„Þetta er brot sem ég hef á minni ferilskrá, ég get ekkert gert í því“

Baldur Sig­urð­ar­son hefur búið á þremur áfanga­heim­ilum Betra lífs. Hann segir það hafa verið „ósann­gjarnt“ þegar hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot. Baldur játar fús­lega að selja ávana­bind­andi lyf, seg­ist gera það til að geta séð fyrir börn­unum sínum. Hann þver­tekur hins vegar fyrir að hafa mis­notað sér neyð kvenna sem eru langt leiddir fíklar, og slíkar ásak­anir séu „kjaftæði“.

„Þetta er brot sem ég hef á minni ferilskrá, ég get ekkert gert í því“
Baldur Sig­urð­ar­son leigí her­bergi á Hótel Íslandi í nokkra daga, ásamt félaga sínum, eftir að áfanga­heim­ilið að Kópa­vogs­braut var rifið í byrjun mán­að­ar­ins. Eftir það sváfu þeir í bíl. Mynd: Golli

Baldur Sig­urð­ar­son hefur búið á áfanga­heim­ilum Betra lífs í Fannborg, Ármúla og á Kópa­vogs­braut. Á meðan hefur hann verið að selja ýmis lyf. „Ég get alveg við­ur­kennt það. Þessar bætur sem ég er að fá duga mér ekki,“ segir hann og tekur fram að hann fái rúm­lega 300 þús­und krónur í bætur mán­að­ar­lega.

Baldur seg­ist hafa lent í slysi fyrir fjölda ára sem hafi leitt til þess að hann skadd­að­ist alvar­lega á sjón. Hann sé lög­blindur og öryrki. „Ég þarf að selja lyfin mín til að fram­fleyta börn­unum mínum. Ég næ í eins mikið af lyfjum og ég get og ég sel þau. Ég hef enga aðra leið því ég er lög­blindur. Ég get ekki neins staðar fengið vinnu,“ segir Baldur og grætur.

Spurður hvaða lyf hann sé að selja segir hann þetta aðal­lega vera mor­fín­lyf, svokölluð ben­sólyf sem eru róandi, og svo örvandi lyf. „Ég get ekki gert neitt annað til að hjálpa börn­unum mínum,“ segir hann. 

Fyrsta áfanga­heim­ili Betra lífs sem Baldur bjó á var í Fannborg 4, gömlum skrif­stofum vel­ferð­ar­sviðs Kópavogs sem Arnar Gunnar Hjálmtýssin, rekstr­ar­að­ili Betra lífs, breytti í áfanga­heim­ili. Síðar hafði Baldur fengið að vera nokkra daga í Betra lífi í Ármúla, rétt áður en hann fékk inni á Kópa­vogs­braut.

„Þegar konur skulda mér pen­ing og ég fer að rukka þær þá fara þær að tala um mis­notkun og svona vit­leysu. Sem er bara ekki satt. Veistu, það hefur verið ráð­ist á mig. Ég hef verið lam­inn út af þessu“

Að sögn Baldurs hefur hann ekki alltaf rukkað strax þegar hann er að selja heldur lánað, sér í lagi konum, og það hafi leitt til vand­ræða. „Þegar konur skulda mér pen­ing og ég fer að rukka þær þá fara þær að tala um mis­notkun og svona vit­leysu. Sem er bara ekki satt. Veistu, það hefur verið ráð­ist á mig. Ég hef verið lam­inn út af þessu,“ segir Baldur, og vegna þess sem sagt er um hann eigi hann oft undir högg að sækja ef hann reynir að fara á Kaffi­stofu Sam­hjálpar eða í neyð­ar­skýli Reykja­vík­ur­borgar.

Spurður um allan þann fjölda kvenna sem eru langt leiddir fíklar og bera hann þessum sökum segir Baldur það skýr­ast af því að hann hafi bara lánað of mörgum of mikið af lyfjum: „Ef ég lána konu, og lána henni aftur og aftur, og skuldin er komin upp í ein­hver hund­ruð þús­und, þá segir hún „Ég ætla ekki að borga honum Baldri því hann er að heimta að ég totti sig.“ Svona kjaftæði. Þetta er bara fokkíngs lygi. Við erum að tala um tólf til fjórtán konur að minnsta kosti, eða stelpur, sem segja að ég hafi verið að mis­nota þær kyn­ferð­is­lega vegna þess að þær skulda mér og vilja ekki borga mér, og ég er að reyna að rukka þær,“ segir Baldur.  „Ég er bara búinn að lenda í virki­lega miklum vand­ræðum út af þessu,“ segir hann. 

Baldur sýndi blaða­mönnum hús­næði áfanga­heim­il­is­ins á Kópa­vogs­braut skömmu áður en það var rifið. Pillur og kassar utan af þeim voru víðs vegar í hús­inu og í her­berg­inu hans Baldurs, sem hann sjálfur sýndi blaða­mönnum, var kassi utan af Contalgini, mor­fíni.

Á nátt­borði inn í her­bergi Baldurs mátti finna mor­fín­lyfið Contalgin, sleipi­efni og stinn­ing­ar­lyf.

Gat ekki spornað við vegna ölvunarsvefns

Ef gælu­nafni Baldurs, Ofur-Baldur, er slegið upp í leit­ar­vél Google, er það fyrsta sem kemur upp frétt á DV um að hann hafi verið dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi fyrir fíkni­efna­laga­brot. Í grein­inni, sem birt­ist árið 2018, er einnig tekið fram að Baldur hafi alls átta sinnum hlotið dóma, þar á meðal fyrir kyn­ferð­is­brot.

Árið 1997 var Baldur dæmdur í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í átta mán­aða fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot „með því að hafa aðfara­nótt sunnu­dags­ins 15. des­em­ber 1996 í svefn­her­bergi kon­unnar X í íbúð að …, Reykja­vík, haft hold­legt sam­ræði við kon­una og not­fært sér það að hún svar ölv­un­ar­svefni og gat af þeim sökum ekki spornað við sam­ræð­inu,“ eins og segir í dómnum. 

Í skýrslu læknis á bráða­mót­töku var ástandi kon­unnar á meðan skoðun fór fram lýst þannig að hún hafi verið „í hnipri“ hjá móður sinni og fengið hvað eftir annað grát­köst. „Svo virð­ist sem hún hafi aðal­lega orðið hrædd, þegar hún vakn­aði, og hún end­ur­taki sífellt: „Þetta gerð­ist heima hjá mér.“ Þá er að auki krossað við, að hún sé í losti, óró­leg, ótta­slegin, end­ur­lifi árás og sýni kreppu­við­brögð, hroll og vöðva­spennu,“ segir í dómnum sem Heim­ildin hefur undir höndum. Sál­fræð­ingur sem kom fyrir dóm­inn sagði að „fyrstu tveir, þrír mán­uð­urnir hefðu verið x mjög erf­iðir, og taldi, að hún ætti eftir nokkra mán­uði til að ná sér“.  

Spurður um kyn­ferð­is­brota­dóm­inn frá 1997 segir Baldur: „Ég var dæmdur. Þetta var svo ósann­gjarnt, eins og hugs­ast getur. Ég er ekki kyn­ferð­is­glæpa­maður, það er svo langt því frá. En þetta er brot sem ég hef á minni fer­il­skrá. Ég get ekk­ert gert í því. Ég myndi aldrei mis­beita konu. Það er þannig,“ segir Baldur.

Þetta kemur fram í ítar­legri umfjöllun Heim­ild­ar­innar um áfanga­heim­ili Betra lífs sem Arnar hefur rekið á nokkrum stöðum síðan 2019.

Hér má lesa umfjöll­un­ina í heild sinni:

Athugasemdir vegna eiturlyfja og vændis

Arnar opn­aði áfanga­heim­ilið í Fannborg árið 2019. Haustið 2020 var hann kall­aður á fund Heil­brigð­is­eft­ir­lits Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness. Á fund­inum var Arnari tjáð að hús­næðið væri ekki skráð í sam­ræmi við þá starf­semi sem þar fór fram og að kvart­anir hefðu borist frá íbúum. 

Arnar bauð eft­ir­lit­inu að koma í heim­sókn dag­inn eftir, sem og þeir gerðu, en hefð­bundið er að heil­brigð­is­eft­ir­litið fari í óboðnar heim­sóknir. Í mála­skránni skrif­aði full­trú­inn eftir heim­sókn­ina: „Húsnæðið er ekki full­komið en ekki voru sjá­an­leg ummerki eftir raka eða myglu, og í raun eina sem hægt var að setja eitt­hvað út á er umgengni íbúa á sal­ernum sem er afar ábóta­vant.“

Í mála­skránni fylgdi einnig minn­is­blað og það merkt: „Eiríkur, félags­mála­ráðu­neyti sam­tal.“ Þar kemur fram að maður að nafni Eiríkur hafi hringt og spurt út í eft­ir­lit með áfanga­heim­il­inu og að tveir íbúar hefðu rætt við hann varð­andi „veru­legan óþrifnað, brotnar hurðir, ólög­lega starf­semi (eit­ur­lyf, vændi)“. Full­trú­inn frá eft­ir­lit­inu sem sá um málið til­kynnti honum að áfanga­heim­ili væru ekki starfs­leyf­is­skyld og íbúar sæju sjálfir um að elda og þrífa. Full­trú­inn benti einnig á að fyrst að það væri verið að fara að rífa húsið væri „spurn­ing hvort eitt­hvað eigi að vera gert þarna til að laga til“.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brostnar vonir á Betra lífi

FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Lög­fræð­ingar borg­ar­innar skoða styrki til Betra lífs

Lög­fræð­ingar vel­ferð­ar­sviðs eru að skoða styrki sem Reykja­vík­ur­borg veitti áfanga­heim­il­inu Betra líf á árunum 2020-2023. Þetta kemur til eftir að Heim­ildin fjall­aði um að rangar upp­lýs­ingar hefðu verið í styrk­um­sóknum. Í fyr­ir­spurn vegna máls­ins er meðal ann­ars spurt hvort litið sé á þetta sem til­raun til fjársvika en engin svör fást að svo stöddu.
7:06
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Auðvitað full­kom­lega galið“

Þing­maður Vinstri grænna gagn­rýnir að hægt sé að reka áfanga­heim­ili án þess að þurfa til þess leyfi og að ekk­ert eft­ir­lit sé með rekstr­inum. Hún hefur tví­vegis lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem miðar að því að lög um slíkt séu sett. „Það verður auð­vitað að vera ljóst að allir spili eftir sömu reglu og það sé hvergi rekið nokk­urt úrræði þar sem að lífi og heilsu fólks er ógnað af bara van­rækslu og eft­ir­lits­leysi,“ segir Jódís Skúla­dóttir.
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábend­ingum um „ógeðs­legar“ aðstæður

Árni Dav­íðs­son, deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigð­is­eft­ir­liti Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness, segir kallað verði eftir breyt­ingu á lögum til að bæta áfanga­heim­ilum á lista yfir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. Auk þess mun eft­ir­litið kalla eftir skýr­ari leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er varðar aðkomu eft­ir­lits­ins að íbúð­ar­hús­næði.

8 mín. lestur

FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Bæj­ar­full­trúi í Kópavogi telur áfanga­heim­ili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir kallar eftir heild­stæðri stefnu­mótun þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra í Kópavogi. Hún segir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hafa neitað að fjár­magna mála­flokk­inn í fjár­hags­á­ætlun. Ekkert eft­ir­lit er með rekstri svo­nefndra áfanga­heim­ilia og bendir Sig­ur­björg Erla á að þau falli á milli kerfa þar sem áfanga­heim­ilin teljst hvorki til heil­brigðisúr­ræða né gisti­þjón­ustu, þrátt fyrir að eiga að vera ein­hvers­konar blanda af hvoru tveggja.
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Hann sagði við mig að ef mér mis­lík­aði þetta gæti ég bara flutt út“

Sylwia Burzykowska leigði 12 fer­metra her­bergi á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut á 140 þús­und krónur á mán­uði sem hún þurfti að greiða í reiðufé. Hún skrif­aði undir ótíma­bund­inn leigu­samn­ing en hafði aðeins búið þar í þrjá mán­uði þegar húsið var rifið í byrjun mán­að­ar­ins. Sylwia býr nú í tjaldi.

Myndband10 mín. lestur

FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Slökkvi­liðið kærir for­stöðu­mann Betra lífs til lög­reglu

Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kært Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­mann áfanga­heim­il­is­ins Betra líf til lög­reglu fyrir að stofna lífi og heilsu fólks í hættu í gróða­skyni eftir brun­ann í Vatna­görðum 18 í febr­úar 2023. Slökkvi­liðið hefur gert margar til­raunir til að loka hús­næðum Betra lífs án árang­urs. Slökkvi­liðið vildi skoða Betra líf á Kópa­vogs­braut 69 en þar sem um íbúð­ar­hús­næði var að ræða þurfti leyfi eig­anda eða for­ráða­manns, sem fékkst ekki.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár