Við öllu búin Úrvalið af dósa­mat er mikið og geymslu­þolið sömu­leiðis. Mynd: AFP

Dósamatur til bjargar

Margir Danir brostu út í annað þegar sænsk stjórn­völd létu, fyrir nokkrum árum, dreifa bæk­lingi um við­brögð við kreppu eða stríði til allra heim­ila þar í landi. Danir brosa ekki lengur að Svíum og æ fleiri sækja nú svokölluð neyð­ar­nám­skeið.

Sænsk stjórn­völd hafa árum saman hvatt íbúa lands­ins til að vera undir það búnir að geta ekki hlaupið út í næstu verslun og keypt í mat­inn þegar mat­máls­tími nálg­ast. Svíum var ráð­lagt að eiga ætíð geymslu­þolnar mat­vörur, þurr­mat og dósa­mat ásamt vatns­birgðum sem duga myndu í að minnsta kosti viku, vasa­ljós og raf­hlöður, og enn­fremur útvarps­tæki með hand­knú­inni raf­hlöðu. Sömu­leiðis að eiga reiðufé sem hægt er að grípa til ef svo ber undir 

Krísubæklingurinn

Sænski krísu­bæk­ling­ur­inn„Mik­il­vægar upp­lýs­ingar fyrir íbúa Sví­þjóðar“

Árið 2018 létu sænsku almanna­varn­irnar (MSB)  dreifa 20 síðna bæk­lingi til allra heim­ila í land­inu: „Om krisen eller krigen kommer“ stóð á for­síð­unni og enn­fremur: „Mik­il­vægar upp­lýs­ingar fyrir íbúa Sví­þjóðar“. Þar er fjallað um hvernig lands­menn geti und­ir­búið sig vegna rösk­unar á dag­legu lífi, hvort sem væri vegna nátt­úru­ham­fara, eða ef til ófriðar kæmi. Enn­fremur stutt­lega um varnir lands­ins, loft­varna­byrgi, neyð­ar­síma­númer, hvernig bregð­ast skuli við ef við­vör­un­arflautur fara í gang og fleira og fleira. Lands­menn eru hvattir til að kynna sér vel efni bæk­lings­ins og ræða það við fjöl­skyldu og nágranna.

Viðbrögð Svía við bæk­lingnum voru mis­jöfn. Sumum þótti þetta nán­ast hræðslu­á­róður, aðrir voru ánægðir með fram­takið. 

Flykktust í búðir í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu

Þótt margir Svíar hafi ekki tekið brýn­ingar almanna­varna um að vera við öllu búnir þegar þeir fengu bæk­ling­inn inn um bréfalúg­una árið 2018 breytt­ist það skyndi­lega eftir inn­rás Rússa í Úkraínu 24. febr­úar 2022. Þá flykkt­ust Svíar í búðir og birgðu sig upp af ýmsu því sem mælt var með í bæk­lingnum. Danska dag­blaðið Politi­ken sendi blaða­mann yfir sundið, til Malmö til að kanna málið. Meðal þeirra sem blaða­mað­ur­inn ræddi við var versl­un­ar­stjóri í stórri heim­ilis- og raf­tækja­verslun. Versl­un­ar­stjór­inn sagði að mest hefði verið spurt um vatns­brúsa, ferða­hleðslur fyrir síma og tölvur, útvarps­tæki með raf­hlöðum. „Þetta klárað­ist allt hjá okkur og við höfum lent í vand­ræðum með að útvega meira,“ sagði versl­un­ar­stjór­inn.

Kona sem blaða­mað­ur­inn ræddi við sagði að móðir sín hefði eftir að hafa fengið bæk­ling­inn frá yfir­völdum árið 2018 komið sér upp tals­verðum lager af helstu nauð­synjum „og nú er ég að birgja mig upp“. 

Blaða­maður Politi­ken ræddi við versl­un­ar­stjóra í tveimur stórum mat­vöru­versl­unum og þeir sögðu að sala á alls kyns dósa­mat hefði marg­fald­ast og sama gilti um þurr­mat af ýmsu tagi. Í vik­unni eftir inn­rás­ina í Úkraínu marg­fald­að­ist fjöldi þeirra Svía sem skoð­uðu kort almanna­varna um stað­setn­ingu loft­varna­byrgja. Rétt er að nefna að þegar bæk­ling­ur­inn umræddi kom út voru Svíar ekki á þeim bux­unum að sækja um aðild að Nato. Það hefur nú breyst og útlit fyrir að gengið verði frá aðild þeirra á næst­unni.

Hvað ef?

Þótt margir Danir hafi á sínum tíma brosað að fréttum af sænska upp­lýs­inga­bæk­lingnum er það bros löngu stirnað. Æ meiri þungi hefur færst í umræð­una um nauð­syn þess að efla hern­að­ar­við­búnað Dana, rétt eins og hjá öðrum þjóðum í Evrópu. Og umræðan um að eiga neyð­ar­birgðir af helstu nauð­synjum hefur líka náð til almenn­ings í Danmörku.  

Folk & Sikk­er­hed, sem er danskt félag áhuga­fólks um örygg­is­mál og almanna­heill hefur nýlega gefið út bæk­ling, hlið­stæðan sænska bæk­lingnum „Om krisen eller krigen kommer“. Bæk­lingnum sem ber yfir­skrift­ina „Hvad nu hvis?“ hefur enn sem komið er ein­ungis verið dreift til félags­manna, sem eru um það bil 70 þús­und. Félagið hefur í hyggju að láta dreifa bæk­lingnum til allra danskra heim­ila. 

Lostæti?Fiski­bollur í dós, kjöt­bollur í dós og „grænar og app­el­sínugular“ er á meðal þess sem Danir geta birgt sig upp af.

Bygg­inga­verk­tak­inn Per Bjerre er einn þeirra Dana sem lengi hafa haft áhyggjur af því hvað muni ger­ast ef hökt kemur í sam­fé­lagsmask­ín­una. Fyrir tveimur árum sendi hann frá sér bók­ina „Hvis nu“, sem er eins­konar leið­bein­inga­vísir ætl­aður almenn­ingi. „Ýmsir hafa í gegnum árin brosað að mér, þegar ég hef rætt þessi mál en þær raddir heyri ég ekki í dag,“ sagði Per Bjerre í blaða­við­tali. Hann sýndi blaða­manni „lag­er­inn“ eins og hann orð­aði það og sagði að fjöl­skylda sín hefði í upp­hafi verið undr­andi á þessu upp­á­tæki sínu en það væri löngu liðið. „Nú segja þau að ég hafi verið fram­sýnn.“

Viðbúnaðarnámskeiðin

Um margra ára skeið hefur deild innan Ber­ed­skabs­for­bundet (sam­tök hlið­stæð Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björg) boðið upp á stutt nám­skeið sem kalla mætti „Sjálf­bjarga í þrjá sól­ar­hringa“. Nám­skeiðin eru haldin víða um land og eru ókeypis. Fyrir nokkrum árum var aðsókn á þessi nám­skeið fremur dræm en að und­an­förnu hefur hún marg­fald­ast. 

Það sem gerðist vorið 2023 á að vera víti til varnaðar

Í maí á síð­asta ári gerðu tölvu­þrjótar til­raun til að brjót­ast inn í stjórn­kerfi nokk­urra orku­dreif­ing­ar­fyr­ir­tækja í Danmörku. Minnstu mun­aði að þeim tæk­ist ætl­un­ar­verk sitt sem hefði lamað stjórn­kerfi fyr­ir­tækj­anna. Þá hefðu tug- eða hund­ruð þús­unda Dana orðið án raf­magns, fjar­varma­veitur hefðu hætt að virka og hvorki heitt né kalt vatn streymt úr krönum. 

Rasmus Dahlberg, sem er yfir­maður Rann­sókn­ar­stofn­unar örygg­is­mála og lektor við danska her­skól­ann sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að búast megi við fleiri til­raunum af þessu tagi og ekki þýði að sofa á verð­inum. Og almenn­ingur eigi að gera sínar ráð­staf­anir. „Ég er ekki að mála skratt­ann á vegg­inn en það er skyn­sam­legt að vera undir það búinn að ljósin slökkni, hit­inn fari af ofn­unum og ekk­ert vatn streymi úr krön­unum,“ sagði Rasmus Dahlberg. Og bætti við að „neyð­arla­ger í kjall­ar­anum veitir ákveðið öryggi“.

Hér í lokin má nefna að árið 2017 voru tvisvar gerðar netárásir á banda­ríska fyr­ir­tækið UKG, sem meðal ann­ars sér um tölvu­kerfi danska skipa­fé­lags­ins Mærsk. Árás­irnar voru mjög umfangs­miklar og tjón skipa­fé­lags­ins nam um tveimur millj­örðum danskra króna.

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GV
    Grétar Vésteinsson skrifaði
    Frábært framtak hjá Sænsku MSB stofnunni Ég sá þennann bækling hjá dóttur minni í Stokkholmi. Rússnesk vinkona hennar fyllti baðkarið af vatni þegar allmannavarna flauturnar fóru i gang vegna bilunar. eins og henni var sagt að gera þegar hún bjó í Moskvu. Íslensk stjórnvöld ættu að láta gera svipaðan bækling út eins og svíarnir.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár