Það sem hátekjulistinn sýnir okkur

Þeir sem selja kvót­ann eða fá hann í arf eru áber­andi á toppi hátekju­lista Heim­ild­ar­innar 2023, sem sýnir tekju­hæsta 1 pró­sent lands­manna. Einnig er áber­andi hverjir sjást ekki – efna­fólk sem felur slóð sína eða borgar skatta erlendis.

Það sem hátekjulistinn sýnir okkur
Salan á Ós Fjöl­skyldan sem seldi útgerð­ar­fé­lagið Ós og Leo Seafood trónir á toppi Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar 2023. Vinnslu­stöðin keypti og á mynd­inni eru Daði Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Leo Seafood, Viðar Sig­ur­jóns­son, skip­stjóri, Sigurjón Ósk­ars­son og eig­in­kona hans, Sig­ur­laug Alfreðs­dóttir, Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, Andrea Atla­dóttir, fjár­mála­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, Þóra Hrönn Sig­ur­jóns­dóttir, fjár­mála­stjóri Óss og Gylfi Sig­ur­jóns­son skip­stjóri.

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar árið 2023 sýnir hvernig auð­æfin sem fylgja kvóta­kerf­inu raun­ger­ast þegar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru seld háu verði eða færð nýrri kyn­slóð kvóta­erf­ingja.

Ólíkt þeim tekju­listum sem aðrir fjöl­miðlar birta inni­heldur hátekju­listi Heim­ild­ar­innar upp­lýs­ingar um fjár­magnstekjur ein­stak­linga. Listi án fjár­magnstekna getur vissu­lega verið gagn­legur við að sýna þróun launa­tekna þeirra efna­mestu, sér­stak­lega innan ákveð­inna geira, en er vill­andi þegar kemur að raun­veru­legum tekjum rík­ustu Íslend­ing­anna.

Haraldur Ingi Þor­leifs­sonSá sem til­kynntur hefur verið sem tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn 2023 er í raun í 10. sæti þegar tekið hefur verið til­lit til fjár­magnstekna.

Þannig var Haraldur Ingi Þor­leifs­son, stofn­andi hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ueno, kynntur í vik­unni sem tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn. Þrátt fyrir háar útsvars­skyldar tekjur er hann þó langt því frá sá tekju­hæsti sam­kvæmt álagn­ing­ar­skrám Skatts­ins í fyrra og ekki skatta­kóngur heldur. Þeir rúmu 1,3 millj­arðar króna sem Haraldur fékk í launa- og fjár­magnstekjur í fyrra duga honum ein­ungis í 10. sæti hátekju­list­ans og í …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Flestum mundi detta í hug að sjá Guðmund í Brimi og Þorstein Má á toppnum. En það er ekki allt sem sýnist ...
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár