Sendur í heilaskönnun 2400 árum eftir fæðingu

Að næt­ur­lagi í lok apríl sl. var litlum fólks­bíl ekið frá Sil­ke­borg á Jótlandi til Árósa, um 40 kíló­metra leið. Tveir far­þegar voru í bílnum, annar á miðjum aldri en hinn mun eldri, kom í heim­inn löngu fyrir Krists burð. Það var þó ein­ungis höfuð þess gamla sem var með í öku­ferð­inni.

Það var ekki mikið til­stand í kringum þessa öku­ferð, engin lög­reglu­fylgd og blá blikk­andi ljós. Einungis tveir litlir fólks­bílar, annar með höfuð „gamla manns­ins“ og hinn bíll­inn sem ók í humátt á eftir. Öku­ferðin frá brott­far­ar­staðnum, Minja­safn­inu í Sil­ke­borg, til Háskól­ans í Árósum tók ein­ungis um hálfa klukku­stund. Þegar þangað var komið var höfuð „gamla manns­ins“ flutt inn á rann­sókn­ar­stofu skól­ans. Vel og vand­lega hafði verið búið um höf­uðið í sér­út­búnum málm­kassa og um leið og hann hafði verið opn­aður var höf­uðið tekið upp. Því var svo komið fyrir í plast­fötu sem var hæfi­lega víð til þess að höf­uðið væri í stell­ingu eins og það sæti á höfði manns, hvirf­ill­inn efst. Þetta var nauð­syn­legt vegna verk­efn­is­ins sem var til­gangur ferða­lags­ins.

Ætíð nefndur Tollundmaðurinn

Þetta umrædda höfuð sem flutt var að næt­ur­þeli frá Sil­ke­borg til Árósa er talið afar merki­legt enda er það um það bil 2400 ára gam­alt og er, ásamt búknum, best varð­veittu lík­ams­leifar manns sem til eru frá fornöld. Hann gengur undir nafn­inu Tollund­mað­ur­inn af þeirri ein­földu ástæðu að svæðið þar sem hann fannst heitir Tollund og er skammt vestan við Sil­ke­borg á Mið-Jótlandi.

Merkur fundurTollund-mað­ur­inn skömmu eftir að hann fannst í mýr­lend­inu árið 1950.

Svæðið er mýr­lent og þar hafði öldum saman verið tek­inn mór til kynd­ingar. 6. maí árið 1950 voru nokkrir bændur við mótekju og komu þá niður á lík­ams­leifar sem virt­ust, við fyrstu sýn, ekki mjög gamlar. Morð var það fyrsta sem bænd­unum datt í hug og höfðu strax sam­band við lög­reglu, sem kvaddi til sér­fræð­inga safns­ins í Sil­ke­borg. Sér­fræð­ing­arnir voru fljótir að átta sig á því að lík­ams­leif­arnar væru mjög gamlar, eins og síðar kom í ljós. Ástæða þess að þær höfðu varð­veist jafn vel og raun bar vitni var jarð­veg­ur­inn. 

Tollund­mað­ur­inn var graf­inn upp og ald­urs­grein­ing leiddi í ljós að hann hefði dáið á ára­bil­inu 405 -384 fyrir Krist. Þegar hann fannst var hann með leð­ur­reim (lykkju) um háls­inn og það hefur þótt benda til að hann hafi verið hengdur. Talinn hafa verið 30–40 ára gam­all, um 1,65 metri á hæð og fæturnir svara til skó­stærðar 41, stutt­hærður og virð­ist hafa verið nýrak­aður þegar hann var lagður í gröf­ina. Sér­fræð­ingar telja hann hafa verið við góða heilsu þegar hann lést, en þó með vörtur á fótum. 

Einn merkasti gripur safnsins

Sér­fræð­ingar Minja­safns­ins í Sil­ke­borg gerðu sér strax grein fyrir að þeir voru með ein­stæðan „grip“ í hönd­unum enda hefur Tollund­mað­ur­inn verið eitt helsta aðdrátt­ar­afl safns­ins þar sem hann hvílir í gler­kistu. Upp­haf­lega var mest áhersla lögð á varð­veislu höf­uðs­ins en hluti húð­ar­innar á fótum og hand­leggjum er gervi­leður (orða­lag safns­ins).

„Þótt freist­ingin hafi kannski verið mikil hefur engum dottið í hug að reyna að kíkja upp í hann“
Ole Nielsen,
safn­stjóri í Minja­safn­inu í Sil­ke­borg

Hefur áður farið í skannmyndatöku

Árið 2002 fór höfuð Tollund­manns­ins í sams konar ferða­lag og í apríl síð­ast­liðnum. Til­gangur ferð­ar­innar árið 2002, sem farin var í lög­reglu­fylgd, var sá sami og nú, að skanna höf­uðið. Á þeim 22 árum sem liðin eru frá fyrri mynda­tök­unni hefur tækn­inni á þessu sviði fleygt mjög fram. Fyrir utan hvað allar myndir eru nú skýr­ari en þá er það einkum tvennt sem sér­fræð­ing­arnir í Sil­ke­borg hafa sér­stakan áhuga fyrir, ann­ars vegar tenn­urnar og hins vegar augun.

Heilas­kanniTollund-mað­ur­inn hefur nú tví­vegis farið í heilaskanna.

Tollund­mað­ur­inn var með lok­aðan munn­inn þegar hann fannst og „þótt freist­ingin hafi kannski verið mikil hefur engum dottið í hug að reyna að kíkja upp í hann,“ sagði Ole Nielsen safn­stjóri. „Á nýju mynd­unum getum við séð tenn­urnar mjög nákvæm­lega og þær segja margt um hvernig lífi hann hefur lifað. Hægra augað, sem er lokað, hefur varð­veist mjög vel, sjón­taugin er ósködduð og sömu­leiðis auga­steinn­inn.“ 

Margt fleira telja sér­fræð­ing­arnir að mynda­takan muni varpa ljósi á.

Vísindamenn vita dánarorsökina

Ole Nielsen safn­stjóri nefndi í við­tali við danska útvarpið að hingað til hefði verið talið að Tollund­mað­ur­inn hafi verið hengdur, sú ályktun hefði verið dregin af ólinni sem hann hafði (og hefur) um háls­inn. Nú vita vís­inda­menn dán­ar­or­sök­ina en vilja ekki greina frá henni. Það verður gert í sér­stakri skýrslu sem sér­fræð­ingar Háskól­ans í Árósum og Minja­safns­ins í Sil­ke­borg skrifa.

Af Tollund­mann­inum er það að segja að hann hvílir nú í gler­kistu sinni á Minja­safn­inu í Sil­ke­borg, með höf­uðið á sínum stað.

Fékk kennitölu

Eins og margir vita þurfa allir Danir að hafa kenni­tölu, per­sonn­um­mer. Lengi vel hafði Tollund­mað­ur­inn ekki kenni­tölu en árið 1987 var tekið fingrafar af þum­al­fingri hans og þá fékk hann kenni­tölu. Emb­ætt­is­menn­irnir í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu hafa kannski verið í vand­ræðum varð­andi fæð­ing­ar­dag og ár og hafa brugðið á það ráð að nota 29. maí 1987 sem fæð­ing­ar­dag.

KennitalaTollund-mað­ur­inn hefur fengið kenni­tölu og eru skil­ríki hans und­ir­rituð með fingrafari.

Á per­sónu­skil­rík­inu er gert ráð fyrir að eig­and­inn skrifi nafn sitt eigin hendi, þar hafa emb­ætt­is­menn­irnir ákveðið að láta fingrafarið duga. Á per­sónu­skil­ríki skal til­greina skírn­ar­nafn og fjöl­skyldu­nafn, ásamt heim­il­is­fangi. Emb­ætt­is­menn­irnir hafa ákveðið að eitt nafn myndi duga Hr. Tollund eins og stendur á skír­tein­inu.

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár