Óvinsæl ríkisstjórn þarf enn og aftur að endurmeta tilvist sína
14. októ­ber 2023 Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna héldu blaða­manna­fund í Eddu í haust þar sem sú nið­ur­staða var kynnt að þeir ætl­uðu að halda áfram. Til­gang­ur­inn var að „ná sátt og jafn­vægi í íslensku sam­fé­lagi“ með því að leggja fyrst og síð­ast áherslu „á efna­hags­málin og það brýna verk­efni að ná niður verð­bólgu og vöxtum.“ Mynd: Golli

Óvinsæl ríkisstjórn þarf enn og aftur að endurmeta tilvist sína

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa ekki mælst með jafn­lítið fylgi og nú síðan þeir hófu sam­starf árið 2017. Ágrein­ingur þeirra á milli verður sífellt greini­legri og um kom­andi helgi þarf að berja í brest­ina, fimm og hálfum mán­uði eftir að það var síð­ast barið í brest­ina.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur fékk end­ur­nýjað umboð í kosn­ing­unum 2021, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð enn yfir og verk­efni hennar voru fyrst og síð­ast heil­brigð­is­legt og efna­hags­legt við­bragð við honum. Samt töp­uðu tveir af þremur þeirra fylgi í þeim kosn­ingum. Ástæða þess að stjórnin styrkti stöðu sína var fyrst og síð­ast mikil fylg­is­aukn­ing Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Öllum sótt­varn­ar­að­gerðum vegna heims­far­ald­urs­ins var svo aflétt frá og með föstu­deg­inum 25. febr­úar 2022. Venjuleg stjórn­mál tóku aftur við af við­bragðs­stjórn­málum og við það hóf aftur að reyna á getu rík­is­stjórnar þriggja flokka með afar ólíka hug­mynda­fræði til að takast á við þá stöðu. Við blöstu erfið við­fangs­efni. Rík­is­sjóður var rek­inn í miklum halla og ljóst að það myndi þurfa að greiða efna­hags­legt gjald fyrir að auka veru­lega aðgengi að ódýru fjár­magni með sögu­lega lágum vöxtum og alls kyns íviln­unum svo hægt yrði að láta einka­neyslu bera hag­kerfið í gegnum far­ald­urs­tím­ann. Auk þess hafði rík­is­stjórnin ekki getað komið …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í núverandi stjórn samfélagsins.
    Er því ekki sjálfgefið að Bjarni verði forsætisráðherra?
    Hann var óvenjulega duglegur í COVID að tæma alla sjóði samfélagsins, bæði þekkta og leynda, til vina og vandamanna, að sagt er!?!?
    Sjálfsæðisflokkurinn virðist vilja einkavinavæða allt í samfélaginu. Er nokkur betri til þess en Bjarni?!?
    Er þetta ekki eina vonin er Jakopsdóttir hefur yfirgeðið skipið?
    0
  • HKG
    Hans Kristján Guðmundsson skrifaði
    Katrín er greinilega búin að gefast upp og flýr sökkvandi ríkisstjórn og fylgishrapandi flokk. Er ekki heiðarlegra að rjúfa bara ríkisstjórnarsamstarfið og boða til alþingiskosninga. VG mundi líklega styrkja stöðu sína á því.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið undanfarið ár