Þessi grein birtist fyrir rúmlega 12 mánuðum.

Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
Svandís, Bjarkey og Guðmundur en ekki Katrín Fyrrverandi samstarfsmenn Katrínar Jakobsdóttur forsetaframbjóðanda í VG hafa lýst yfir andstöðu við ótímabundin rekstrarleyfi í laxeldi hér á landi. Hún vill ekki ekki tjá sig um efni frumvarpsins sem hún átti þátt í að smíða sem matvælaráðherra. Mynd: Golli

Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra, er sú eina af matvælaráðherrum Vinstri grænna á síðasta og yfirstandandi kjörtímabili sem ekki hefur tekið afstöðu gegn því að laxeldisfyrirtækin í landinu fái ótímabundin rekstarleyfi til að stunda sjókvíaeldi á Íslandi. Í frumvarpinu um lagareldi sem nú er til meðferðar á Alþingi er umdeild lagagrein um þetta atriði sem Bjarkey Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur nú boðað breytingar á.

„Enda hef ég sagt skilið við stjórnmál og það er alþingismanna að taka afstöðu til einstakra ákvæða frumvarpa.“
Katrín Jakobsdóttir,
forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra

Frumvarpið var til meðferðar í matvælaráðuneytinu þegar Katrín var settur matvælaráðherra í tíð síðustu ríkistjórnar vegna veikindaleyfis Svandísar Svavarsdóttur. Katrín hafði mikla aðkomu að frumvarpinu og fundaði meðal annars með hagaðilum úr laxeldi og laxveiði um málið í byrjun febrúar auk þess sem hún lagði til einstaka breytingar á frumvarpinu. 

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LRGB
    Linda Rós Guðmundsdóttir Berg skrifaði
    Það er undirskriftalisti um þetta málefni inni á island.is
    Tilraun til að láta reyna á málskotsréttinn :)

    https://island.is/undirskriftalistar/6f868670-64d6-4fef-9ce3-57f9116ff7bb
    0
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Þarna koma skýrt fram annmarkarnir á því að stökkva frá mikilvægum málum á Alþingi beint í forsetastól. Bæði eiga kjósendur rétt á því að vita hvernig Katrín myndi haga sér ef hún ætti að staðfesta þennan lagabálk óbreyttan en það gæti líka haft áhrif á meðferð málsins á Alþingi að afstaða forseta eða hugsanlegs verðandi forseta lægi fyrir.
    9
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ákaflega lítilmótlegt hjá Katrínu að hlaupa frá allri ábyrgð eins og hundur frá spýu. Notar samt pólitíska reynslu sína óspart sem rök fyrir hæfni sinni sem forseta.
    12
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Enda hef ég sagt skilið við stjórnmál.."
    Katrín hefur aldrei verið meira í stjórnmálum en í dag. Hún á allt sitt undir stuðningi Sjálfstæðismanna og leifunum af VG.
    10
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það er ekki að furða þó að Sjálfstæðisflokkurinn og annað hægrafólk beri KJ á gullstóli út úr fyrrverandi ríkisstjórn og til móts við forsetaembættið, sem hún þráir. Ástæðurnar fyrir því eru fjölmargar.

    Það er skiljanlegt því hún er jú sannur kapítalisti. Hún stendur keik, bak í bak, sem kapítalisti meðal kapítalista.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Umdeilt frumvarp matvælaráðherra um lagareldi bíður líklega næsta þings
FréttirLaxeldi

Um­deilt frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi bíð­ur lík­lega næsta þings

Gísli Rafn Ólafs­son, þing­mað­ur Pírata og vara­formað­ur at­vinnu­vega­nefnd­ar, seg­ir að enn sé ver­ið að ræða við hags­mun­að­ila út af lagar­eld­is­frum­varp­inu. Hann seg­ir lík­legra en ekki að frum­varp­ið bíði næsta þings. Frum­varp­ið er um­deilt og hafa mat­væla­ráð­herr­ar Vinstri grænna ver­ið gagn­rýnd­ir fyr­ir það.
Búið að ráða nýjan mann í starfið hjá MAST eftir innanhúsátök
FréttirLaxeldi

Bú­ið að ráða nýj­an mann í starf­ið hjá MAST eft­ir inn­an­húsátök

Mat­væla­stofn­un hef­ur ákveð­ið að Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir verði nýr sviðs­stjóri yf­ir með­al ann­ars lax­eldi hjá stofn­un­inni. Átök urðu inn­an­húss hjá stofn­un­inni eft­ir að Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn í starf­ið en hann hafði með­al ann­ars skrif­að grein­ar þar sem hann lýsti yf­ir stuðn­ingi við sjókvía­eldi sem at­vinnu­grein.
SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýn­ir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og tal­ar um hann eins og eign

Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skil­að gagn­rýnni um­sögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráð­un­um hjá SFS er að rekstr­ar­leyf­in í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bund­in leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt ann­að í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
2
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.
Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
6
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu