Stefnir í skort Með­al­aldur danskra presta er hár og árið 2029 mun, að óbreyttu, vanta tugi presta til starfa. Mynd: AFP

Þegar rafvirki breytist í prest

Í Danmörku er til­finn­an­legur skortur á prestum og útlit fyrir að ástandið versni til muna á næstu árum. Þá verður iðu­lega að grípa til ann­arra úrræða til að ekki verði messu­fall. Danskir kven­prestar hafa þó ástæðu til að gleðj­ast.

Löngum var ég læknir minn,

lög­fræð­ingur, prestur,

smiður, kóngur kenn­ar­inn, 

kerra, plógur, hestur.

Í þess­ari kunnu vísu sem ber heitið Basl­hag­mennið lýsir skáldið Stephan G. Steph­ans­son (1853–1927) sumum þeirra fjöl­mörgu starfa sem ein­yrk­inn varð að takast á hendur í búskap­ar­baslinu vestan hafs.   

Hlut­verkin sem Kletta­fjalla­skáldið, eins og Stephan var iðu­lega kall­aður, varð að bregða sér í voru hugs­an­lega fleiri þótt ekki sé á þau minnst í þess­ari fer­skeytlu. Ekki fer sögum af því að Stephan hafi brugðið sér í hlut­verk raf­virkja enda notkun raf­magns­ins, eða raf­ur­magns­ins, ekki jafn­út­breidd á hans dögum og síðar varð. En ef marka má vís­una sinnti skáldið hlut­verki prests, eins og danskur raf­virki gerði ára­tugum síðar, og nánar verður fjallað um síðar í þessum pistli.

Gömul kirkja og aldraður prestur

Þegar íbú­arnir í Sønder Broby á Fjóni mæta til messu í sókn­ar­kirkj­unni þurfa þeir ekki að hafa áhyggjur af að prest­ur­inn kunni ekki til verka. Klerk­ur­inn, sem messar þar um þessar mundir, heitir Einar Fog-Nielsen, hann er 81 árs að aldri og hefur verið prestur í meira en 50 ár, lengst af í Faaborg á Fjóni. Hann fór reyndar á eft­ir­laun árið 2008 og sagð­ist í við­tali hafa verið að velta fyrir sér hvað hann ætti að gera við hemp­una þegar hann kom heim að lok­inni síð­ustu guðs­þjón­ust­unni.

Þær vanga­veltur voru ótíma­bærar því Einar Fog-Nielsen hefur haft meira en nóg að gera þau 15 ár sem liðin eru síðan hann ætl­aði að setj­ast í helgan stein (eins og hann orðar það sjálfur). Fyrsti eft­ir­launa­dag­ur­inn var ekki að kvöldi kom­inn þegar byrjað var að hringja til að spyrja hvort hann gæti ekki tekið að sér að vera íhlaupa­prestur. Einar Fog-Nielsen sagði já við beiðn­inni en sagði að sig hefði ekki grunað að hann yrði enn að messa og þjón­usta 15 árum síðar. Hann hefur gert samn­ing við sókn­ar­nefnd­ina um að ann­ast guðs­þjón­ustur og önnur emb­ætt­is­verk fram yfir næstu páska. Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagð­ist Einar Fog-Nielsen vera við góða heilsu og hafa gaman af að þjóna söfn­uð­inum en auð­vitað væri æski­leg­ast að fá fastan prest til starfa „en prestar eru ekki gripnir upp af göt­unni“ sagði Einar Fog-Nielsen, sem hafði lög að mæla.

Prestaskortur blasir við

Um nokk­urra ára skeið hefur blasað við að ef ekk­ert yrði að gert væri fram undan mik­ill skortur á prestum. Með­al­aldur danskra presta er hár og árið 2029 mun, að óbreyttu, vanta tugi presta til starfa. Árið 2018 lagði sér­stök nefnd á vegum kirkj­unnar til að fólki með háskóla­menntun í til­teknum greinum yrði gef­inn kostur á styttra námi en hefð­bund­inni guð­fræði­menntun og gæti að því loknu starfað sem prestar.

„Lars raf­virki féllst á að taka verk­efnið að sér, hann hafði margoft sótt messu og vissi vel hvernig venju­legar sunnu­dags­messur fara fram“

Frumvarp um þetta var sam­þykkt á danska þing­inu og lögin gilda til árs­ins 2030. Miðað er við að námið taki tvö og hálft ár og að því loknu geti við­kom­andi sótt um prests­emb­ætti. Á síð­asta ári byrj­uðu 70 nem­endur í þessu „sér­námi“ eins og það er kallað á vef kirkju­mála­ráðu­neyt­is­ins, en sam­tals eru um 2.400 prestar starf­andi í Danmörku. Presta­skort­ur­inn er nú þegar umtals­verður en til að ekki þurfi að fella niður aug­lýstar guðs­þjón­ustur er gripið til leik­manna ef ekki tekst að útvega afleys­inga­prest. 

Rafvirki hleypur í skarðið

Á fimmtu­dags­kvöldi fyrir tveimur vikum hringdi sím­inn hjá Lars Prier Andr­e­a­sen raf­virkja, sem býr í Roslev á Norður-Jótlandi. Í sím­anum var for­maður sókn­ar­nefndar Salling pró­fasts­dæmis en áður­nefndur Lars á sæti í sókn­ar­nefnd­inni. „Nú er illt í efni, það á að messa á sunnu­dag­inn, prest­ur­inn er veikur og það er eng­inn afleys­inga­prestur fáan­legur, þeir eru eins og prest­ur­inn, allir með Covid eftir ferð til Finn­lands,“ sagði sókn­ar­nefnd­ar­for­mað­ur­inn. „Já,“ sagði Lars raf­virki, „og hvað á ég að gera í því?“ „Það sem þú átt að gera í því er að messa á sunnu­dag­inn,“ var svarið. Lars raf­virki féllst á að taka verk­efnið að sér, hann hafði margoft sótt messu og vissi vel hvernig venju­legar sunnu­dags­messur fara fram.

Hann fékk jafn­framt að vita að hann mætti ekki taka til alt­aris, ekki skíra og ekki fara með bless­un­ar­orð. „Hvað með hempu?“ spurði Lars raf­virki. „Nei, mátt ekki skrýð­ast hempu, verður að láta jakka­föt duga,“ sagði sókn­ar­nefnd­ar­for­mað­ur­inn. Skemmst er frá því að segja að guðs­þjón­ustan fór fram á til­teknum tíma, fremur fámennt var í kirkj­unni þennan dag en Lars raf­virki sagði að kirkju­gestir hefðu klappað sér á öxl­ina að athöfn­inni lok­inni, nokkrir hefðu reyndar sagt að hann mætti gjarnan æfa sig meira.

Þessi frá­sögn af raf­virkj­anum sem hljóp í skarðið fyrir prest­inn er dæmi­gerð fyrir ástandið í dönsku kirkj­unni, sem æ oftar þarf að leita á náðir leik­manna til að messa.  

Áratuga barátta danskra kvenpresta ber loks árangur

Í grein sem birt­ist í Kjarn­anum fyrir rúmu ári, 4. sept­em­ber 2022, undir yfir­skrift­inni „Ekki allir þjónar jafnir í dönsku guðs­hús­unum“, var fjallað ítar­lega um bar­áttu kven­presta fyrir jafn­rétti til starfa. Ekki skal inni­hald þess pistils end­ur­tekið hér en hann má finna á hlekknum hér fyrir neðan. Ástæða þess að þetta er nefnt hér er að í nið­ur­lagi pistils­ins áður­nefnda kom fram að Ane Halsboe-Jørg­en­sen, þáver­andi ráð­herra kirkju­mála, væri til­bú­inn að skoða laga­breyt­ingar varð­andi skipan presta. Þetta var sem sé fyrir ári. Nú hefur það gerst að Louise Schack Elholm, sem nú er ráð­herra kirkju­mála, hefur ákveðið að lögum um skipan presta verði breytt. 

Breyt­ingin er í stuttu máli að í jafn­rétt­islögum frá 1978 var í gildi gömul und­an­þágu­heim­ild (frá árinu 1919) varð­andi emb­ætti presta. Und­an­þágan fólst í því að að sókn­ar­nefndir gátu ákveðið að ganga fram­hjá kven­kyns umsækj­endum um prests­emb­ætti. Nú verður þetta und­an­þágu­á­kvæði afnumið. Einn þeirra kven­presta sem beitt hefur sér hvað mest í þessu máli er Meghan Welsch Jakobsen sem réðst til starfa í Gudhjem á Borg­und­ar­hólmi. Þar mætti hún miklum for­dómum og sagði á end­anum upp og er nú prestur á Sjálandi. Í við­tali við danska útvarpið fyrir nokkrum dögum sagð­ist hún ákaf­lega glöð yfir að fram­vegis sætu kven­prestar við sama borð og karlar og ekki yrði lengur heim­ilt að synja kven­prestum um emb­ætti á grund­velli kyns.           


Eftir að greinin hér að ofan fór í prent, og birt­ist í Heim­ild­inni 24.11, hefur Troels Lund Poulsen nýkjör­inn for­maður Venstre gert breyt­ingar á ráð­herra­liði flokks­ins. Morten Dahlin er nýr ráð­herra sveita­stjórna – og kirkju­mála og enn­fremur nor­rænnar sam­vinnu í stað Louise Schack Elholm sem ekki á lengur sæti í rík­is­stjórn­inni. Stjórn­mála­skýrendur telja að með þess­ari breyt­ingu vilji Troels Lund Poulsen leggja aukna áherslu á mál­efni lands­byggð­ar­innar og bænda.
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár