Joðtöflur, dósakavíar, rafhlöður, kerti og peningaseðlar

Kannski virð­ist ekki aug­ljóst hvað það sem nefnt er í fyr­ir­sögn­inni á sam­eig­in­legt. En eftir að varn­ar­mála­ráð­herr­ann nefndi þetta og fleira í ávarpi sem hann flutti fyrir skömmu skilja allir Danir sam­hengið.

Þegar sænsku almanna­varn­irnar (MSB) létu, árið 2018, útbúa og dreifa til allra heim­ila lands­ins bæk­lingnum „Om krisen eller krigen kommer“ brostu margir Danir út í annað, alltaf væri nú sænska fyr­ir­hyggjan söm við sig. Þetta var rúmu ári áður en kór­ónu­veiran braust út og fjórum árum fyrir inn­rás Rússa í Úkraínu. Í þessum sænska bæk­lingi, sem prent­aður var í tæpum fimm millj­ónum ein­taka, var umfjöllun um varnar- og örygg­is­mál fyr­ir­ferð­ar­mest og hvernig almenn­ingur skuli bregð­ast við ef neyð­ar­á­stand skap­ast, röskun á dag­legu lífi eins og það var orðað. Eiga geymslu­þolnar mat­vörur, dósa­mat og þurr­mat, vatns­birgðir til viku, vasa­ljós, raf­hlöður, og raf­hlöðuknúin útvarps­tæki. Viðbrögð Svía voru mis­jöfn.

Innrás Rússa í Úkraínu og NATO-aðild Svía

Síðan áður­nefndur bæk­lingur kom út í Svíþjóð árið 2018 hefur margt breyst. Innrás Rússa í Úkraínu skaut mörgum Svíum skelk í bringu, margir drógu fram bæk­ling­inn og sala á mörgu því sem þar var nefnt jókst.                              

Sem kunn­ugt er höfðu Svíar allt frá stofnun NATO árið 1949 kosið að standa utan banda­lags­ins, vildu vera hlut­lausir. Afstaða Svía breytt­ist 24. febr­úar 2022 þegar Pútín sendi her­lið sitt inn í Úkraínu. Í kjöl­far inn­rás­ar­innar sóttu Svíar og Finnar um inn­göngu í banda­lagið og eru nú full­gildar aðild­ar­þjóðir.

7. mars síð­ast­lið­inn gaf sænska rík­is­stjórnin almanna­vörn­unum skipun um að bæk­ling­ur­inn frá árinu 2018 skuli upp­færður og end­ur­út­gef­inn. Þessa dag­ana er vinna við nýja bæk­ling­inn í fullum gangi, rík­is­stjórnin fór fram á að hægt yrði að dreifa bæk­lingnum í haust, en óvíst er að það náist.

Danir hrukku við

Þótt margir Danir hafi látið sér fátt um finn­ast árið 2018 þegar greint var frá sænska við­bún­að­ar­bæk­lingnum brá þeim illi­lega í brún í maí í fyrra. Þá gerðu tölvu­þrjótar til­raun til að brjót­ast inn í stjórn­kerfi nokk­urra stórra orku­dreif­ing­ar­fyr­ir­tækja í Danmörku. Hefði það tek­ist, sem lá nærri, hefðu hund­ruð þús­unda Dana orðið án raf­magns og vatns. Rasmus Dahlberg, lektor við danska her­skól­ann, sagði í við­tali að þótt Danir hafi sloppið fyrir horn í þetta sinn mætti búast við fleiri til­raunum tölvu­þrjóta og nauð­syn­legt að vera vak­andi og dotta ekki á verð­inum, eins og hann komst að orði.

Aukinn þungi í umræðuna

Að und­an­förnu hefur færst auk­inn þungi í umræð­una um hern­að­ar­við­búnað og varn­ar­mál í mörgum Evr­ópu­löndum, þar á meðal í Danmörku. Folk og Sikk­er­hed, félag áhuga­fólks um örygg­is­mál og almanna­heill, gaf fyrir nokkru út bæk­ling­inn „Hvad nu hvis?“ sem er hlið­stæður sænska bæk­lingnum sem dreift var til félags­manna sem eru rúm­lega 70 þús­und.

Tals­maður félags­ins sagði að mikið hefði fjölgað í sam­tök­unum að und­an­förnu og greini­legt að Danir láti ekki lengur varn­að­ar­orð sem vind um eyru þjóta. Aukin aðsókn er sömu­leiðis að stuttum nám­skeiðum sem haldin eru undir yfir­skrift­inni „Sjálf­bjarga í þrjá sól­ar­hringa“. Opinber umræða, hlið­stæð þeirri sem fram hefur farið í Svíþjóð og Noregi, hefur verið lítil sem engin í Danmörku þangað til fyrir skemmstu.

Þriggja sólarhringa birgðir

Laug­ar­dag­inn 15. júní sl. sendu dönsku almanna­varn­irnar, Ber­ed­skabs­styrel­sen, frá sér leið­bein­ingar  til almenn­ings um hjemmeber­ed­skab eins og það var orðað. Í leið­bein­ing­unum er mælt með að á hverju heim­ili sé til eft­ir­far­andi sem eigi að duga í að minnsta kosti 3 sól­ar­hringa:

  • 9 lítrar af vatni á hvern heim­il­is­mann (3 lítrar á sól­ar­hring).
  • Matur, sem ekki þarf að elda eða hita og þarf ekki að vera í kæli eða frysti.
  • Nægilegt magn lyfja sem heim­il­is­fólk þarf á að halda.
  • Sjúkra­kassi.
  • Joðtöflur fyrir heim­il­is­fólk yngra en 40 ára.
  • Hrein­læt­is­vörur, blautserví­ettur, sal­ern­is­pappír o.s.frv.
  • Raf­hlöður og ferða­hleðslur (batt­eribank).
  • Útvarps­tæki sem ganga fyrir raf­hlöðum og eru með FM-bylgju.
  • Aukaraf­hlöður.
  • Kerti og eða vasa­ljós.
  • Reiðufé og greiðslu­kort (ekki bara í sím­anum).
  • Matur handa gælu­dýrum ef þau eru á heim­il­inu.

Kannski hefðu margir Danir ekki tekið þessi til­mæli alvar­lega nema vegna þess að Troels Lund Poulsen, varn­ar­mála­ráð­herra og for­maður Venstre flokks­ins, gerði þetta að umræðu­efni á frétta­manna­fundi á Borg­und­ar­hólmi þennan sama dag. Þá stóð þar yfir hið árlega Fol­kemøde, sem kannski mætti kalla fund fólks­ins. Á þess­ari þriggja daga sam­kundu er rætt vítt og breitt um stjórn­mál, stjórn­mála­menn sitja fyrir svörum og flytja ræður. Stundum boða ráð­herrar til sér­stakra frétta­manna­funda vegna mik­il­vægra mála.

„Nú var það ekki nauta­steik og pur­u­steik sem var aðal­málið og fyllti inn­kaupa­körf­una“

Það var á slíkum fundi sem Troels Lund Poulsen varn­ar­mála­ráð­herra ræddi um „neyð­ar­birgð­irnar“. Fundinum var sjón­varpað og sagt frá í fréttum. Ráð­herr­ann taldi upp þau atriði sem nefnd voru hér að framan og lagði áherslu á nauð­syn þess að Danir væru við öllu búnir þótt von­andi reyndi aldrei neitt á „neyð­ar­birgð­irnar“. Og nú lögðu Danir við hlustir og brugð­ust við, streyma í búð­irnar. Og nú var það ekki nauta­steik og pur­u­steik sem var aðal­málið og fyllti inn­kaupa­körf­una.

BirgðirTroels Lund Poulsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Venstre flokks­ins, vill að Danir komi sér upp neyð­ar­birgðum en vonar að ekki komi til þess að þurfi að nota þær.

Áhlaup á dósamatinn

Varla hafði varn­ar­mála­ráð­herr­ann lokið ræðu sinni þegar starfs­fólk í mat­vöru­versl­unum veitti athygli óvenju mik­illi umferð um dósa­vöru­deild­irnar. Í við­tali síð­degis á sunnu­deg­inum, dag­inn eftir ræðu ráð­herr­ans, hafði sala á dósa­mat í versl­unum Salling-fyr­ir­tæk­is­ins (Bilka, Føtex, Netto og fleiri búðum) auk­ist um meira en 300 pró­sent frá því venju­lega gerð­ist á sömu dögum. Hjá Coop fyr­ir­tæk­inu var sama sagan, og hjá raf­tækja­versl­un­inni Elgig­an­ten klár­uð­ust birgðir af FM-raf­hlöðu­út­vörpum strax á laug­ar­deg­inum. Tals­maður Salling-fyr­ir­tæk­is­ins sagði að þótt salan væri marg­falt meiri en venju­lega þyrfti ekki að ótt­ast vöru­skort, nóg væri til.

150 þúsund pakkar af joðtöflum pantaðir með hraði

Það sem hvað mesta athygli vakti í ráð­legg­ingum almanna­varna, og ráð­herr­ann end­ur­tók, var að mælt væri með að joðtöflur væru hluti neyð­ar­birgð­anna. Joðtöflu­birgð­irnar klár­uð­ust á auga­bragði í apó­tekum enda sala á þeim að jafn­aði lítil og þess vegna ekki legið með stóran lager.

Fyr­ir­tækið Nomeco, sem kaupir inn og dreifir lyfjum til apó­tek­anna, brást skjótt við og pant­aði strax 150 þús­und pakkn­ingar sem eiga, þegar þetta er skrifað, að vera komnar til Dan­merkur og í apó­tekin. Stærri send­ing  er vænt­an­leg með haustinu. Tals­maður danska land­lækn­is­emb­ætt­is­ins (Sund­heds­styrel­sen) sagði ástæðu­laust að rjúka til en kaupa þær næst þegar þyrfti að gera sér ferð í apó­tekið.

Hann vakti líka athygli á að ef til þess kæmi að grípa þyrfti til joð­taflna væru það ein­göngu töflur sem seldar eru í apó­tekum sem gögn­uð­ust (medicinsk jod­ta­blet), joðtöflur sem fást í heilsu­vöru­búðum duga ekki. Joð getur sem kunn­ugt er unnið gegn áhrifum geisla­virkni. Mörg Evr­ópu­lönd nota kjarn­orku til raf­orku­fram­leiðslu og yfir­völd í þeim löndum, sumum þeirra að minnsta kosti, mæla með að íbúar í nágrenni slíkra orku­vera eigi joðtöflur í lyfja­skápnum.   

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÞÞ
    Hjalti Þór Þórsson skrifaði
    Bæklingurinn, fyrir áhugasama. Neðst á síðunni er hægt að sækja hann á ýmsum tungumálum:
    https://www.msb.se/sv/rad-till-privatpersoner/broschyren-om-krisen-eller-kriget-kommer/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár