Lofuðu ferðamönnum björnum og hreindýrum í Þórsmörk

Í kynn­ing­ar­efni frá ferð­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Glacier Heli Iceland, sem sér­hæfir sig í þyrlu­ferðum um landið, sagt frá því að hægt sé að sjá hrein­dýr og birni í ferðum til Þórs­merkur.

Lofuðu ferðamönnum björnum og hreindýrum í Þórsmörk
Fjöl­skrúð­ugt dýra­líf aug­lýst í Þórsmörk Í kynn­ing­ar­efni ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Glacier Heli Iceland er ferða­mönnum sagt að þeir geti séð skepnur á borð við kan­ínur, hrein­dýr og birni í Þórsmörk. Myndin er sam­sett.

Í aug­lýs­inga­efni frá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Glacier Heli Iceland, sem selur þyrlu­ferðir um landið, er sagt frá fjöl­skrúð­ugu dýra­lífi í Þórsmörk. Þar megi finna skepnur á borð við kan­ínur, hrein­dýr og birni.

Á öðrum stað í kynn­inga­efn­inu er farið yfir útsýn­is­flug yfir nátt­úruperlurnar Þing­velli, Gullfoss og Geysi. Þar er les­endum sagt frá því að gestir geti séð Geysi gjósa í allt að 70 metra hæð.

Birnir í Þórsmörk

Lítil virkni hefur verið á gos­hvernum Geysi und­an­farin ár og gos úr honum sjald­gæf sjón. Strokkur gýs hins vegar á nokk­urra mín­útna fresti en í hæsta lagi allt að 30 metrum.

Sömu­leiðis halda hrein­dýr sig ekki til í Þórsmörk, en þau er yfir­leitt að finna austan við Jök­ulsár­lón. Þá eru engin bjarn­dýr að finna á Íslandi, að unda­skildum stöku ísbirni sem rekið hefur til lands frá Græn­landi. „Á svæð­inu er fjöldi trjáa og það er heim­ili margra dýra, svo sem bjarna, hrein­dýra, …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞG
    Þorgrímur Gestsson skrifaði
    Mér finnst að Heimildarfólk ætti að hafa meiri metnað fyrir textnum - og leggja meira í yfirlestur! Hér er alltof mikið af göllum!
    1
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Þetta kemur óorði á alla þjóðina ! Öll náttúra Íslands verður ÓTRÚVERÐUG !,,Það verður að kæra þetta eins og skot og gera sem mest mál úr því ! Engin hættuleg dýr á Íslandi er stór túristabeita !!
    2
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Þetta er minnsta mal eg sa 3 stk big foot verur i Öskjuhliðinni.
    Ein ferð með mer kostar 200010 gjafverð.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár