Engu munaði að stórslys yrði í Kötlujökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryllingsmynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.

Engu munaði að stórslys yrði í Kötlujökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryllingsmynd“
Farg Ísinn sem fólkið á mynd­inni stendur undir hrundi niður stuttu síðar. Mynd: Jónas Jónasson

Jónas Welding Jónasson stóð með 16 við­skipta­vinum sínum við foss inni í Kötlu­jökli þegar hann leit upp og sá hvernig ísfoss­inn hafði skorið sex metra bita úr ísnum sem var far­inn að losna úr loft­inu. Jónas fyllt­ist óhug og dreif hóp­inn út hið snarasta. Augna­bliki síðar hrundi ísinn úr loft­inu, beint ofan á svæðið þar sem hóp­ur­inn hafði staðið. Öflugur gustur blés aftan á hóp­inn. 

Þetta var í ágúst­mán­uði árið 2018 og Jónas var starf­andi jökla­leið­sögu­maður að sýna fólki íshelli í Kötlu­jökli. Minn­ingar um atvikið og það hve litlu mun­aði að stór­slys yrði hafa sótt á hann síðan banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag þegar karl­maður lést og barns­haf­andi kona slas­að­ist. Þau voru í skipu­lagðri ferð með leið­sögu­manni á vegum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Ice Pic Journeys. 

Jónas Jónassonstarf­aði sem jökla­leið­sögu­maður um ára­bil.

Jónas segir vitað mál að eitt­hvað slíkt …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Það hættulegasta við íshellaferð er að þurfa að aka um þjóðveg númer eitt. En landið okkar er lifandi og síbreytilegt. Það sem er mögulega í lagi í fyrramálið er það svo ef til vill ekki eftir hádegið. Og alveg eins og að við þurfum að hafa augun hjá okkur á þjóðveginum þurfum við líka uppi á jökli. Ekki láta einhvern segja okkur að allt sé í lagi. Við þurfum að kanna það sjálf í hvert einasta skipti.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnleysi í ferðaþjónustu

GreiningStjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðs­föll ferða­manna eru ekki skráð sér­stak­lega

Mikil umræða um öryggi ferða­manna fór af stað í kjöl­far slyss­ins í Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Fréttir af alvar­legum slysum meðal ferða­manna birt­ast reglu­lega í fjöl­miðlum og vekja gjarnan óhug. Hins vegar er hvergi að finna mið­læga skrá þar sem haldið er utan um tíðni slysa á meðal ferða­manna hér á landi.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Sem ráð­herra og mann­eskju þykir mér þetta afskap­lega leitt“

Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að koma hefði mátt í veg fyrir slysið á Breiða­merk­ur­jökli. „Það var búið að vara við þessu og ekki gert meira með það.“ Hún seg­ist búin að kanna líðan kon­unnar sem slas­að­ist og missti unnusta sinn í slys­inu og koma á fram­færi skila­boðum um að yfir­völd séu boðin og búin að aðstoða hana eftir fremsta megni.

9 mín. lestur

FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Það sem gerð­ist á sunnu­dag­inn er á margan hátt óvenju­legt“

Banaslys eins og það sem varð á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi eru ekki mjög algeng, að mati upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjargar. Hann segir björg­un­ar­sveit­irnar enn vel í stakk búnar til þess að bregð­ast við óhöppum og slysum þrátt fyrir fjölgun ferða­manna og að slíkum til­vikum hafi ekki fjölgað í takt við vax­andi ferða­manna­straum.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Hræði­legur atburður sem ýtir við okkur

Ferða­mála­stjóri telur tíma­bært að koma aftur böndum á þann fjölda sem fer upp á Vatna­jökul hverju sinni. Álags­stýr­ing tíðk­að­ist fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur en hún var felld úr gildi í far­aldr­inum. Banaslys varð á jökl­inum um síð­ustu helgi en örygg­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem fór ferð­ina lá ekki fyrir hjá Ferða­mála­stofu, enda er inn­lagnar slíkrar áætl­unar ekki kraf­ist við umsókn um leyfi. Það fyr­ir­komu­lag er nú til end­ur­skoð­unar.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Við vitum að þetta er hættu­legt“ – en eng­inn ber ábyrgð­ina

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni og drögum að áhættu­mati úr skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar hefðu íshella­ferðir átt að vera bann­aðar dag­inn sem banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli, sökum hita­stigs. Hug­myndir um bætt öryggi ferða­manna hafa strandað, áhættu­mat hefur ekki verið fram­kvæmt og hver bendir á annan þegar kemur að end­an­legri ábyrgð. Enda er engin stök stjórn­sýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna hér á landi.

14 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár