Mesti sjávarhiti í 400 ár ógnar tilvist Kóralrifsins mikla

Hópur ástr­al­skra vís­inda­manna safn­aði bor­kjörnum úr Kór­al­rif­inu mikla, las í „árhringi“ kór­all­anna og komst að slá­andi nið­ur­stöðu.

Mesti sjávarhiti í 400 ár ógnar tilvist Kóralrifsins mikla
Skjald­baka á sundi við Lizard-eyju sem er hluti af Kór­al­rif­inu mikla í apríl á þessu ári. Mynd: AFP

Sjáv­ar­hiti í og við Kór­al­rifið mikla undan ströndum Ástralíu hefur ekki verið meiri í 400 ár. Þetta er hægt að lesa úr nokk­urs konar „árhringjum“ kór­all­anna. Nálgun þess­ari, til að meta áhrif lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum, hefur sjaldan verið beitt en sýnir, að mati vís­inda­mann­anna sem hana fram­kvæmdu, að álag á þetta stærsta staka vist­kerfi jarðar hefur ekki verið meira í margar aldir.

„Jörðin er að tapa einu helsta kenni­leiti sínu“
Benjamin Henley,
Háskól­anum í Melbourne.

Kór­al­rifið mikla teygir sig um 2.400 kíló­metra undan ströndum Queensland-fylkis í Ástralíu. Það hefur verið á heimsminja­skrá UNESCO frá árinu 1981. Und­an­farin ár hefur fölnun þess, sem er að ein­hverju leyti hluti af nátt­úru­legu ferli, verið meiri og varað lengur en áður þekkt­ist. Skýr­ingin er sögð hækk­andi sjáv­ar­hiti. Og þegar betur er að gáð, líkt og hópur vís­inda­manna úr háskólum víðs­vegar um Ástralíu hefur nú gert, var hita­stigið í og við rifið stöðugt í hund­ruð ára en hóf að hækka óeðli­lega um alda­mótin 1900. Þá hækkun, sem enn er í gangi, má rekja til mann­anna verka að mati vís­inda­hóps­ins.

Til að kom­ast að þessum nið­ur­stöðum sínum voru nýttir borkjarnar úr kóröllum rifs­ins sem reynd­ust geyma í sér upp­lýs­ingar um sum­ar­hita hafs­ins aftur til árs­ins 1618. Til við­bótar voru not­aðar marg­vís­leg önnur gögn, m.a. úr gervi­tunglum og frá skipum.

Frá árinu 2016 hefur mikil fölnun (e. bleaching) átt sér stað fimm sinnum á Kór­al­rif­inu mikla. Fölunin er við­bragð við álagi vegna hita og ef hún stendur lengi endar ferlið með dauða kór­all­anna. „Jörðin er að tapa einu helsta kenni­leiti sínu,“ hefur Reuters-frétta­stofan eftir Benjamin Henley, vís­inda­manni við Háskól­ann í Melbourne og einum höf­unda rann­sókn­ar­innar.

Kóralrif gegna marg­vís­legu hlut­verki. Þau vernda t.d. strandir við land­rofi, eru heim­kynni þús­unda teg­unda fiska og ann­arra líf­vera og eru í seinni tíð mik­il­væg tekju­lind í ferða­þjón­ustu.

Umfangs­mikil fölnun hefur orðið á kór­al­rifjum á 54 svæðum í heim­inum frá því í febr­úar í fyrra. Það ár var það heitasta í sög­unni og útlit er fyrir að árið í ár slái það met.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár