Kristrún hefur miklar áhyggjur af stöðu Samkeppniseftirlitsins

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir van­fjár­mögnun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gríð­ar­legt áhyggju­efni. Hún segir að stjórn­völd beri mikla ábyrgð á þeirri nei­kvæðu umræðu sem hefur verið áber­andi um starf­semi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Sömu­leiðis hafi stjórn­völd fjársvelt eft­ir­litið sem kemur í veg fyrir að stofn­unin geti sinn eft­ir­lits­hlut­verki sínu.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir það liggja fyrir að umsvifamiklir aðilar hafi haft áhrif á umræðuna um Samkeppniseftirlitið

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur miklar áhyggjur af stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins (SKE) og þeirri nei­kvæðu umræðu sem hefur beinst að stofn­un­inni. 

Í nýjasta þætti Pressu ræddi Kristrún afstöðu og stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­vart ýmsum málum. Í við­tal­inu var meðal ann­ars rætt um ummæli stjórn­enda opin­berra eft­ir­lits­stofn­anna sem hafa lýst því hvernig sér­hags­muna­hópar og stór­fyr­ir­tæki hafa á und­an­förnum árum beitt sér fyrir því að hafa áhrif á starf­semi umræddra stofn­anna.

Í síð­asta þætti Pressu sagði Páll Gunn­ars­son, for­stjóri SKE, að á und­an­förnum árum hafi ýmsir hags­muna­hópar, í gegnum eign­ar­hald á fjöl­miðlum og ítökum í stjórn­málum, unnið að því skerða getu SKE til þess að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu.  

Í við­tal­inu sagð­ist Kristrún hafa miklar áhyggjur af umræð­unni um Sam­keppn­is­eft­ir­litið og telur hún stjórn­völd bera mikla ábyrgð á þeirri stöðu meðal ann­ars vegna ára­langrar van­fjár­mögn­unar á stofn­un­inni. 

„Það hefur orðið sam­dráttur í fjár­fram­lögum til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á und­an­förnum árum þrátt fyrir að umsvifin í hag­kerf­inu hafi auk­ist,“ segir Kristrún, sem gagn­rýnir sömu­leiðis þögn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í þess­ari umræðu. 

Þetta megi glöggt sjá á þeirri tak­mörk­uðu umræðu sem hafi átt sér stað á þingi og meðal ráð­herra um rann­sókn SKE á sam­ráði skipa­fé­lag­anna Eimskip og Samskip.

„Það hefur ekk­ert heyrst frá stjórn­völdum eftir að þessi nið­ur­staða kom varð­andi Eimskip/Samskip, varð­andi til dæmis kostn­að­inn sem þetta hefur haft í för með sér.“

En sam­kvæmt nýlegri grein­ingu er ólög­legt sam­ráð Eimskips og Samskips talið hafa kostað íslenskt sam­fé­lag 62 millj­aða króna.

Hagsmunahópar vega að eftirlitsstofnunum 

Í við­tal­inu tekur Kristrún undir með for­stjóra SKE og segir ljóst að ákveðnir aðilar í sam­fé­lag­inu hafi haft mikil áhrif á starf­semi eft­ir­lits­ins.

Í máli sínu nefnir Kristrún rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á Eimskip, en á þeim tíma sem stofn­unin rann­sak­aði félagið, hafði Eimskip kært eft­ir­lits­að­gerðir SKE fjórtán sinnum. 

„Þarna sjáum við bara svart á hvítu hvað öfl­ugt Sam­keppn­is­eft­ir­lit skiptir ofboðs­lega miklu máli.“

Kristrún seg­ist vilja inn­leiða lög­gjöf sem geri smærri fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum kleift að sækja sér skaða­bætur í hóp­mál­sóknum þegar slík sam­bæri­leg mál koma upp. 

Viðtalið má sjá í heild sinni hér:

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár