Smitaðist af hermannaveiki í Holtunum

Ein mann­eskja greind­ist með her­manna­veiki í Vatns­holti. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur hefur þegar gripið til aðgerða til að hreinsa bakt­er­í­una úr lögnum.

Smitaðist af hermannaveiki í Holtunum
Háteigs­kirkja Bakt­er­ían fannst í einu húsi í Holtunum í Reykja­vík, hverf­inu sem Háteigs­kirkja prýðir. Mynd: Sigurrós Jóna Oddsdóttir

Bakt­er­ían sem veldur her­manna­veiki fannst nýverið í vatni í einu húsi í Holtunum í Reykja­vík og veikt­ist ein mann­eskja af her­manna­veiki. Þetta stað­festir Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur.

Að ósk emb­ættis land­lækis tók heil­brigð­is­eft­ir­litið vatns­sýni á Vatns­holti og greind­ist þar bakt­ería í einu húsi. „Hreinsun var gerð sem felst í því að dæla 70 gráðu heitu vatni um kerfið,“ segir í svari Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.

„Aðeins einn veikt­ist en full­frískir veikj­ast yfir­leitt ekki“

„Það er því vænt­an­lega orðið hreint aftur og hafa sýni verið tekin á ný til að stað­festa það og berst nið­ur­staða eftir 10 daga. Málið ætti að vera úr sög­unni. Aðeins einn veikt­ist en full­frískir veikj­ast yfir­leitt ekki.“

Smit áður komið upp

Her­manna­veiki orsakast af bakt­er­í­unni leg­ion­ella pneumophila og eru nátt­úru­leg heim­kynni hennar í vatni. Smit geta orðið þegar svifúði mynd­ast frá vatns­leiðslum eða vatns­tönkum og berst í önd­un­ar­veg fólks. Alvarleg veik­indi verða helst hjá fólki með und­ir­liggj­andi áhættu­þætti. Eru þeir til dæmis hár aldur, reyk­ingar, lang­vinnir lungna­sjúk­dómar, ónæm­is­skerð­ing, áfeng­is­sýki og nýrna­bilun. Þá eiga smit milli mann­fólks sér ekki stað.

Bakt­er­ían sem veldur her­manna­veiki

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur finnst bakt­er­ían endrum og eins. Getur það gerst þegar vatns­kerfi í íbúðum eru ekki notuð í nokkra mán­uði, til dæmis vegna dvalar erlendis.

Árið 2019 veikt­ist einn íbúi á hjúkr­un­ar­heim­ili Drop­laug­ar­staða af her­manna­veiki og náði fullum bata. Greip Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur þá einnig til aðgerða til að upp­ræta bakt­er­í­una úr lagna­kerfi húss­ins.

Helstu ein­kenni her­manna­veiki eru hiti, hrollur, hósti, bein­verkir, höf­uð­verkur, lyst­ar­leysi og stundum nið­ur­gangur, að því fram kemur á Vís­inda­vefnum. „Lungna­bólga er alltaf hluti af sjúk­dóms­mynd­inni. Gangur sjúk­dóms­ins er mis­slæmur og dauðs­föll verða í 5–30% til­fella. Með­göngu­tími her­manna­veiki er 2–10 dagar.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár