Múgæsingur hafi skapast þegar byrjað var að selja sumarferðir í íshella

Fjár­hags­legir hvatar og þrýst­ingur stórra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja á að staðið væri við ferðir gætu hafa aukið hættu­á­stand í ferða­þjón­ustu segir Borgar Ant­ons­son leið­sögu­maður. „Öryggið er númer tvö, pen­ing­arnir númer eitt,“ segir hann.

Múgæsingur hafi skapast þegar byrjað var að selja sumarferðir í íshella
Borgar Ant­ons­son starfar við íshella­ferðir. Íshella­myndin er tekin á Breiða­merk­ur­jökli árið 2021. Mynd: Samsett / Heimildin

„Vanda­málið er stóru ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins. Þetta slys er ekki þjóð­garð­inum að kenna og ekki ráðu­neyt­unum. Þetta er fyrst og fremst fyr­ir­tækj­unum að kenna sem eru að selja íshella­ferðir að sumri til.“

Þetta segir leið­sögu­mað­ur­inn Borgar Ant­ons­son, sem hefur séð um íshella­ferðir á Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­liðin átta ár, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann segir að þann tíma sem hann hafi unnið við það hafi eng­inn boðið upp á íshella­ferðir að sum­ar­lagi. „Heima­fyr­ir­tækin hér á Horna­firði myndu aldrei koma nálægt þessu því við vitum að við getum ekki tryggt öryggi gest­anna. Við vitum að þetta er hættu­legt.“

Borgar segir að fyr­ir­tækið Ice Pic Journeys, sem stóð fyrir ferð á Breiða­merk­ur­jökul síð­ast­lið­inn sunnu­dag, sem end­aði þannig að einn lést og önnur slas­að­ist alvar­lega, hafi byrjað að bjóða upp á sum­ar­ferðir í íshell­ana í ár. „Þá skap­að­ist múgæs­ingur hjá stóru ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­unum fyrir sunnan. Það er stans­laus pressa frá þessum fyr­ir­tækjum að græða meiri pen­inga,“ segir …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigtryggur Jónsson skrifaði
    Múgæsing er eins og múgsefjun, kvenskynsorð. Orðið "múgæsingur" er því ekki til. Annars ágæt grein :)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðsföll ferðamanna eru ekki skráð sérstaklega
GreiningStjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðs­föll ferða­manna eru ekki skráð sér­stak­lega

Mikil umræða um öryggi ferða­manna fór af stað í kjöl­far slyss­ins í Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Fréttir af alvar­legum slysum meðal ferða­manna birt­ast reglu­lega í fjöl­miðlum og vekja gjarnan óhug. Hins vegar er hvergi að finna mið­læga skrá þar sem haldið er utan um tíðni slysa á meðal ferða­manna hér á landi.
Engu munaði að stórslys yrði í Kötlujökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryllingsmynd“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Engu mun­aði að stór­slys yrði í Kötlu­jökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryll­ings­mynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.
„Sem ráðherra og manneskju þykir mér þetta afskaplega leitt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Sem ráð­herra og mann­eskju þykir mér þetta afskap­lega leitt“

Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að koma hefði mátt í veg fyrir slysið á Breiða­merk­ur­jökli. „Það var búið að vara við þessu og ekki gert meira með það.“ Hún seg­ist búin að kanna líðan kon­unnar sem slas­að­ist og missti unnusta sinn í slys­inu og koma á fram­færi skila­boðum um að yfir­völd séu boðin og búin að aðstoða hana eftir fremsta megni.
„Það sem gerðist á sunnudaginn er á margan hátt óvenjulegt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Það sem gerð­ist á sunnu­dag­inn er á margan hátt óvenju­legt“

Banaslys eins og það sem varð á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi eru ekki mjög algeng, að mati upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjargar. Hann segir björg­un­ar­sveit­irnar enn vel í stakk búnar til þess að bregð­ast við óhöppum og slysum þrátt fyrir fjölgun ferða­manna og að slíkum til­vikum hafi ekki fjölgað í takt við vax­andi ferða­manna­straum.
Hræðilegur atburður sem ýtir við okkur
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Hræði­legur atburður sem ýtir við okkur

Ferða­mála­stjóri telur tíma­bært að koma aftur böndum á þann fjölda sem fer upp á Vatna­jökul hverju sinni. Álags­stýr­ing tíðk­að­ist fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur en hún var felld úr gildi í far­aldr­inum. Banaslys varð á jökl­inum um síð­ustu helgi en örygg­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem fór ferð­ina lá ekki fyrir hjá Ferða­mála­stofu, enda er inn­lagnar slíkrar áætl­unar ekki kraf­ist við umsókn um leyfi. Það fyr­ir­komu­lag er nú til end­ur­skoð­unar.
„Við vitum að þetta er hættulegt“ – en enginn ber ábyrgðina
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Við vitum að þetta er hættu­legt“ – en eng­inn ber ábyrgð­ina

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni og drögum að áhættu­mati úr skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar hefðu íshella­ferðir átt að vera bann­aðar dag­inn sem banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli, sökum hita­stigs. Hug­myndir um bætt öryggi ferða­manna hafa strandað, áhættu­mat hefur ekki verið fram­kvæmt og hver bendir á annan þegar kemur að end­an­legri ábyrgð. Enda er engin stök stjórn­sýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna hér á landi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár