Bjarni kallar umhugsun Höllu um þingrof formsatriði

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki hafa átt frek­ari sam­töl við leið­toga hinna stjórn­ar­flokk­anna. Hann er mættur á Bessa­staði til að biðja form­lega um heim­ild til að rjúfa þing. Á tröppum Bessa­staða tal­aði hann um þann umhugs­un­ar­frest sem Halla Tóm­as­dóttir hefur ákveðið að taka forms­at­riði.

„Við höfum ekki átt neinn fund frekar en ég geri svona frekar ráð fyrir því,“ sagði Bjarni við fjöl­miðla á tröppum Bessa­staða. „Það sem við erum í raun og veru að gera er að stytta kjör­tíma­bilið hressi­lega.“

Bjarni sagð­ist þegar hafa talað við Höllu Tóm­as­dóttur for­seta um þing­rofs­beiðn­ina. „Hún hefur tjáð mér að hún vilji meta stöð­una. Ég geri ekk­ert athuga­semdir við það,“ sagði Bjarni.

Í huga Bjarna er það samt forms­at­riði. „Það getur hins vegar haft tals­verð áhrif hvort þessum forms­at­riðum líkur á morgun eða mið­viku­dag­inn, og getur haft áhrif á það hvort kosið verði 23. eða 30. nóv­em­ber.“ 

Hann á ekki von á öðru en að Halla fall­ist á þing­rof. 

„Já ég tel öll rök hníga að því og það væri afar óvenju­legt ef það myndi ekki ganga eftir,“ sagði hann áður en hann gekk á fund for­seta. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Má ekki segja sama og í tölvuspilunum : Game over. - Búið spil
    0
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Það er ekki hægt að búa við það við framkvæmd almennra kosninga í landinu að það ríki almennur vafi um hvort rétt hafi verið staðið að málum.

    Nema stundum er það auðvitað bara formsatriði.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Hvað? Bjarni? stjórnar hann ekki Höllu? Hann gerði ráð fyrir því.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosn­ingar

Síðan Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur því ítrekað verið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem komið er hefur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­ar­glasi ekki runnið út. Hann virð­ist ná að snúa því aftur og aftur rétt áður en síð­ustu sand­kornin detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyrir inn­an­búð­ar­at­lögu gegn sér fyrir kosn­ingar, segir stjórn­mála­fræð­ingur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár