„Volduga frú og húsbóndi“

Margrét Valdi­mars­dóttir virð­ist ekki hafa verið sér­lega umhyggju­söm móðir en hún var stór­merki­legur braut­ryðj­andi bæði hvað snerti hug­mynd­ina um konur sem vald­hafa og sam­vinnu Norð­ur­land­anna.

Margrét
Margrét Hún hafði póli­tíska sýn um sterk Norð­ur­lönd sam­einuð í eitt ríki. Þannig gætu nor­rænu löndin staðið uppi í hár­inu á hinum gríð­ar­sterku Han­sa­kaup­mönnum.

Fyrir viku hóf ég að segja hér frá Margréti drottn­ingu hins svo­nefnda Kal­mar­sam­bands. Því skal haldið áfram hér og víkur þá sög­unni fyrst að föður hennar, kon­ungi Dana.

Valdimar 4., sá svip­mikli „Aft­ur­dagur“, dó árið 1375 á sótt­ar­sæng í miðju kafi að berja niður upp­reisn­ar­gjarna bar­óna á Suður-Jótlandi. Margrét var þá eina barn hans á lífi. Ríkisráð aðals­manna í Danmörku sett­ist á rök­stóla til að kjósa nýjan kóng og höfðu Han­sa­kaup­menn líka mikil áhrif.

Varasamir Mecklenburgarar

Þrennt kom til mála.

Í fyrsta lagi að ein­hver barón úr rík­is­ráð­inu yrði dubb­aður til kon­ungs.

Í öðru lagi að til kóngs yrði tek­inn Albrekt, 13 ára sonur Ingi­borgar Valdi­mars­dóttur og her­tog­ans í Mecklenburg, hér­aði á Eystra­salts­strönd Þýska­lands. Ingiborg var látin en hún hafði verið elsta dóttir Valdi­mars.

Í þriðja lagi kom svo til álita Ólafur, fimm ára sonur Mar­grétar og Hákonar 6. kon­ungs í Noregi.

Að ýmsu leyti virt­ist liggja beint við að velja Albert þar sem hann var eldri en Ólafur og sonur eldri dóttur Valdi­mars en móti honum mælti að hann var Mecklenburgari og Dönum þótti þegar nóg um ítök Þjóð­verja á ríki sitt. Þá sat föð­ur­bróðir Albrekts og nafni, Albrekt af Mecklenburg, á kon­ungs­stóli Svía um þær mundir og því ein­boðið að áhrif Svía gætu orðið full­mikil ef þeir Mecklenburgar-frændur væru kóngar í báðum löndum.

Vafði valdaköllum um fingur sér

Það sem þó réðu mestu um að danska rík­is­ráðið hafn­aði Albrekti en valdi hinn barn­unga Ólaf til kóngs var ein­fald­lega atbeini Mar­grétar móður hans sem mætti sjálf á fund ráðs­ins og tal­aði máli sonar síns. Hún kom fær­andi hendi með ómót­stæði­leg til­boð frá Hákoni manni sínum til Han­sa­kaup­manna um versl­un­ar­í­tök þeirra í Noregi og svo munu ígildi brúnna umslaga einnig hafa skipt um eig­endur og Han­sa­kaup­menn heldur kæst yfir inni­haldi þeirra.

En einnig beitti Margrét per­sónu­töfrum sínum óspart. Þá töfra mun hún hafa reitt í þver­pokum, var í senn skemmti­leg og kunni að daðra við valda­kalla þegar þess þurfti með en bar líka með sér að hafa bein í nefi. Hún hreif svo rík­is­ráðið, þar sem sátu nátt­úr­lega margir gamlir félagar föður hennar, að þegar Ólafur litli hafði verið stað­festur kóngur Dan­merkur, þá var hún skipuð svo­nefndur rík­is­stjóri og skyldi fara með völdin þar til hann yrði mynd­ugur.

Margrét hafði póli­tíska sýn um sterk Norð­ur­lönd sam­einuð í eitt ríki. Þannig gætu nor­rænu löndin staðið uppi í hár­inu á hinum gríð­ar­sterku Han­sa­kaup­mönnum.

Kunni vel með völd að fara

Það var ekki algjör nýlunda.

Fyrir kom þær ald­irnar að mæður barn­ungra kónga í Evrópu væru skip­aðar rík­is­stjórar en heldur var það samt sjald­gæft og sýnir þessi frami Mar­grétar að hún var ekk­ert blá­vatn og tókst óhikað á við vald og ábyrgð. Og hún var fljót að sýna að hún kunni vel með völd að fara.

Ekki bar að vísu mikið til tíð­inda fyrstu árin sem Ólafur átti að heita kóngur í Danmörku. Í Noregi var Hákon kóngur hins vegar að und­ir­búa nýtt stríð gegn Svíum. Hann hafði verið kon­ungur Sví­þjóðar 1362–64 en var þá steypt af stóli af bar­ónum þar í landi sem kusu heldur mág hans, fyrr­nefndan Albrekt af Mecklenburg. Undi Hákon því sárilla og hugð­ist nú gera aðra til­raun til að end­ur­heimta kon­ungs­tign yfir Svíum en dó aðeins fer­tugur 1380 áður en nýtt stríð Norð­manna og Svía gæti haf­ist.

564 ára samband Íslands og Danmerkur hefst

Ólafur einka­sonur hans og kon­ungur Dan­merkur var þá tíu ára og fremur fyr­ir­hafn­ar­lítið sam­þykkti rík­is­ráð Noregs (sem bisk­upar íslensku bisk­ups­stól­anna sátu meðal ann­ars í) að hann yrði nú einnig krýndur Nor­eg­s­kóngur.

Og enn var Margrét útnefnd rík­is­stjóri.

Með þessum gjörn­ingi var komið á kon­ungs­sam­band milli Noregs og Dan­merkur í fyrsta sinn síðan á vík­inga­öld og í fyrsta sinn síðan Ísland komst undir vald Nor­eg­s­kónga. Hinn tíu ára Ólafur var fyrsti Dana­kóng­ur­inn sem réði yfir Íslandi, þótt hann væri vissu­lega jafn­framt Nor­eg­s­kóngur. Og með valda­töku hans hófst það sam­band Íslands og Dan­merkur sem stóð síðan allt til árs­ins 1944, eða í 564 ár.

Samband Noregs og Dan­merkur rofn­aði reyndar 1815 en þá var Ísland orðið svo fast í sessi í Dana­veldi að landið fylgdi Dönum en ekki Norð­mönnum.

Sonurinn lítilla sanda?

Um Ólaf segir fátt enda vannst honum ekki tími til að láta að sér kveða. Hann varð vissu­lega mynd­ugur 15 ára 1385 en tók þó ekki einn við stjórn­ar­taumunum heldur var hin vilja­sterka móðir áfram við hlið hans í hásæt­inu.

Svo fáorðar eru heim­ildir um Ólaf að grunur hlýtur að læð­ast að manni að ann­að­hvort hafi hann hrein­lega ekki verið mik­illa sanda á vits­muna­sviði eða þá að Margrét móðir hans hafi mark­visst og vís­vit­andi haldið aftur af honum á öllum sviðum. Þau mæðgin héldu til Skáns 1375 að ýta undir til­kall Ólafs til sænsku krún­unnar sem var þá enn í höndum Albrekts kon­ungs af Mecklenburg.

Skánn var sem kunn­ugt öldum saman bit­bein Norð­ur­land­anna, ekki síst Dan­merkur og Sví­þjóðar, en einnig Noregs á 14. öld­inni, en hefur nú öldum saman verið partur Svía­ríkis.

Eitraði fyrir syni sínum?!

Í Ystad á Skáni dó Ólafur snögg­lega, aðeins 16 ára gam­all. Dán­ar­or­sök hans er ekki kunn.

Sögu­sagnir komust á kreik um að Margrét hefði látið eitra fyrir syni sínum til að losna við snáð­ann en ekk­ert sér­stakt bendir raunar til þess.

Þó er ljóst að Margrét virð­ist ekki hafa syrgt son sinn ákaf­lega né sýnt honum neina sér­staka virð­ingu eða hlýju eftir lát hans. Á leg­stein hins unga kon­ungs var þetta eitt skrifað:

„Hér hvílir Ólafur, sonur Mar­grétar drottn­ingar, sem eign­að­ist hann með Hákoni Nor­egs­kon­ungi.“

Árið 1402 kom fram í Þýska­landi maður sem kvaðst vera Ólafur kon­ungur og vildi end­ur­heimta ríki sitt. Margrét fékk hann fram­seldan til Dan­merkur þar sem hann var brenndur á báli fyrir ósvífn­ina.

Margrét verður „kóngur“

Margrét var nú 34 ára og hafði fengið for­smekk­inn að völdum á tólf ára tíma sínum sem rík­is­stjóri. Hún virð­ist hafa gengið hratt og örugg­lega til verks til að tryggja sér áfram­hald­andi völd. Og það tókst henni með næsta ótrú­legum hætti. Vissu­lega voru engir karlar í boði í kon­ungs­ættum Noregs eða Dan­merkur en rík­is­ráðin hefðu þá sem hæg­ast getað valið ein­hverja úr sínum hópi til að setja í hin lausu hásæti.

En Margrét fékk rík­is­ráðið í Danmörku þess í stað til að útnefna sig „vold­uga frú og hús­bónda, vernd­ara danska rík­is­ins“. Svipaðan titil fékk hún í Noregi. Þar bar hún raunar drottn­ing­ar­nafn sem ekkja Hákonar kon­ungs en drottn­ing­ar­nafn­bótin var samt aldrei nefnd í tengslum við völd Mar­grétar næstu ár og ára­tugi. Í reynd hafði hún öll sömu völd og kon­ungar höfðu haft í Noregi og Danmörku.

Því er hún yfir­leitt ein­fald­lega kölluð drottn­ing nú á dögum, en þegar hún sjálf þurfti að segja á sér deili sagð­ist hún vera „Margrét af guðs náð, Valdi­mars Dana­kon­ungs dóttir.“

Vélabrögð Hansakaupmanna

Margrét hafði þegar sýnt stjórn­un­ar­hæfi­leika sína í samn­inga­við­ræðum við Han­sa­kaup­menn um versl­un­ar­leyfi þeirra í Noregi og aðstöðu sem þeir höfðu á Skáni. Nú hófst hún handa við að ná undir sig völdum í Svíþjóð líka en bæði Hákon eig­in­maður hennar og Ólafur sonur hennar höfðu gert til­kall til valda þar.

Burtséð frá áhuga hennar á per­sónu­legum völdum, sem aug­ljós­lega var fyrir hendi, þá virð­ist Margrét líka hafa haft póli­tíska sýn um sterk Norð­ur­lönd sam­einuð í eitt ríki. Þannig gætu nor­rænu löndin til að mynda staðið uppi í hár­inu á hinum gríð­ar­sterku Han­sa­kaup­mönnum.

Margrét mun hafa sagt berum orðum að hvert fyrir sig væru nor­rænu ríkin veik og varn­ar­laus fyrir óvinum í öllum áttum en saman gætu þau myndað sterkt ríki sem gæti séð við árásum og véla­brögðum Han­sa­kaup­manna og öllum þýskum óvinum og gætu fríað Eystra­salt við hættur frá óvinum.

Margrét býst til orrustu

Í Stokk­hólmi sat Albrekt kon­ungur af Mecklenburg í skjóli Han­sa­kaup­manna. Svo heppi­lega vildi til – fyrir Margréti – að hann hafði einmitt um þessar mundir komið helstu land­eig­enda­bar­ónum Sví­þjóðar upp á móti sér með til­raunum til að styrkja auð og völd kon­ungs á þeirra kostnað.

Bar­ón­arnir sneru sér til Mar­grétar og lýstu hana „frú og hús­bónda“ líkt og í Danmörku. Albrekt, sem naut enn stuðn­ings í Stokk­hólmi, hélt í liðs­bón til Þýska­lands og sneri aftur með hóp af vel brynj­uðum ridd­urum. Hann var sig­ur­viss og sagð­ist ekki í vafa um að hann myndi sigra „kóng­inn buxna­lausa“ eins og hann kall­aði Margréti.

Og í febr­úar 1389 mætt­ust herir Albrekts og Mar­grétar nálægt bænum Fal­köp­ing milli vatn­anna Vänern og Vättern.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár