Loftslagskvíði nefndur sem ástæða fyrir lækkandi fæðingartíðni

Félags­fræð­ingur segir Íslend­inga nefna lofts­lagskvíða þegar spurt er af hverju fólk velji barn­leysi. Áhyggjur af ótryggri fram­tíð spili inn í lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni en séu þó ekki meg­in­á­stæða fyrir henni.

Loftslagskvíði nefndur sem ástæða fyrir lækkandi fæðingartíðni
Sunna Kristín Sím­on­ar­dóttir Aðjúnkt í félags­fræði segir alþjóð­legar rann­sóknir mis­vísandi þegar kemur að því að skýra lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni. Mynd: Golli

Þrátt fyrir að skara að mörgu leyti fram úr öðrum löndum hvað varðar stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur hafa Norð­ur­löndin horft upp á fæð­ing­ar­tíðni lækka á und­an­förnum árum. Þessi þróun hefur vakið spurn­ingar hjá rann­sak­endum og það hefur verið skoðað sér­stak­lega hvort spár um ham­farir vegna lofts­lags­breyt­inga spili inn í ákvarð­anir ungs fólks þessa dag­ana um að eign­ast ekki börn.

Í nýrri skýrslu Nor­dregio, rann­sókn­ar­stofn­unar um byggða­þróun og skipu­lags­mál, sem út kom í júní, er lofts­lagskvíði nefndur sem ein af mögu­legum ástæðum fyrir því að fólk eign­ist ekki börn. „Fólk skynjar áhættu­þætti eins og lofts­lags­breyt­ingar, stríð, hryðju­verk og heims­far­aldra sem eitt­hvað sem ekki er hægt að stjórna og það er erfitt að taka þessa þætti inn í spár um fæð­ing­ar­tíðni,“ segir í skýrsl­unni. „Athugið að börn fædd í dag verða mjög lík­lega á lífi árið 2100 þegar lofts­lag mun hafa breyst veru­lega.“

„Athugið að börn fædd í dag verða mjög lík­lega …
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár