Fréttamál

Banaslys á Breiðamerkurjökli

Greinar

Engu munaði að stórslys yrði í Kötlujökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryllingsmynd“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Engu mun­aði að stór­slys yrði í Kötlu­jökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryll­ings­mynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.
„Sem ráðherra og manneskju þykir mér þetta afskaplega leitt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Sem ráð­herra og mann­eskju þykir mér þetta afskap­lega leitt“

Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að koma hefði mátt í veg fyrir slysið á Breiða­merk­ur­jökli. „Það var búið að vara við þessu og ekki gert meira með það.“ Hún seg­ist búin að kanna líðan kon­unnar sem slas­að­ist og missti unnusta sinn í slys­inu og koma á fram­færi skila­boðum um að yfir­völd séu boðin og búin að aðstoða hana eftir fremsta megni.
„Það sem gerðist á sunnudaginn er á margan hátt óvenjulegt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Það sem gerð­ist á sunnu­dag­inn er á margan hátt óvenju­legt“

Banaslys eins og það sem varð á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi eru ekki mjög algeng, að mati upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjargar. Hann segir björg­un­ar­sveit­irnar enn vel í stakk búnar til þess að bregð­ast við óhöppum og slysum þrátt fyrir fjölgun ferða­manna og að slíkum til­vikum hafi ekki fjölgað í takt við vax­andi ferða­manna­straum.
Hræðilegur atburður sem ýtir við okkur
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Hræði­legur atburður sem ýtir við okkur

Ferða­mála­stjóri telur tíma­bært að koma aftur böndum á þann fjölda sem fer upp á Vatna­jökul hverju sinni. Álags­stýr­ing tíðk­að­ist fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur en hún var felld úr gildi í far­aldr­inum. Banaslys varð á jökl­inum um síð­ustu helgi en örygg­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem fór ferð­ina lá ekki fyrir hjá Ferða­mála­stofu, enda er inn­lagnar slíkrar áætl­unar ekki kraf­ist við umsókn um leyfi. Það fyr­ir­komu­lag er nú til end­ur­skoð­unar.
„Við vitum að þetta er hættulegt“ – en enginn ber ábyrgðina
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Við vitum að þetta er hættu­legt“ – en eng­inn ber ábyrgð­ina

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni og drögum að áhættu­mati úr skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar hefðu íshella­ferðir átt að vera bann­aðar dag­inn sem banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli, sökum hita­stigs. Hug­myndir um bætt öryggi ferða­manna hafa strandað, áhættu­mat hefur ekki verið fram­kvæmt og hver bendir á annan þegar kemur að end­an­legri ábyrgð. Enda er engin stök stjórn­sýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna hér á landi.
„Hugur okkar er hjá aðstandendum þess sem lést og öllum þeim sem lentu í slysinu“
FréttirBanaslys á Breiðamerkurjökli

„Hugur okkar er hjá aðstand­endum þess sem lést og öllum þeim sem lentu í slys­inu“

Stofn­endur Ice Pic Journeys hafa sent frá sér til­kynn­ingu þar sem þeir harma banaslysið sem varð í ferð á þeirra vegum um helg­ina á Breiða­merk­ur­jökli. „Við lítum málið alvar­legum augum og munum halda áfram að vinna náið með lög­reglu og yfir­völdum til að tryggja að málið verði rann­sakað af fyllstu kost­gæfni,“ segir þar.
Stofnanda Ice Pic Journeys vikið úr stjórn Félags fjallaleiðsögumanna
FréttirBanaslys á Breiðamerkurjökli

Stofn­anda Ice Pic Journeys vikið úr stjórn Félags fjalla­leið­sögu­manna

Stjórn Félags fjalla­leið­sögu­manna Íslands hefur ákveðið að víkja Mike Reid, öðrum stofn­anda Ice Pic Journeys, tíma­bundið úr stjórn­inni á meðan rann­sókn stendur yfir á slys­inu sem varð í Breiða­merk­ur­jökli á sunnu­dag þar sem einn ferða­maður lét lífið. Mike hefur einnig verið settur af sem kenn­ari hjá félag­inu.
„Saman ákváðu þessir tveir klikkuðu Bandaríkjamenn að stofna Ice Pic Journeys“
FréttirBanaslys á Breiðamerkurjökli

„Saman ákváðu þessir tveir klikk­uðu Banda­ríkja­menn að stofna Ice Pic Journeys“

Setn­ingin „Together these two crazy Americans decided to start the Ice Pic Journeys team“ er meðal þess sem hefur verið fjar­lægt af síðu fyr­ir­tæk­is­ins sem sá um jökla­ferð­ina á sunnu­dag þar sem einn lést og ein slas­að­ist alvar­lega. Annar stofn­and­inn hefur kennt nám­skeið í jökla­ferðum þar sem varað er við ferðum í íshella á sumrin. Í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2023 kemur fram að rekstr­ar­tekjur félags­ins hafi hækkað um nálega 150 pró­sent á milli ára.

Mest lesið undanfarið ár