Trump sló met í forkosningunum: Hvað þýðir sigur hans?

Trump fór með sigur af hólmi í fyrstu for­kosn­ing­unum Iowa-fylki og sló þar kosn­inga­met. Spennan magn­ast fyrir næstu viku í New Hamps­hire þar sem Nikki Haley og Trump eru hní­f­jöfn.

Trump sló met í forkosningunum: Hvað þýðir sigur hans?
Sig­ur­reifur Trump fagnar Donald Trump og synir hans tveir, Eric og Donald Jr, fögn­uðu met­sigri í Iowa-ríki á mánu­dag­inn. Mynd: AFP

„Ég held að þetta sé virki­lega tími fyrir alla, fyrir landið, að koma saman … hvort sem það eru Repúblikanar eða Demókratar, frjáls­lyndir eða íhalds­samir.“ Svo óvenju­lega mjúk­mál voru upp­hafs­orð Donald Trumps í sig­ur­ræðu hans í Iowa-ríki á mánu­dag­inn. Hann fylgdi því þó skjótt á eftir með því að kalla Joe Biden versta for­seta Banda­ríkj­anna í ger­vallri sögu lands­ins. „Við ætlum að bora elskan, bora, strax,“ sagði Trump svo og vís­aði þar í áform sín um að stór­auka olíu­bor­anir og fram­leiðslu í Banda­ríkj­unum og fylgdi því eftir með „við ætlum að inn­sigla landa­mærin, af því að núna er inn­rás, við erum með inn­rás millj­óna og millj­óna manna sem eru að koma inn í landið okkar.“ 

Trump sigr­aði for­kosn­ing­arnar í fylk­inu með 51% atkvæða, með næstu fram­bjóð­endur langt á eftir, Ron Desantis með 21% og Nikki Haley með 19% atkvæða, en Vivek Ramaswamy rak lest­ina með 7,7% atkvæða og hefur síðan dregið fram­boð sitt til baka. Sigur með 30% mun í Iowa sló síð­asta met for­kosn­inga Repúblik­ana í Iowa frá 1988, þegar þing­mað­ur­inn Bob Dole vann sigur í fylk­inu með tæpum 13% mun. Það árið varð fram­bjóð­andi Repúblik­ana þó annar, sá sem var í þriðja sæt­inu í Iowa-ríki, George H.W. Bush, sem vann kosn­ing­arnar og varð for­seti Banda­ríkj­anna.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    The sparkness of Spiderman,
    the syrup of Superman,
    the homeboy of Hulk,
    the beauty of Batman,
    and the prump of Trump.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár