Ástvinir geta þurft að bíða vikum saman eftir jarðarför

Víða í Danmörku hefur árum saman vantað fleiri presta en ástandið hefur aldrei verið jafnslæmt og núna. Ætt­ingjar geta þurft að bíða vikum saman eftir að geta kvatt ást­vini vegna ann­ríkis hjá prestum.

Um langt ára­bil hafa af og til birst í dönskum fjöl­miðlum við­töl við danska presta um ástandið sem víða ríkir í dönskum sóknum. Áhyggjur prest­anna eru af tvennum toga, ann­ars vegar til­finn­an­legur skortur á við­haldi hinna fjöl­mörgu guðs­húsa um allt land og hins vegar skortur á prestum til að þjóna sókn­ar­börn­unum.

Kirkj­urnar í land­inu eru sam­tals 2.354, margar gamlar og þarfn­ast mik­ils við­halds en fjár­magnið til þeirra hluta er mjög tak­markað. Stærsta kirkja lands­ins er dóm­kirkjan í Árósum (heitir Sct. Clemens Kirke), hún tekur um 1.200 manns í sæti, er 93 metra löng og turn­inn 92 metra hár. Minnsta kirkja lands­ins er á Venø á Norð­vestur-Jótlandi byggð árið 1536, hún er að inn­an­máli 41 fer­metri og rúmar 55 í sæti, ef þétt er setið. Turnlaus. Um það bil 72 pró­sent (4,3 millj­ónir) dönsku þjóð­ar­innar eru í þjóð­kirkj­unni, Fol­ke­kirken, í 2.123 sóknum, en þeim hefur fækkað lít­il­lega á síð­ustu árum. Messu­sókn er mjög mis­jöfn eftir lands­hlutum og sóknum en sam­kvæmt upp­lýs­ingum þjóð­kirkj­unnar eru fasta­gestir í messum (þeir sem sækja messur tvisvar eða oftar í mán­uði) um það bil 50 þús­und. Fyrir utan þjóð­kirkj­una eru um 120 trú­fé­lög starf­andi í land­inu og hefur fjölgað á síð­ustu árum.

Tvö þúsund prestar

Á síð­ustu árum hefur prestum þjóð­kirkj­unnar fjölgað lít­il­lega og nú eru rúm­lega 2 þús­und starf­andi í land­inu. Ýmsum kann að þykja und­ar­legt að prestum fjölgi á sama tíma og fækkar í þjóð­kirkj­unni. Í við­tali við Kristeligt Dagblad, sagði Pernille Vigsø Bagge, for­maður danska Presta­fé­lags­ins, að þetta ætti sér eðli­legar skýr­ingar. Verk­efnum presta hefði á und­an­förnum árum fjölgað mjög og kirkju­starfið breyst. Alls kyns félags­starf er nú orðið hluti starf­sem­innar og sál­gæsla og fjöl­skyldu­ráð­gjöf æ rík­ari þáttur í starfi presta.

„Starfið er ekki sam­bæri­legt því sem það var bara fyrir 20 árum, það er gott að kirkju­starfið, annað en messu­hald, sé öfl­ugt en það krefst auk­ins manna­halds,“ sagði Pernille.

185 nýnemar í guðfræðinni í ár

Árið 2020 sóttu 252 um, og fengu, inn­göngu í guð­fræði­nám við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla og Háskól­ann í Árósum og höfðu aldrei verið fleiri. Síðan dró úr aðsókn­inni, í fyrra voru umsækj­endur 173 en á þessu ári fjölg­aði aftur og voru nú 185. Rétt er að nefna að þetta er fjöldi þeirra sem fékk inn­göngu og hóf nám.

Hár meðalaldur  

Með­al­aldur danskra presta er hár og lengi hefur blasað við að ef ekk­ert yrði að gert muni innan fárra ára vanta tugi presta til starfa. Fyrir sex árum lagði nefnd á vegum kirkj­unnar til að fólki með háskóla­menntun í til­teknum greinum gæf­ist kostur á styttra námi en hefð­bund­inni guð­fræði­menntun og gæti að því loknu starfað sem prestar. Danska þingið, Fol­ket­inget, sam­þykkti sér­stök lög um þetta, þau gilda til árs­ins 2030. Námið mið­ast við tvö og hálft ár og að því loknu geta þeir sem því ljúka sótt um prests­emb­ætti. Árið 2022 byrj­uðu 70 nem­endur í þessu námi sem kirkju­mála­ráðu­neytið kallar sér­nám og svip­aður fjöldi á síð­asta ári. Rúmlega helm­ingur starf­andi presta í Danmörku eru konur, þær máttu lengi vel ekki gegna prests­emb­ætti nema með sér­stakri und­an­þágu, en sitja nú við sama borð og karlar í þessum efnum.

Leikmenn gerast íhlaupaprestar

Skortur á prestum er ekki nýtil­kom­inn. Í dag er fjöldi presta sem ættu að vera komnir á eft­ir­laun (sestir í helgan stein væri kannski rétt­ara að kalla það) starf­andi í kirkjum lands­ins, sumir jafn­vel komnir á níræð­is­aldur. Oft eru þessir öldr­uðu prestar að þjóna í presta­köllum þar sem þeir störf­uðu áður og söfn­uð­ur­inn þekkir. En þessi mögu­leiki er ekki alltaf til staðar. Svo geta prestar veikst og eng­inn afleys­inga­prestur er fáan­legur. Þá verður að grípa til leik­manna svo hægt sé að messa. Iðulega er þá leitað til þeirra sem að jafn­aði sækja messur og vita hvernig slíkar athafnir ganga fyrir sig. Íhlaupa­prest­unum, eins og þeir eru kall­aðir, hefur fjölgað tals­vert að und­an­förnu. Mörgum finnst kannski und­ar­legt að sjá hann Jeppe, sem var að mála þakið í fyrra­dag, skyndi­lega kom­inn í hlut­verk prests í þorps­kirkj­unni. Jeppe húsa­mál­ari má þó ekki skrýð­ast hempu þegar hann messar, og hann má ekki skíra og ferma, ekki taka til alt­aris, ekki fara með bless­un­ar­orð og ekki jarð­syngja. Allt þetta fram­an­greinda verður Jeppe að láta liggja milli hluta þegar hann hleypur í skarðið. Íhlaupa­prest­arnir eru iðu­lega ein­hverjir sem eiga sæti í safn­að­ar­nefnd­inni þótt það sé ekki algilt.

Langur biðtími

Þótt Jeppe húsa­mál­ari megi ekki skíra og ferma og taka til alt­aris sleppur það til, slíkt getur beðið. Það er erf­ið­ara með jarð­ar­far­irnar, með þær er erfitt að þurfa að bíða, en þannig er ástandið sums staðar, þótt prestar láti jarð­ar­farir sæta for­gangi dugir það ekki til. Mörg dæmi eru um, og fer fjölg­andi, að ætt­ingjar þurfi að bíða jafn­vel vikum saman eftir að geta kvatt ætt­ingja eða vin. Danska útvarpið, DR, ræddi við útfar­ar­stjóra á Norð­vestur-Jótlandi þar sem ekki hefur tek­ist að manna laus prests­emb­ætti. Útfar­ar­stjór­inn sagði að ástandið væri mjög erfitt „maður hringir og hringir en prest­arnir segj­ast ekki geta hjálpað, þótt jarð­ar­farir séu í for­gangi geti þeir ekki annað öllum beiðnum“.

Vonast eftir úrbótum

Kirkj­unnar menn hafa um ára­bil reynt að vekja athygli ráða­manna á vand­anum en fram til þessa talað fyrir daufum eyrum. Í síð­ustu viku hitt­ust full­trúar kirkj­unnar á fundi með emb­ætt­is­mönnum kirkju­mála­ráðu­neyt­is­ins. Mette Moes­gaard Jørg­en­sen, pró­fastur á Mors, þar sem ekki hefur tek­ist að fá presta til starfa, sagð­ist í við­tali von­ast til að fund­ur­inn skili árangri. „Emb­ætt­is­menn­irnir skildu vand­ann og þá erf­iðu stöðu sem við erum í en það þarf meira til,“ sagði pró­fast­ur­inn.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Ætt­ingj­ar geta þurft að bíða vik­um sam­an eft­ir að geta kvatt ást­vini vegna ann­rík­is hjá prest­um.
    Látnir ættingjar verða ekki kvaddir í útfararathöfn. Þá er það of seint.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár