Úr 600 fermetra lúxusvillu í sjö fermetra fangaklefa

Áhyggju­laust líf með sand af seðlum fékk skjótan endi þegar lag­anna verðir bönk­uðu upp á hjá Sanjay Shah í lúx­usvillu hans í Dubai í lok maí árið 2022 og smelltu á hann hand­járnum. Nú er hann fyrir rétti í Danmörku, ákærður fyrir stærsta fjár­mála­svindl í sögu lands­ins.

Úr 600 fermetra lúxusvillu í sjö fermetra fangaklefa
Í haldi Sanjay Shah ásamt dönskum lög­reglu­mönnum á Kastrup-flug­velli í des­em­ber í fyrra eftir að hann hafði verið fram­seldur til Dan­merkur frá Dubai. Mynd: AFP
Hlustaðu 08:59 · Eitt og annað

Þegar danski skatta­mála­ráð­herr­ann Karsten Lauritzen boð­aði til frétta­manna­fundar undir lok ágúst­mán­aðar árið 2015 töldu frétta­menn sig vita hvert til­efnið væri. Fjöl­miðlar höfðu nefni­lega kom­ist á snoðir um að miklir fjár­munir hefðu streymt úr rík­is­kass­anum gegnum skatta­kerfið, með ólög­legum hætti. Engan við­staddra grun­aði hins vegar að um væri að ræða 12,7 millj­arða danskra króna, sem jafn­gildir 253 millj­örðum íslenskum.

Einn frétta­mann­anna bað ráð­herr­ann um að end­ur­taka upp­hæð­ina, til að vera viss um að sér hefði ekki mis­heyrst. Ráð­herr­ann greindi ekki frá því hverjir hefðu mót­tekið þessa pen­inga, sagði ein­ungis að um væri að ræða fleiri en einn aðila. Einn maður hefði verið lang atkvæða­mestur, sá hefði fengið greidda um níu millj­arða danskra króna.

Ráð­herr­ann sagði að sterkur grunur léki á að um væri að ræða það sem hann nefndi „ólög­legar end­ur­greiðslur“. Danskir fjöl­miðlar sökktu sér ofan í málið en þeim gekk ekki vel að fá upp­lýs­ingar frá skatt­inum hvernig þessum end­ur­greiðslum hefði verið háttað. Danskir frétta­menn sætta sig ekki við „utan­um­tal“ og hættu ekki fyrr en vinnu­brögð skatts­ins varð­andi end­ur­greiðsl­urnar höfðu verið dregin fram í dags­ljósið. Og óhætt er að segja að vinnu­brögðin hafi komið á óvart. 

Endurgreiðslureglurnar

Ef rekstur fyr­ir­tækis sem starfar í Danmörku gengur vel og skilar hagn­aði fá hlut­hafar iðu­lega greiddan arð. Af arði ber að greiða skatt, skatt­pró­sentan fer eftir upp­hæð arð­greiðsl­unnar, er lægst 27 en hæst 42 pró­sent. 

„Einn maður hefði verið lang atkvæða­mestur, sá hefði fengið greidda um níu millj­arða danskra króna“

Samkvæmt sér­stöku sam­komu­lagi varð­andi skatta­mál, sem Danmörk hefur gert við fjöl­mörg lönd, getur hlut­hafi búsettur í öðru landi óskað eftir að fá áður­nefndan skatt end­ur­greiddan og borgað skatt af arð­inum í heima­land­inu, þar sem skatt­ur­inn er iðu­lega lægri. Senda skal end­ur­greiðslu­um­sókn til dönsku skatt­stof­unnar, SKAT, og við­kom­andi fær síðan skatt­inn greiddan. Þetta virð­ist ekki ýkja flókið.

Eftirlitsdeildin var einn maður með gúmmístimpil

Þegar frétta­menn höfðu spurt í þaula um end­ur­greiðslu­fyr­ir­komu­lagið fengu þeir svör sem komu væg­ast sagt á óvart. Eft­ir­lits­deildin með end­ur­greiðslu­beiðn­unum var einn maður, hann átti að kanna hvort umsækj­andi ætti hluta­bréf og fengi greiddan arð, stað­festa svo með stimpli og senda áfram til gjald­kera­deild­ar­innar.

En það var einn hængur á, millj­arð­arnir 12,7 höfðu aldrei verið greiddir í rík­is­kass­ann. Þeir sem léku á kerfið útbjuggu ein­fald­lega end­ur­greiðslu­beiðnir sem „mað­ur­inn með gúmmí­stimp­il­inn“ eins og danskir fjöl­miðlar köll­uðu hann, stimpl­aði og lagði þar með blessun sína yfir. Án þess að kanna hvort umsækj­and­inn hefði yfir­leitt greitt arð­greiðslu­skatt. 

Ringulreið

Ekki er ofmælt að frétt­irnar af „end­ur­greiðsl­unum“ hafi vakið mikla athygli. Stjórn­mála­menn keppt­ust við að lýsa hneykslan sinni og kröfð­ust skýr­inga, en eng­inn taldi sig bera ábyrgð á þessum „skandale“. Óhætt er að segja að ringul­reið hafi ríkt í starf­semi skatts­ins um ára­bil, þús­undum starfs­manna hafði verið sagt upp og ekk­ert hlustað á ábend­ingar starfs­fólks um að í kerf­inu væru fjöl­margar brotala­mir. Það segir sína sögu að á árunum 2010–2015 sátu átta manns í ráð­herra­stól skatta­ráðu­neyt­is­ins. 

Sanjay Shah 

Á frétta­manna­fund­inum seint í ágúst­mán­uði árið 2015 sagði Karsten Lauritzen skatta­mála­ráð­herra að einn maður hefði fengið um 9 millj­arða af þeim 12,7 sem streymt hefðu úr rík­is­kass­anum.

Þessi ein­stak­lingur reynd­ist vera Sanjay Shah, maður sem fáir Danir könn­uð­ust við þangað til end­ur­greiðslu­málið kom upp. Nú er það breytt og óhætt að segja að nán­ast hvert ein­asta manns­barn í Danmörku hafi heyrt hans getið og séð af honum myndir í fjöl­miðlum.

Átti að verða læknir 

Sanjay Shah fædd­ist 11. sept­em­ber árið 1970 í London. For­eldrar hans voru af ind­verskum ættum en fluttu til Englands frá Kenía. Faðirinn var læknir en vegna heilsu­brests vann hann stop­ult og móð­irin var heima­vinn­andi. Auk Sanjay áttu hjónin eina yngri dóttur. Sanjay Shah hefur í við­tölum sagt frá því að fjöl­skyldan hafi ekki lifað neinu lúx­us­lífi og búið í lít­illi eins her­bergis íbúð og haft lítið milli hand­anna. 

Sanjay átti auð­velt með nám og sagði í við­tali að for­eldr­arnir hefðu haft ákveðnar hug­myndir um fram­tíð son­ar­ins, hann ætti að verða læknir. „Það væri besta starf sem hugs­ast gæti og ég trúði því.“ Hann fékk inn­göngu í lækna­deild­ina við King´s College í London.

„Hann bjó, ásamt fjöl­skyld­unni, í 650 fer­metra húsi og fjöl­miðlar hafa greint frá því að meðal „inn­an­stokks­muna“ hafi verið 38 þús­und lítra fiska­búr með yfir 200 teg­undum af skraut­fiskum“

„Eftir eitt ár var ég búinn að átta mig á að ég vildi ekki verða læknir.“ Hann hélt þó nám­inu áfram um hríð en lagði sömu­leiðis stund á sál­fræði og japönsku. Eftir að hafa gef­ist upp á háskóla­nám­inu sinnti hann ýmsum störfum en árið 1996 fékk hann starf hjá fjár­fest­inga­bank­anum Merril Lynch, þar sem hann var í nokkur ár. Þar var vinnu­á­lagið mikið og sömu­leiðis inn­byrðis sam­keppni á vinnu­staðnum. 

Dýru bílarnir kveiktu áhuga á verðbréfum

Sanjay Shah veitti því athygli að á bíla­stæði við vinnu­stað­inn stóðu ætíð fok­dýrir lúx­us­bílar og eitt sinn spurði hann hver ætti þessa bíla og fékk að vita að það væru verð­bréfa­sal­arnir á efstu hæð­inni. „Þá sagði ég við sjálfan mig að ég vildi kom­ast í þennan hóp,“ sagði Sanjay Shah. Hann sagði upp hjá Merril Lynch og vann síðan um hríð hjá Morgan Stanley fjár­fest­inga­bank­anum og enn fremur Credit Suisse. Þegar hann réði sig hjá hol­lenska stór­bank­anum Radobank heyrði hann í fyrsta sinn um end­ur­greiðslur og hin svo­nefndu cum-ex við­skipti. Í þeim fólst að hægt væri, í Þýska­landi og jafn­vel víðar, að fá end­ur­greiðslur vegna sama hluta­bréfs­ins tvisvar sinnum. Árið 2008 missti Sanjay Shah vinn­una hjá Radobank þegar deildin sem hann starf­aði í var lögð niður. Ári síðar flutti hann til Dubai ásamt eig­in­kon­unni Usha og þremur börnum þeirra. Þar stofn­aði hann fyr­ir­tækið Solo Capital. 

Starf­semin gekk í stuttu og ein­föld­uðu máli út á að fá, með flóknum fléttum, end­ur­greiðslur frá dönsku skatt­stof­unni eins og áður var nefnt. Anthony Mark Pett­er­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Solo Capital, sagði að nafnið væri lýsandi, Sanjay Shah hefði verið ein­ráður og stjórnað öllu. Anthony þessi var hand­tek­inn í Bret­landi í fyrra­sumar og síðar fram­seldur til Dan­merkur. Hann við­ur­kenndi að hafa unnið með Sanjay Shah og var í byrjun þessa mán­aðar dæmdur í átta ára fang­elsi, auk þess sem veru­legir fjár­munir í hans eigu voru gerðir upp­tækir.  

Handtaka og réttarhöld

Eftir að hafa stundað „end­ur­greiðslu­leik­inn“ um nokk­urra ára skeið var endi bund­inn á starf­semi Solo Capital árið 2015. Sanjay Shah bjó eins og áður sagði í Dubai og fór ekki huldu höfði. Hann bjó, ásamt fjöl­skyld­unni, í 650 fer­metra húsi og fjöl­miðlar hafa greint frá því að meðal „inn­an­stokks­muna“ hafi verið 38 þús­und lítra fiska­búr með yfir 200 teg­undum af skraut­fiskum. Þetta hóg­lífi fékk skjótan endi þegar Sanjay Shah var hand­tek­inn í lok maí árið 2022. Danmörk og Dubai hafa ekki samn­ing um fram­sal og það var ekki fyrr en í des­em­ber 2023 að Sanjay Shah var fluttur í Vestre Fængsel í Kaup­manna­höfn.

Rétt­ar­höldin hófust 11. mars sl. og gert ráð fyrir að þau taki 60 daga. Á þriðja degi rétt­ar­hald­anna lýsti Sanjay Shah því yfir að hann hefði vissu­lega mót­t­tekið pen­inga frá skatt­inum, það hefði allt verið lög­legt því hann hefði not­fært sér glufu í lögum. Mál­skjölin fylla 300 þús­und blað­síður og fram hefur komið að á „end­ur­greiðslu­tíma­bil­inu“ hafi Sanjay Shah sent danska skatt­inum 2.500 end­ur­greiðslu­beiðnir. Gert er ráð fyrir að dómur falli í júní á næsta ári. 

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    2,7 milljarða danskra króna, sem jafngildir 253 milljörðum íslenskum. Þetta toppar ekki Íslensku glæpamennina úr bankahruninu hér, vantar þar mikið uppá. Hér múta þeir bara yfirstjórn lögreglunnar virðist vera og skipta sér af rannsóknum enda ekki þrískipt ríkisvald á íslandi nema til að sýnast svo kaupa þessir trúðar sakamál hjá mafíunni fyrir sama þýfi til að sýnast og halda blekkingarleiki fyrir almenning sem þeir fá aðstoð við frá fjölmiðlum
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár