rík­is­ins. End­ur­greiðslu­beiðn­irnar höfðu ein­fald­legar runnið í gegnum kerfið, án þess að kannað væri hvort við­kom­andi umsækj­andi ætti rétt á þeim.

„Stor skandale,“ sögðu danskir fjöl­miðlar og það var ekki orðum aukið.

Einn maður fékk um níu milljarða

Í máli Karsten Lauritzen á frétta­manna­fund­inum 26. ágúst 2015 kom fram að einn maður hefði fengið stærstan hluta millj­arð­anna 12,7, um það bil níu millj­arða. Sá reynd­ist vera breskur rík­is­borg­ari, Sanjay Shah. Nafn hans er nú á hvers manns vörum í Danmörku, þótt fæstir hafi kann­ast við hann áður en end­ur­greiðslu­málið kom upp.  

Í pistli sem birt­ist í Heim­ild­inni 17. mars síð­stlið­inn undir heit­inu „Úr 600 fer­metra lúx­usvillu í sjö fer­metra fanga­klefa“ var fjallað um Sanjay Shah, æsku hans, upp­vöxt og „atvinnu“.

Handtaka og framsal

Í lok maí árið 2022 var Sanjay Shah hand­tek­inn í Dubai. Eftir sam­inga­þóf var hann fram­seldur til Dan­merkur í des­em­ber á síð­asta ári (2023). Rétt­ar­höld í máli hans hófust í maí 2024 og eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils féll dómur í máli hans 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Ákæru­valdið hafði farið fram á tólf ára fang­elsi, sem er hámarks­refs­ing fyrir brot af þessu tagi. Í Bæj­ar­rétt­inum í Glostrup (lægsta dóm­stig af þremur) var Sanjay Shah dæmdur í tólf ára fang­elsi og lífs­tíðar brott­vísun úr Danmörku að afplánun lok­inni. Sanjay Shah áfrýj­aði dómnum sam­stundis til Lands­réttar. Hann fór fram á að verða lát­inn laus gegn trygg­ingu, á það féllst dóm­ari ekki og því verður Sanjay Shah áfram í gæslu­varð­haldi. Ekki er á þess­ari stundu vitað hvenær dæmt verður í máli hans í Lands­rétti. Ýmsir sam­starfs­menn Sanjay Shah hafa þegar verið dæmdir til refs­ingar, þá þyngstu hlaut Bretinn Anthony Mark Pett­er­son. Hann var í byrjun mars á þessu ári dæmdur í átta ára fang­elsi og veru­legir fjár­munir í hans eigu gerðir upp­tækir. Af millj­örð­unum 12,7 sem runnu með ólög­legum hætti úr danska rík­is­kass­anum hefur tek­ist að end­ur­heimta um fjórð­ung, en dönsk skatta­yf­ir­völd von­ast til að ná millj­örðum til við­bótar til baka.

Hvernig gat þetta gerst?

Eins og geta má nærri varð uppi fótur og fit þegar frétt­irnar um end­ur­greiðsl­urnar komust í danska fjöl­miðla í lok ágúst 2015. Allir voru sam­mála um að með ólík­indum væri að millj­arðar gætu nán­ast eft­ir­lits­laust streymt úr rík­is­kass­anum. Danskir fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið dögum og vikum saman og þar kom ýmis­legt í ljós. Meðal ann­ars að margir starfs­menn höfðu marg­sinnis vakið athygli yfir­manna sinna á miklum brota­lömum í starf­semi og eft­ir­liti skatts­ins, þar á meðal vegna end­ur­greiðslna. Stjórn­mála­menn og yfir­menn skatts­ins bentu hver á annan. Ein ástæða sem oft var nefnd fyrir óreið­unni hjá skatt­inum var að árum saman var skorið niður í mann­afla og árið 2015 voru starfs­menn sam­tals um sex þús­und en voru nokkrum árum fyrr um tíu þús­und. Ekkert var hlustað á ábend­ingar og kvart­anir starfs­manna, „árlegar upp­sagnir keyrðu nán­ast á sjálf­stýr­ingu,“ sögðu starfs­menn.

Seint og um síðir virt­ust stjórn­völd ranka við sér og á und­an­förnum árum hefur starf­semi skatts­ins gengið í gegnum mikla end­ur­skoðun og starfs­fólki fjölgað.

Rétt er hér í lokin að geta þess að end­ur­greiðslu­svind­lið var ekki bundið við Danmörku. Árið 2018 greindu fjöl­miðlar í mörgum Evr­ópu­löndum frá því að svindl­arar hefðu með sömu aðferðum og not­aðar voru gegn danska skatt­inum krækt í jafn­gildi 410 millj­arða danskra króna (átta þús­und millj­arðar íslenskir) frá fimm löndum. Mest frá Þýska­landi en einnig frá Frakk­landi, Ítalíu og Belgíu auk Dan­merkur. Hugs­an­lega næði svind­lið til fleiri landa.    

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Skattaeftirlit er ekki lengur til a íslandi. Svo einfalt er það. Þökk sé stjórnmálamönnum. Og líkt og annars staðar er það embætti fjárhagslega skorið niður eins og önnur eftirlit. Stóru málin kosta pening og mannskap og eru þessvegna sett til hliðar. í stað þess að staðsetja einn starfsmann sérstakann hjá skattinum svo tvívinnsla ætti sér ekki stað þá lögðu þeir niður skattrannsóknarstjóraembættið. Og það er ekki starfsmönnum þar að kenna. Þegar Mellon banki krafði den norske bank um upprunarvottorð þá rak DNB Samherja úr viðskiftum og fékk sekt. Þegar Seðlabankinn þvoði þúsund milljarða snjóhengju var ekkert upprunarvottorð krafist og skatturinn fékk ekkert að vita. Og af hverju olli milljarða innspýting fjármagns ekki verðbólgu en launahækkun er sögð gera það ? Jú út af því að fjármagn í umferð eykst ef launamaður notar klinkið sem kerfið skilur eftir en þegar launagreiðandinn notar fulla upphæð þá eykst ekki fjármagn í umferð ???? Í alvöru ???? En þetta eru rök Seðló.
    5
  • SS
    Sveinn Sveinbjörnsson skrifaði
    Ég tel nú að ekki veitti af að styrkja skattaeftirlitið hér líka.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár