Lofuðu ferðamönnum björnum og hreindýrum í Þórsmörk

Í kynn­ing­ar­efni frá ferð­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Glacier Heli Iceland, sem sér­hæfir sig í þyrlu­ferðum um landið, sagt frá því að hægt sé að sjá hrein­dýr og birni í ferðum til Þórs­merkur.

Lofuðu ferðamönnum björnum og hreindýrum í Þórsmörk
Fjöl­skrúð­ugt dýra­líf aug­lýst í Þórsmörk Í kynn­ing­ar­efni ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Glacier Heli Iceland er ferða­mönnum sagt að þeir geti séð skepnur á borð við kan­ínur, hrein­dýr og birni í Þórsmörk. Myndin er sam­sett.

Í aug­lýs­inga­efni frá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Glacier Heli Iceland, sem selur þyrlu­ferðir um landið, er sagt frá fjöl­skrúð­ugu dýra­lífi í Þórsmörk. Þar megi finna skepnur á borð við kan­ínur, hrein­dýr og birni.

Á öðrum stað í kynn­inga­efn­inu er farið yfir útsýn­is­flug yfir nátt­úruperlurnar Þing­velli, Gullfoss og Geysi. Þar er les­endum sagt frá því að gestir geti séð Geysi gjósa í allt að 70 metra hæð.

Birnir í Þórsmörk

Lítil virkni hefur verið á gos­hvernum Geysi und­an­farin ár og gos úr honum sjald­gæf sjón. Strokkur gýs hins vegar á nokk­urra mín­útna fresti en í hæsta lagi allt að 30 metrum.

Sömu­leiðis halda hrein­dýr sig ekki til í Þórsmörk, en þau er yfir­leitt að finna austan við Jök­ulsár­lón. Þá eru engin bjarn­dýr að finna á Íslandi, að unda­skildum stöku ísbirni sem rekið hefur til lands frá Græn­landi. „Á svæð­inu er fjöldi …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞG
    Þorgrímur Gestsson skrifaði
    Mér finnst að Heimildarfólk ætti að hafa meiri metnað fyrir textnum - og leggja meira í yfirlestur! Hér er alltof mikið af göllum!
    1
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Þetta kemur óorði á alla þjóðina ! Öll náttúra Íslands verður ÓTRÚVERÐUG !,,Það verður að kæra þetta eins og skot og gera sem mest mál úr því ! Engin hættuleg dýr á Íslandi er stór túristabeita !!
    2
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Þetta er minnsta mal eg sa 3 stk big foot verur i Öskjuhliðinni.
    Ein ferð með mer kostar 200010 gjafverð.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár