Gagnrýni á Samkeppniseftirlitið hafi breyst með eignarhaldi fjölmiðla

Forstjóri Samkeppnis­eftirlitsins segir að breytt eignar­hald fjölmiðla hafi haft áhrif á gagnrýni í garð eftirlitsins. Hann segir að stærstu og öflugustu fyrir­tækin séu gagnrýnust á SKE. Það séu þau sem hafi sterkustu röddina, eigi stundum fjölmiðla og hafi bestan aðgang að stjórn­málamönnum.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis­eftirlitsins (SKE), segir að gagnrýni í garð SKE hafi óneitanlega breyst með breytingum á fjöl­miðlum og eignar­haldi þeirra. „Það er ekki hægt að varpa neinni fjöður yfir það,“ segir hann. Páll Gunnar var viðmælandi Helga Seljan í nýjasta þætti Pressu á föstudag. 

„Maður verður að ætla að fyrirtæki sem eignast fjölmiðla – hvort sem það er á Íslandi eða annars staðar hafi einhverja ástæðu til þess,“ segir Páll Gunnar. Hann nefnir að almennt sé rekstur fjölmiðla ekki talinn vera mjög arðbær starfsemi. „Þá geta menn held ég gefið sér það að það séu einhverjir aðrir hagsmunir uppi, eins og til dæmis að halda hagsmunum viðkomandi fyrir­tækja á lofti. En það er auðvitað ekkert hægt að alhæfa í því.“

Sjónarmið stór­fyrirtækja séu einnig áberandi þegar það kemur að stjórn­málunum. „Rödd þeirra stóru sterku hefur mjög mikið vægi í starfi Alþingis. Einfald­lega vegna þess að hinar …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞÓ
    Þórarinn Ólafsson skrifaði
    Er áskrifandi að Heimildinni og áður Kjarnanum en fæ ítrekað ekki aðgang að greinum ritsins … hef reyndar kvartað áður vegna þessa. Ansi hvimleitt og er ehv. skýring á þessu ?
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    ,,Kapítalismi án samkeppni er arðrán - fjárplógsstarfsemi". Kapítalismi þrífst ekki nema í offramleiðslu og ofneyslu. Það er stæðsta ástæða stríðsrekstrar í heiminum með þjóðrembu og trúarbragða ívafi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár