Katrín búin að greina ríkisstjórninni frá ákvörðun sinni

For­sæt­is­ráð­herra mun greina opin­ber­lega frá því hvort hún muni sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti Íslands síðar í dag. Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir enn for­sendur fyrir áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.

Katrín búin að greina ríkisstjórninni frá ákvörðun sinni
Stað­fest­ing Sigurður Ingi Jóhanns­son stað­festi að Katrín Jak­obs­dóttir væri búin að segja rík­is­stjórn­inni frá næsta skrefi sínu. Mynd: Golli

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, stað­festi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði greint rík­is­stjórn­inni frá ákvörðun sinni um hvort hún ætli í for­seta­fram­boð eða ekki á fund­inum í dag. Hann vildi ekki segja hver sú ákvörðun væri. Það væri Katrínar að gera það síðar í dag. „Ég held að það sé eðli­legt að hún geri það, en ekki ég.“

Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, sagði í Pressu í dag að búið væri að boða þing­flokk Vinstri grænna á fund klukkan 13 í dag og búist er við að Katrín kynni ákvörðun sína í kjöl­farið. Fastlega er reiknað með að hún muni láta slag standa og fari í for­seta­fram­boð. 

Sigurður Ingi ræddi líka stöðu rík­is­stjórn­ar­innar hverfi Katrín úr henni og hvort grund­völlur væri fyrir áfram­hald­andi sam­starfi flokk­anna þriggja sem að henni standa. 

Hann sagði enn for­sendur fyrir sam­starf­inu. „Við höfum sagt það og erum bara í sam­tali sem við þurfum að fara í núna, form­lega.“ Engar ákvarð­anir liggi þó fyrir en það liggi á því að taka þær.

Aðspurður hvort hann langi til að verða for­sæt­is­ráð­herra ef til þess kæmi svar­aði Sigurður Ingi því til að „þegar maður er í póli­tík þá ertu alltaf í póli­tík til þess að hafa áhrif og hvar maður hefur þau áhrif, það kemur í ljós.“ 

Hann vildi ekki gefa upp hvort hann styddi Katrínu sem næsta for­seta. „Ég ætla að halda því fyrir mig. Það er þjóðin sem kýs for­seta. En hún er gríð­ar­lega öfl­ugur kandídat.“ 

Útilokar ekki formannsframboð

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna og félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, sagði eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn að það hafi mjög margt verið rætt á honum. Katrín muni sjálf fá að greina frá ákvörðun sinni þannig að hann ætli að leyfa henni að „eiga öll orð um það.“ 

Guð­mundur Ingi neit­aði því að hugs­an­leg stóla­skipti ráð­herra hefðu verið rædd á rík­is­stjórn­ar­fundum en aðspurður um hver yrði nýr ráð­herra Vinstri grænna ef Katrín myndi til­kynna fram­boð í dag svar­aði hann: „Það liggur ekki fyrir.“

Hann vildi ekki úti­loka að hann myndi sækj­ast eftir því að leiða Vinstri græn ef Katrín hyrfi frá. „Ég er vara­for­maður og ákveði Katrín að stíga til hliðar að þá verð ég for­maður fram að næsta lands­fundi. Þannig það er allt eitt­hvað sem að er algjör­lega opið eins og staðan er núna.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár