Ný gossprunga opnast örstutt frá húsum í Grindavík

Hraun rennur nú upp við byggð­ina í Grinda­vík.

Ný gossprunga opnast örstutt frá húsum í Grindavík
Dróna­mynd af nýrri sprungu Sprungan opn­að­ist fyrir aug­unum á við­bragðs­að­ilum og frétta­fólki á svæð­inu, aðeins í tuga metra fjar­lægð frá nyrstu húsum. Mynd: Golli

Nýtt gosop opn­að­ist rétt í þessu örstutt frá byggð­inni í Grinda­vík. Áætluð fjar­lægð er um 50 metrar. Hraun hefur nú runnið inn í byggð­ina í göt­una Efrahóp, nyrst í bænum.

„Þetta hraun mun renna í átt að Grinda­vík. Þetta er bara smá­spotti að nyrstu byggð,“ segir Kristín Jóns­dóttir, hjá Veð­ur­stofu Íslands, í við­tali við RÚV.

Hraun flæðir í bæinnEfsta gatan, Efrahóp, hefur nú þegar orðið fyrir hraun­rennsl­inu.

Í beinni útsend­ingu í hádeg­is­fréttum RÚV heyrð­ist að frétta­fólk var beðið að yfir­gefa svæðið. „Þetta er mjög ógn­væn­legt eins og þetta lítur út núna,“ segir Fannar Jónsson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, í sam­tali við RÚV. 

Vonast hafði verið til þess að hraun myndi ekki renna inn í Grinda­vík, en nýja gosopið er langt innan varn­ar­garðs. Þótt kraft­ur­inn sé lít­ill í því hraun­rennsli, er orðið lík­legt að hraun renni í byggð. 

Nú þegar hefur hraun runnið yfir Grinda­vík­ur­veg­inn sem liggur til norð­urs í átt að Reykja­nes­braut. Næst í far­vegi hrauns­ins er heita­vatns­lögnin sem liggur með­fram veg­inum.

Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur segir í sam­tali við RÚV að kvikan fær­ist suð­ur­með. „Hún er að þræða þessa sprungu sem hreyfði sig 10. til 11. nóv­em­ber og það er jað­ar­inn á sigalnum. Sprunga sem er með nóg pláss fyrir kvik­una til að renna eftir. Það togn­aði mjög á henni. Hún er að lengj­ast til norð­urs, sem er gott. Það er ekki hægt að úti­loka að hún haldi áfram suður úr.“

Ármann segir mögu­legt að sprungan leng­ist, þótt hún hafi virst lengj­ast í norður frekar en suður. Hún hafi ferð­ast „eftir sprung­unni. Kvikan getur núna farið eftir þeirri sprungu og niður í bæ,“ segir hann.

Til stóð að rýma Grinda­vík á mánu­dag vegna áhyggja af sprungum í bænum. Íbúar vökn­uðu við sírenur í nótt. Til við­bótar við eld­gosið hefur orðið gríð­ar­leg til­færsla á jarð­skorp­unni. Jörð hefur tognað um einn metra í Grinda­vík í dag og nótt.

Sprung­urnar við Grinda­víkÍ hádeg­inu opn­að­ist ný gossprunga við Grinda­vík.
Straum­ur­inn úr nyrðri sprung­unniFyrsta hraun­flæði var um 450 metrum frá Grinda­vík. Helsti straum­ur­inn lá til vest­urs í átt að Grinda­vík­ur­vegi.
Dróna­mynd af nýrri sprunguSprungan opn­að­ist fyrir aug­unum á við­bragðs­að­ilum og frétta­fólki á svæð­inu, aðeins í tuga metra fjar­lægð frá nyrstu húsum.
Hraun­breiðanNyrðri hraun­breiðan skríður til vest­urs.
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár