Slökkviliðið kærir forstöðumann Betra lífs til lögreglu

Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kært Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­mann áfanga­heim­il­is­ins Betra líf til lög­reglu fyrir að stofna lífi og heilsu fólks í hættu í gróða­skyni eftir brun­ann í Vatna­görðum 18 í febr­úar 2023. Slökkvi­liðið hefur gert margar til­raunir til að loka hús­næðum Betra lífs án árang­urs. Slökkvi­liðið vildi skoða Betra líf á Kópa­vogs­braut 69 en þar sem um íbúð­ar­hús­næði var að ræða þurfti leyfi eig­anda eða for­ráða­manns, sem fékkst ekki.

Slökkviliðið kærir forstöðumann Betra lífs til lögreglu
Brýnt að finna lausn á áfanga­heim­ilum Jón Viðar Matth­í­as­son slökkvi­liðs­stjóri slökkvi­liðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að mjög brýnt sé að finna lausn á lög­leys­unni sem ríki varð­andi rekstur og starf­semi áfanga­heim­ila. Mynd: Golli

M

iðviku­dag­inn 22. maí síð­ast­lið­inn kærði Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­mann Betra lífs, til lög­reglu fyrir að hafa stefnt lífi og heilsu íbúa sinna í hættu í gróða­skyni þegar bruni kom upp á áfanga­heim­ili Betra lífs í Vatna­görðum 18 í febr­úar 2023, eins og kemur fram í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar.

Fimm íbúar áfanga­heim­il­is­ins voru send á spít­ala til aðhlynn­ingar eftir brun­ann en mikið mildi var að ekki fór verr því ástand bruna­varna í hús­næð­inu, sem er iðn­að­ar­hús­næði, var svo slæmt að slökkvi­liðið var í ferli að loka hús­inu þegar brun­inn kom upp. Slökkvi­liðið hefur haft afskipti af öllum þremur hús­næðum Betra lífs þar sem vímu­efna­neysla var leyfð og reynt að loka tveimur þeirra. 

Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri slökkvi­liðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir áfanga­heim­ili „eitt mest krefj­andi verk­efni“ á hans borði vegna lög­leysunnar sem ríkir vegna þeirra og …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brostnar vonir á Betra lífi

Lögfræðingar borgarinnar skoða styrki til Betra lífs
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Lög­fræð­ingar borg­ar­innar skoða styrki til Betra lífs

Lög­fræð­ingar vel­ferð­ar­sviðs eru að skoða styrki sem Reykja­vík­ur­borg veitti áfanga­heim­il­inu Betra líf á árunum 2020-2023. Þetta kemur til eftir að Heim­ildin fjall­aði um að rangar upp­lýs­ingar hefðu verið í styrk­um­sóknum. Í fyr­ir­spurn vegna máls­ins er meðal ann­ars spurt hvort litið sé á þetta sem til­raun til fjársvika en engin svör fást að svo stöddu.
„Auðvitað fullkomlega galið“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Auðvitað full­kom­lega galið“

Þing­maður Vinstri grænna gagn­rýnir að hægt sé að reka áfanga­heim­ili án þess að þurfa til þess leyfi og að ekk­ert eft­ir­lit sé með rekstr­inum. Hún hefur tví­vegis lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem miðar að því að lög um slíkt séu sett. „Það verður auð­vitað að vera ljóst að allir spili eftir sömu reglu og það sé hvergi rekið nokk­urt úrræði þar sem að lífi og heilsu fólks er ógnað af bara van­rækslu og eft­ir­lits­leysi,“ segir Jódís Skúla­dóttir.
Brugðust ekki við ábendingum um „ógeðslegar“ aðstæður
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábend­ingum um „ógeðs­legar“ aðstæður

Árni Dav­íðs­son, deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigð­is­eft­ir­liti Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness, segir kallað verði eftir breyt­ingu á lögum til að bæta áfanga­heim­ilum á lista yfir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. Auk þess mun eft­ir­litið kalla eftir skýr­ari leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er varðar aðkomu eft­ir­lits­ins að íbúð­ar­hús­næði.
Bæjarfulltrúi í Kópavogi telur áfangaheimili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Bæj­ar­full­trúi í Kópavogi telur áfanga­heim­ili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir kallar eftir heild­stæðri stefnu­mótun þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra í Kópavogi. Hún segir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hafa neitað að fjár­magna mála­flokk­inn í fjár­hags­á­ætlun. Ekkert eft­ir­lit er með rekstri svo­nefndra áfanga­heim­ilia og bendir Sig­ur­björg Erla á að þau falli á milli kerfa þar sem áfanga­heim­ilin teljst hvorki til heil­brigðisúr­ræða né gisti­þjón­ustu, þrátt fyrir að eiga að vera ein­hvers­konar blanda af hvoru tveggja.
„Hann sagði við mig að ef mér mislíkaði þetta gæti ég bara flutt út“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Hann sagði við mig að ef mér mis­lík­aði þetta gæti ég bara flutt út“

Sylwia Burzykowska leigði 12 fer­metra her­bergi á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut á 140 þús­und krónur á mán­uði sem hún þurfti að greiða í reiðufé. Hún skrif­aði undir ótíma­bund­inn leigu­samn­ing en hafði aðeins búið þar í þrjá mán­uði þegar húsið var rifið í byrjun mán­að­ar­ins. Sylwia býr nú í tjaldi.
„Þetta er brot sem ég hef á minni ferilskrá, ég get ekkert gert í því“
RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

„Þetta er brot sem ég hef á minni fer­il­skrá, ég get ekk­ert gert í því“

Baldur Sig­urð­ar­son hefur búið á þremur áfanga­heim­ilum Betra lífs. Hann segir það hafa verið „ósann­gjarnt“ þegar hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot. Baldur játar fús­lega að selja ávana­bind­andi lyf, seg­ist gera það til að geta séð fyrir börn­unum sínum. Hann þver­tekur hins vegar fyrir að hafa mis­notað sér neyð kvenna sem eru langt leiddir fíklar, og slíkar ásak­anir séu „kjaftæði“.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár