Donald Trump Fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna situr í dóms­sal vegna yfir­stand­andi rétt­ar­halda í New York-borg. Mynd: AFP

Óttast að Trump breyti Bandaríkjunum í einræði

Yfir­lýs­ingar Donalds Trump og skipu­lögð áform banda­manna hans vekja áhyggjur meðal Demókrata, Repúblik­ana, fræða­fólks og grein­enda vegna ein­ræð­istil­burða fyrr­ver­andi for­set­ans. Ekki ein­ræð­is­herra „nema á fyrsta deg­inum“, segir Trump sjálfur.

„Hann er ein­ræð­is­herra,“ sagði Chris Christie, fyrrum rík­is­stjóri New Jersey-fylkis, um Donald Trump í kapp­ræðum fram­bjóð­enda Repúblik­ana til for­seta­kosn­inga í síð­ustu viku. Trump tregð­að­ist við að hafna þessu mati Christie, en í við­tals­þætti á Fox News á þriðju­dag­inn, 5. des­em­ber, aðspurður um það hvort hann hygð­ist mis­nota vald sitt og brjóta lög til þess að ná fram per­sónu­legum hefndum ef hann yrði kjör­inn for­seti í annað sinn, sagði for­set­inn fyrr­ver­andi að hann yrði ekki ein­ræð­is­herra „nema á fyrsta deg­inum“. Þegar hann var tví­spurður um svarið bætti hann við: „Nei, nei, nei, nema á fyrsta deg­inum … Að því loknu verð ég ekki ein­ræð­is­herra.“

Yfir­gengi­leg ummæli eru eitt helsta ein­kenni á stjórn­mála­stíl Donalds Trump. Í fram­boðs­ræðu þegar hann bauð sig fram til for­seta árið 2015 tal­aði hann um inn­flytj­endur frá Mexíkó sem nauð­gara. Allar götur síðan hafa grein­endur bent á að snilli­gáfa Trumps svokölluð liggi í því hversu vel …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    The sparkness of Spiderman,
    the syrup of Superman,
    the homeboy of Hulk,
    the beauty of Batman,
    and the prump of Trump.
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Þernu-samfélagið er í uppáhaldi hjá Trump.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár