Orð valdhafa um útlendinga geti leitt til aukinnar hatursorðræðu

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­kona Pírata og Vigdís Häsler, fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna, sem hafa ítrekað orðið fyrir for­dómum vegna upp­runa síns, hafa áhyggjur af auk­inni hörku í garð útlend­inga á Íslandi, sér­stak­lega þeirri sem þær segja að bein­ist nú að flótta­fólki og hæl­is­leit­endum. Lenya Rún og Vigdís eru meðal við­mæl­enda í Pressu í hádeg­inu.

Orð valdhafa um útlendinga geti leitt til aukinnar hatursorðræðu
Útlend­inga­andúð rædd í Pressu

Lenya Rún og Vigdís, verða í Pressu í dag til að ræða útlend­inga­andúð á Íslandi. Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, og Guðrún Margrét Guð­munds­dóttir, sér­fræð­ingur hjá ASÍ í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­fólks á vinnu­mark­aði, koma einnig í þátt­inn.

Þá verður birt brot úr við­tali Heim­ild­ar­innar við Jasminu Vajzović. Þar bregst hún við umdeildri færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra á Facebook. Jasmina, sem fyrir 27 árum neydd­ist til að flýja stríðs­á­stand í Bosníu og Her­segóvínu, segir mál­flutn­ing utan­rík­is­ráð­herra stór­hættu­legan. 

Lenya Rún tekur undir þetta. „Ég held þetta gæti leitt til auk­innar hat­urs­orð­ræðu og meiri kerf­is­bund­inna for­dóma gagn­vart fólki af erlendum upp­runa.“

Andúð gagn­vart útlend­ingum hefur farið vax­andi víða á Vest­ur­löndum síð­ustu ár. Hana má meðal ann­ars sjá í fylg­is­aukn­ingu stjórn­mála­flokka í Evr­ópu­löndum sem vilja herða inn­flytj­enda­lög­gjöf.

Alger umpólun varð í umræð­unni um útlend­inga­mál á Íslandi í sumar að mati Eiríks Bergmann stjórn­mála­fræð­ings en þá hafði Bjarni Bene­dikts­son, þá fjár­mála­ráð­herra, sagt að við hefðum misst tökin á mála­flokknum, kostn­aður væri  far­inn upp úr þak­inu. Það væri óásætt­an­legt. Sjálf­stæð­is­menn myndu áfram berj­ast fyrir því að þessum hlutum yrði komið í lag.

Fyrir viku birti Bjarni svo hina umdeildu færslu á Facebook. „Það sem næst þarf að ger­ast í þessum mála­flokki er að herða reglur um hæl­is­leit­enda­mál og sam­ræma því sem ger­ist hjá nágranna­þjóðum. Auka þarf eft­ir­lit á landa­mærum,“ skrif­aði Bjarni og ítrek­aði það sem hann hefur áður sagt, að inn­viðir væru komnir að þol­mörkum. 

Á sama tíma og ýmsar Evr­ópu­þjóðir eru að þrengja lag­ara­mma sína til að færri  geti leitað verndar í lönd­unum neyð­ast sífellt fleiri til að flýja heim­ili sín. Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna telur að í lok þessa árs verði 131 milljón á ver­gangi. Yfir­maður flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur sagt að þjóð­ar­leið­togar gegni lyk­il­hlut­verki í að bregð­ast við á tímum þegar hat­urs­orð­ræða í garð flótta­fólks fær­ist í auk­ana.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Látum ekki örfáar hræður stjórna umræðunni, getum fengið fullt af vinnu fúsum höndum sem vilja deila kjörum með okkur sem erum hér fyrir og skapa gott samfélag.Getum vel verið án nýbúa með miklar sérgæsku þarfir höfum heldur ekki efni á að halda slíku fólki uppi.
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu