Flóttafólki fækkað um meira en 60 prósent milli ára

Haldi sú þróun í komu flótta­fólks sem verið hefur það sem af er ári áfram mun kostn­aður hins opin­bera vegna þjón­ustu við umsækj­endur um vernd drag­ast saman um sjö­unda millj­arð króna milli ára.

Flóttafólki fækkað um meira en 60 prósent milli ára
Ráðherra Guðrún Haf­steins­dóttir er dóms­mála­ráð­herra.

Í byrjun viku höfðu 837 ein­stak­lingar sótt um vernd á Íslandi það sem af er árinu 2024. Það eru 38 pró­sent þess fjölda sem það hafði gert í lok maí í fyrra. Haldi þessi þróun áfram út árið má gera ráð fyrir að fjöldi flótta­manna sem sæki um vernd hér­lendis verði um 2.200 í ár, eða rúm­lega helm­ingi færri en í fyrra þegar 4.494 gerðu slíkt. 

Af þeim sem þegar eru komnir til Íslands á þessu ári eru 523 frá Úkraínu, en ákveðin grein í lögum um útlend­inga var virkjuð hér­lendis vorið 2022 sem veitir Úkra­ínu­fólki nán­ast skil­yrð­is­lausa vernd hér­lendis. Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra fram­lengdi þá fjölda­flótta­vernd um eitt ár í mars síð­ast­liðnum. Sá fjöldi sem hefur leitað eftir vernd á Íslandi, að frá­töldu fólki frá Úkraínu, var 314 á fyrstu fjórum og hálfum mán­uði árs­ins. 

Miðað við þessar tölur má búast við að flótta­menn sem sækj­ast eftir vernd á Íslandi …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár