Fréttamál

Brostnar vonir á Betra lífi

Greinar

Lögfræðingar borgarinnar skoða styrki til Betra lífs
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Lög­fræð­ingar borg­ar­innar skoða styrki til Betra lífs

Lög­fræð­ingar vel­ferð­ar­sviðs eru að skoða styrki sem Reykja­vík­ur­borg veitti áfanga­heim­il­inu Betra líf á árunum 2020-2023. Þetta kemur til eftir að Heim­ildin fjall­aði um að rangar upp­lýs­ingar hefðu verið í styrk­um­sóknum. Í fyr­ir­spurn vegna máls­ins er meðal ann­ars spurt hvort litið sé á þetta sem til­raun til fjársvika en engin svör fást að svo stöddu.
„Auðvitað fullkomlega galið“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Auðvitað full­kom­lega galið“

Þing­maður Vinstri grænna gagn­rýnir að hægt sé að reka áfanga­heim­ili án þess að þurfa til þess leyfi og að ekk­ert eft­ir­lit sé með rekstr­inum. Hún hefur tví­vegis lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem miðar að því að lög um slíkt séu sett. „Það verður auð­vitað að vera ljóst að allir spili eftir sömu reglu og það sé hvergi rekið nokk­urt úrræði þar sem að lífi og heilsu fólks er ógnað af bara van­rækslu og eft­ir­lits­leysi,“ segir Jódís Skúla­dóttir.
Brugðust ekki við ábendingum um „ógeðslegar“ aðstæður
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Brugðust ekki við ábend­ingum um „ógeðs­legar“ aðstæður

Árni Dav­íðs­son, deild­ar­stjóri holl­ustu­eft­ir­lits hjá sam­eig­in­legu Heil­brigð­is­eft­ir­liti Garða­bæjar, Hafn­ar­fjarðar, Kópavogs, Mos­fells­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness, segir kallað verði eftir breyt­ingu á lögum til að bæta áfanga­heim­ilum á lista yfir eft­ir­lits-og starfs­leyf­is­skylda starf­semi. Auk þess mun eft­ir­litið kalla eftir skýr­ari leið­bein­ingum frá Umhverf­is­stofnun er varðar aðkomu eft­ir­lits­ins að íbúð­ar­hús­næði.
Bæjarfulltrúi í Kópavogi telur áfangaheimili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Bæj­ar­full­trúi í Kópavogi telur áfanga­heim­ili Betra lífs gera „meira ógagn en gagn“

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir kallar eftir heild­stæðri stefnu­mótun þegar kemur að mál­efnum heim­il­is­lausra í Kópavogi. Hún segir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hafa neitað að fjár­magna mála­flokk­inn í fjár­hags­á­ætlun. Ekkert eft­ir­lit er með rekstri svo­nefndra áfanga­heim­ilia og bendir Sig­ur­björg Erla á að þau falli á milli kerfa þar sem áfanga­heim­ilin teljst hvorki til heil­brigðisúr­ræða né gisti­þjón­ustu, þrátt fyrir að eiga að vera ein­hvers­konar blanda af hvoru tveggja.
„Hann sagði við mig að ef mér mislíkaði þetta gæti ég bara flutt út“
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

„Hann sagði við mig að ef mér mis­lík­aði þetta gæti ég bara flutt út“

Sylwia Burzykowska leigði 12 fer­metra her­bergi á áfanga­heim­ili Betra lífs á Kópa­vogs­braut á 140 þús­und krónur á mán­uði sem hún þurfti að greiða í reiðufé. Hún skrif­aði undir ótíma­bund­inn leigu­samn­ing en hafði aðeins búið þar í þrjá mán­uði þegar húsið var rifið í byrjun mán­að­ar­ins. Sylwia býr nú í tjaldi.
„Þetta er brot sem ég hef á minni ferilskrá, ég get ekkert gert í því“
RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

„Þetta er brot sem ég hef á minni fer­il­skrá, ég get ekk­ert gert í því“

Baldur Sig­urð­ar­son hefur búið á þremur áfanga­heim­ilum Betra lífs. Hann segir það hafa verið „ósann­gjarnt“ þegar hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot. Baldur játar fús­lega að selja ávana­bind­andi lyf, seg­ist gera það til að geta séð fyrir börn­unum sínum. Hann þver­tekur hins vegar fyrir að hafa mis­notað sér neyð kvenna sem eru langt leiddir fíklar, og slíkar ásak­anir séu „kjaftæði“.
Slökkviliðið kærir forstöðumann Betra lífs til lögreglu
FréttirBrostnar vonir á Betra lífi

Slökkvi­liðið kærir for­stöðu­mann Betra lífs til lög­reglu

Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kært Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­mann áfanga­heim­il­is­ins Betra líf til lög­reglu fyrir að stofna lífi og heilsu fólks í hættu í gróða­skyni eftir brun­ann í Vatna­görðum 18 í febr­úar 2023. Slökkvi­liðið hefur gert margar til­raunir til að loka hús­næðum Betra lífs án árang­urs. Slökkvi­liðið vildi skoða Betra líf á Kópa­vogs­braut 69 en þar sem um íbúð­ar­hús­næði var að ræða þurfti leyfi eig­anda eða for­ráða­manns, sem fékkst ekki.
Fékk milljónir frá Reykjavíkurborg þrátt fyrir rangfærslur í umsókn
RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

Fékk millj­ónir frá Reykja­vík­ur­borg þrátt fyrir rang­færslur í umsókn

Í umsókn til Reykja­vík­ur­borgar um styrk sagði Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, rekstr­ar­að­ili áfanga­heim­ila Betra lífs, að þau væru í sam­starfi við Bergið headspace og Pieta, sam­tök sem kann­ast ekki við að vera eða hafa verið í sam­starfi við Betra líf. Ekkert virð­ist hafa verið gert hjá borg­inni til að sann­reyna það sem stóð í umsókn­inni.
Saga af áralangri vanrækslu og vonleysi: „Þetta heitir Betra líf sko“
RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

Saga af ára­langri van­rækslu og von­leysi: „Þetta heitir Betra líf sko“

Slökkvi­liðið hefur sent kæru til lög­reglu á hendur Arnari Gunnari Hjálmtýs­syni fyrir að hafa stefnt lífi og heilsu íbúa áfanga­heim­il­is­ins Betra líf í Vatna­görðum í hættu eftir að eldur kvikn­aði þar í febr­úar í fyrra. Áfanga­heim­ilið flutti þá upp í Kópavog. Í styrk­um­sókn til Reykja­víkur fór Arnar með rang­færslur en fékk engu að síður rúmar 24 millj­ónir fyrir rekst­ur­inn. Fulltrúi félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins lýsti áhyggjum af eit­ur­lyfja­sölu og vændi á einu áfanga­heim­il­inu.

Mest lesið undanfarið ár