Íslenskir rithöfundar standi ekki í vegi Rafbókasafnsins

Formaður Rit­höf­unda­sam­bands­ins segir að íslenskir höf­undar vilji gjarnan að hljóð­bækur þeirra séu aðgengi­legar á Raf­bóka­safn­inu en að útgef­endur eigi oft­ast hljóð­bóka­rétt­indin.

Íslenskir rithöfundar standi ekki í vegi Rafbókasafnsins
Margrét Tryggva­dóttir Formaður Rit­höf­unda­sam­bands­ins segir það ekki standa á íslenskum höf­undum að bækur þeirra fari á Raf­bóka­safnið. Mynd: Samfylkingin

Formaður Rit­höf­unda­sam­bands Íslands segir að íslenskir höf­undar vilji gjarnan að bækur þeirra séu aðgengi­legar á Raf­bóka­safn­inu. Þeir séu hins vegar ekki hand­hafar hljóð­bóka­rétt­inda sinna nema í und­an­tekn­inga­til­fellum.

Heim­ildin greindi frá því á dög­unum að langir biðlistar væru eftir vin­sælum titlum hljóð­bóka hjá Raf­bók­safn­inu en að íslenskar bækur séu almennt ekki aðgengi­legar þar á hljóð­bóka­formi. Úlf­hildur Dags­dóttir verk­efna­stýra safns­ins sagði að not­enda­fjöldi þess væri ekki nægur og að fjár­magn skorti til að kaupa inn fleiri ein­tök og titla.

Margrét Tryggva­dóttir, for­maður Rit­höf­unda­sam­bands­ins, segir það ekki standa á íslenskum rit­höf­undum að bækur þeirra fari á Raf­bóka­safnið. „Úlf­hildur hefur látið í það skína að höf­undar vilji ekki að bækur þeirra fari þarna inn,“ segir hún. „Ég kann­ast bara ekki við það og veit ekki betur en að allir höf­undar séu áfram um það að þeirra bækur fari inn á öll bóka­söfn.“

Hún segir hins vegar að fæstir íslenskir höf­undar fram­leiði eigin hljóð­bækur og að útgef­endur sjái almennt um fram­leiðsl­una en slíkt sé val­kvætt í samn­ingum við höf­unda. „Höfundar geta haldið hljóð­bóka­rétt­ind­unum hjá sér og valið að fram­leiða ekki hljóð­bækur eða gert það sjálfir. Það er hins vegar tölu­verð fram­kvæmd, þú gerir það ekk­ert heima hjá þér með sím­ann þinn.“

Útgefendur fái almennt lítið frá safninu

Raf­bóka­safnið er sam­starfs­verk­efni Borg­ar­bóka­safns Reykja­víkur og Lands­kerfis bóka­safna og er með samn­ing við banda­rísku raf­bóka­veit­unni Over­drive. Margrét seg­ist sjálf vera not­andi hjá safn­inu og að hún hlusti gjarnan á hljóð­bækur þaðan. „Ég mundi svo gjarnan vilja að bæk­urnar mínar væru aðgengi­legar þarna en það er bara ekki í mínum höndum,“ segir hún.

„Það er höf­undum að meina­lausu að þetta sé þarna inni“

Margrét segir fyr­ir­stöð­una hafa verið hjá útgef­endum. „Þeir hafa verið hræddir um, og kannski eðli­lega, að þeir fái ekk­ert fyrir sinn snúð. Þeir fá almennt ekk­ert nema eitt bók­verð fyrir hverja bók sem fer inn á bóka­safn á meðan höf­undar fá greiðslur úr Bóka­safns­sjóði. Þannig að það er höf­undum að meina­lausu að þetta sé þarna inni,“ segir hún.

Hvað varðar greiðslur fyrir útlán á Raf­bóka­safn­inu segir Margrét að almennt fái höf­undar meira fyrir þau en fyrir streymi hjá áskrift­ar­þjón­ustum eins og Storytel. Greiðslur fyrir útlán koma úr Bóka­safns­sjóði höf­unda. „Fyrir skáld­sögu í með­al­lengd þá hefur Bóka­safns­sjóður verið að koma betur út en Storytel og fyrir barna­bækur og allt undir skáld­sagna­lengd kemur Bóka­safns­sjóður miklu betur út,“ segir hún.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár