Formaður Afstöðu heimsækir Smiðju:„Ég myndi alveg afplána hér stoltur, í tíu ár“

Í kjöl­far þess að þing­maður líkti skrif­stofu sinni í glæ­nýju hús­næði Alþingis við Litla-Hraun ákvað Heim­ildin að skoða nýbygg­ing­una Smiðju ásamt Guðmundi Inga Þór­odds­syni, for­manni félags fanga. Hann var stór­hrif­inn af bygg­ing­unni og sagði hana ekk­ert minna á Litla-Hraun eða önnur fang­elsi hér­lendis.

Þingmenn og starfs­menn þing­flokka og Alþingis hafa staðið í flutn­ingum und­an­farnar vikur, yfir í nýtt skrif­stofu­hús­næði Alþingis, Smiðju, sem stendur á mörkum Von­ar­strætis og Tjarn­ar­götu. Húsið er hönn­un­ar­verk Studio Granda og kemur til með að kosta um sex millj­arða króna, full­búið.

Athygli hefur vakið að sumir þing­menn hafa lýst yfir óánægju með aðbúnað sinn í nýja hús­inu og gekk þing­maður Flokks fólks­ins, Eyjólfur Ármanns­son, svo langt að líkja skrif­stofu sinni við fang­elsi.

„Útsýnið úr minni skrif­stofu er bara hvít­ur vegg­ur, ég gæti eins verið lok­aður inni á Litla-Hrauni,“ sagði Eyj­ólf­ur, sem er vara­for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, nefnd­ar­innar sem einmitt fjallar um fang­els­is­mál, við Morg­un­blaðið í vik­unni. Skrif­stofa hans á fjórðu hæð Smiðju snýr út að húsi Oddfellow-regl­unnar við Von­ar­stræti og á hið sama við um fleiri þing­menn.

Fátt sem minnti á Litla-Hraun

Heim­ildin ákvað að heim­sækja nýja húsið og fá sér­legan álits­gjafa með í för, …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Að dáðst að ómeðhöndlaðri steypu þarf sérstakan hugsunarhátt, og Lárétt Stuðlaberg? Hvaða rusl er í hausnum á þessu fólki?
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mikið er gott til þess að vita að virðing, smekkur og skynsemi er til hjá fólki sem náðargáfa.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár