„Ég þekki hana ekki öðruvísi en sem stelpu“

Jón Ein­ars­son er faðir trans stúlku sem í leik­skóla vildi leika sér með stelpu­dót og klæð­ast kjólum. Nafni hennar var breytt í Þjóðskrá þegar hún var átta ára og í dag er hún 12 ára. „Ef hún væri að koma út sem trans í dag, 12 ára gömul, þá væri þetta eðli­lega meira sjokk fyrir okkur. Ég þekki hana ekki öðru­vísi en sem stelpu,“ segir Jón um dóttur sína.

„Ég þekki hana ekki öðruvísi en sem stelpu“
Faðir Jón segir dóttur sína eins venju­legt barn og hægt er að ímynda sér. Hún er félags­lynd og á skemmti­lega drauma um fram­tíð­ina. Mynd: Golli

Jón Ein­ars­son er tveggja barna faðir 14 ára gam­als drengs og 12 ára gam­allar dóttur. Dóttirin, Indíana Rós, fædd­ist í lík­ama drengs en strax í leik­skóla fór hún að sýna hegðun sem var mjög ólík þeirri sem bróðir hennar hafði sýnt á sama aldri.

„Við höfðum nátt­úr­lega sam­an­burð varð­andi eldri strák­inn upp á að ala upp dreng og hvernig hann lék sér í hasar­leikjum og var eins mik­ill gaur og hægt var en hún var allt öðru­vísi en hann,“ segir Jón.

„Hún vildi alltaf vera með stelp­unum, leika sér með stelpu­dót og vera í stelpu­fötum. Maður hélt alltaf fyrst að þetta væri eitt­hvert tíma­bil eins og maður hefur oft heyrt þannig að við vorum ekk­ert að stressa okkur á þessu en svo kom þetta meira og meira í ljós. Hún vildi bara ein­hvern veg­inn vera stelpa.“

Indíana Rós hafði alltaf verið klædd í strákaföt og þegar bún­inga­dagar voru í …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Börnin okkar

Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út
ViðtalBörnin okkar

Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, er tveggja barna móðir en dóttir hennar kom út sem trans 14 ára gömul. „Fyrstu til­finn­inga­legu við­brögðin voru svo­lítið eins og það hefði verið sparkað harka­lega í mag­ann á mér því ég fór strax að hugsa um hvað henni hlyti að hafa liðið illa und­an­farið. En um leið fann ég fyrir svo mik­illi ást; svo sterkri þörf fyrir að vernda hana,“ segir Guðrún.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár