Biskup Guðrún Karls Helgu­dóttir biskup Íslands er stolt móðir trans barns. Hún segir mikið hug­rekki fel­ast í því að koma út sem trans mann­eskja. Mynd: Golli

Fann fyrir sterkri þörf fyrir að vernda dóttur sína eftir að hún kom út

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, er tveggja barna móðir en dóttir hennar kom út sem trans 14 ára gömul. „Fyrstu til­finn­inga­legu við­brögðin voru svo­lítið eins og það hefði verið sparkað harka­lega í mag­ann á mér því ég fór strax að hugsa um hvað henni hlyti að hafa liðið illa und­an­farið. En um leið fann ég fyrir svo mik­illi ást; svo sterkri þörf fyrir að vernda hana,“ segir Guðrún.

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, eign­að­ist dóttur þegar hún var 22 ára gam­all guð­fræði­nemi. „Það breytt­ist allt við að verða for­eldri. Þessi óeig­in­gjarna og tak­marka­lausa ást, sem er ólík allri annarri, verður svo sterk.“ Hún var 38 ára þegar hún eign­að­ist seinna barnið sem í dag heitir Frigg.

„Mér finnst vera mjög erfitt að tala um hana sem „hann“ í dag; líka þegar ég tala um hana sem barn. Ég nota alltaf „hún“, enda er hún stúlka.“

Hún segir að upp­á­halds­leikir Friggjar hafi verið legó og þrautir; eitt­hvað sem krafð­ist þess að hún þurfti að hugsa svo­lítið, eins og Guðrún orðar það. „Það hefur alltaf verið hennar og í dag er hún mikil raun­greina­mann­eskja.“

Svo liðu árin.

„Ég varð aldrei vör við að hún væri eitt­hvað sér­stak­lega stelpu­leg, ef hægt er að segja sem svo, eða léki sér með eitt­hvað sem væri frekar tengt staðalí­myndum …

Kjósa
79
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Börnin okkar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár