Saga heims sem rís og hnígur

Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir brá sér á jóla­frum­sýn­ingu Þjóð­leik­húss­ins. Í ár er Edda afbyggð og brugðið á leik með hana – í leik­stjórn Þorleifs Arn­ars­sonar.

Saga heims sem rís og hnígur
Edda í Þjóð­leik­hús­inu Eins og svo oft áður er Þor­valdur Örn upp­fullur af spenn­andi og rammpóli­tískum hug­myndum Mynd: Grímur Bjarnason
Leikhús

Edda

Niðurstaða:

Eddan vekur upp vangaveltur en nær ekki að leysa sprengikraft sinn úr læðingi.

Þjóðleikhúsið

Höfundar: Harpa Rún Kristjánsdóttir, Jón Magnús Arnarsson og Þorleifur Örn Arnarsson

Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarsson

Leikarar: Almar Blær Sigurjónsson, Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Ernesto Camilo Aldazábal Valdés, Guðrún S. Gísladóttir, Hallgrímur Ólafsson, Kjartan Darri Kristjánsson, María Thelma Smáradóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigurbjartur Sturla Atlason, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir

Leikmynd: Vytautas Narbutas

Búningar: Karen Briem

Sjálfbærnihönnuður búninga: Andri Unnarson

Dramatúrg: Matthías Tryggvi Haraldsson

Tónlist: Egill Andrason og Salka Valsdóttir

Tónlistarstjórn: Salka Valsdóttir

Lýsing: Ásta Jónína Arnardóttir

Sviðshreyfingar: Ernesto Camilo Aldazábal Valdés

Hljóðhönnun: Aron Þór Arnarsson, Salka Valsdóttir og Egill Andrason

Gefðu umsögn

Við lifum og njótum, berj­umst og brölt­umst, molnum og deyjum. Svo hefst leik­ur­inn á ný. Læra yngri kyn­slóðir af hinum eldri eða er mann­kynið dæmt til að tor­tíma sjálfu sér í þver­móðsku sinni? Hefur eitrið tekið var­an­lega búsetu í gena­mengi mann­fólks­ins eða er hægt að finna móteitur? Guðlegar verur eru tákn­myndir fyrir mann­lega hegðun, enda oftar en ekki mann­legur til­bún­ingur. Hið góða, hið illa og allt þar á milli. Við dveljum yfir­leitt ein­hvers staðar á milli.

Afbygging og póstdramatík

Þor­leifur Örn Arn­ars­son snýr aftur á íslenskt leik­svið, upp­fullur af hug­myndum sem hann dregur úr ýmsum áttum, oftar en ekki þráð­beint úr sam­tím­anum. Eitt af helstu verk­færum hans er að afbyggja fyrir fram gefnar hug­myndir um efni­við­inn hverju sinni og end­ur­meta tengslin á milli hefða og sam­tím­ans, hetju­sagna og raun­veru­leik­ans. Einnig leit­ast hann við að vekja hug­hrif hjá áhorf­endum í anda póst­drama­tíkur þar sem snúið er upp á orð, per­sónur og fram­vindu í leit að kjarna máls­ins.

„Þor­leifur Örn Arn­ars­son snýr aftur á íslenskt leik­svið, upp­fullur af hug­myndum sem hann dregur úr ýmsum áttum, oftar en ekki þráð­beint úr sam­tím­anum.“
Sigríður Jóns­dóttir

Eddu­kvæðin eru Þorleifi Erni hug­leikin og hefur hann áður svið­sett sagna­bálk­inn, á leik­sviðum í Þýska­landi og Aust­ur­ríki, þá í slag­togi við höf­und­inn Mikael Torfason. Þýska upp­færslan færði honum Faust­verð­launin fyrir bestu leik­stjórn. Sam­starfið náði list­rænum hápunkti á Íslandi með Guð blessi Ísland í Borg­ar­leik­hús­inu árið 2017. Síðan þá hefur honum ekki tek­ist að end­ur­skapa list­ræna sprengi­kraft­inn, alla­vega heima fyrir.

Sagna­bálk­ur­inn er end­ur­skrif­aður af leik­stjóra í sam­vinnu við Jón Magnús Arn­ars­son og Hörpu Rún Krist­jáns­dóttur. Textinn er sam­suða af hefð­bundnu máli og orð­færi sam­tím­ans. Frum­texti Snorra Sturlu­sonar er til grund­vallar en höf­undar vefa nýjar setn­ingar og ein­ræður inn í fram­vind­una:

„Ég er atómið sem klífur sig aftur og aftur og aftur þangað til ekk­ert er eftir nema þögnin og tómið.“

Eins og í heimi goð­anna vantar jafn­vægi í bæði hand­rit og sýn­ing­una. Fyrir hlé drag­ast sumar senur á lang­inn og eru jafn­vel óþarfar, eins og við­talið milli Snorra Sturlu­sonar og Heimdallar. Eftir hlé, þegar Ragnarök eru yfir­vof­andi, tekur sýn­ingin allt í einu á sprett. Atriði eru enda­sleppt, stórir atburðir smætt­aðir og atriði á köflum átaka­lítil. Einnig má sjá leifar af hug­myndum sem voru ann­að­hvort yfir­gefnar eða ókláraðar, sama­ber grím­urnar tvær stað­settar á svöl­unum hvort sínum megin við sviðið. Hér þyrfti stærra sam­eig­in­legt átak og sterk­ari drama­t­úrg, en þetta er fyrsta stóra verk­efni Matth­í­asar Tryggva Har­alds­sonar síðan hann hóf störf.

Erkitýpurnar á meðal okkar

Til að vitna í Barböru Streisand og Carl Jung eru mýtur og erkitýpur sprell­lif­andi á meðal okkar, í sam­fé­lag­inu og heima hjá okkur. Frum­mynstur heims­ins gera okkur kleift að rann­saka eigið sál­ar­líf og jafn­vel læra eitt­hvað um okkur sjálf. Í upp­færsl­unni í Vín­ar­borg var heimsenda­stríð goð­anna borið saman við dauða­stríð rak­ara við Hlemm. Hið guð­lega og hið mann­lega sín hvor hliðin á sama pen­ingnum.

Líkt og guð­lega fjöl­skyldan sem um ræðir er leik­hóp­ur­inn sam­an­safn af hæfi­leika­fólki en sund­ur­slit­inn, allir að leika sín hlut­verk í stað þess að leika saman í átt að sam­eig­in­legu mark­miði. Óðinn og Frigg eru þunga­miðjan í þessum heimi, alvaldur og alsjá­andi með einu auga en hinu fórn­aði hann til að öðl­ast þekk­ingu. Arnar Jónsson og Guðrún Gísla­dóttir fara afar vel með sinn texta en eru frekar fjar­læg.

Fjar­lægðin er Almari Blævi Sig­ur­jóns­syni í hag enda er Baldur, goð ljóss­ins og feg­urð­ar­innar, ekki gerður fyrir þennan heim. Almar Blær er gæddur miklum hæfi­leikum og þræðir harm­ræna upp­gjöf í mann sem á að tákna von.

Jað­ar­per­són­una og bragð­ar­ef­inn Loka leikur Atli Rafn Sig­urð­ar­son sem japlar á text­anum. Í hans höndum er Loki bæði fóst­bróðir Frank-N-Furter og fórn­ar­lamb, ögrandi og ámát­legur. Hall­grímur Ólafsson er greind­ar­granni þrumuguð­inn Þór, hold­gerv­ingur eitr­aðrar karl­mennsku. Hann barmar sér yfir örlögum sínum og er full­kom­lega ófær um að skilja að ofbeldi er val. Þver­sagn­irnar fanga þeir báðir lista­vel, bitrir og hnyttnir.

Við hlið Þórs stendur hin lang­þjáða og hárfagra Sif leikin af Þuríði Blævi Jóhanns­dóttur. Hennar besta atriði er þegar Sif er með atriði, bráð­fyndin end­ur­speglun af konu sem margir kann­ast við. Sig­ur­bjartur Sturla Atlason á sín ágætu atriði í hlut­verki (Instagram)goðs­ins Freys en týn­ist fljót­lega. Vigdís Hrefna Páls­dóttir nær betri tökum á systur hans Freyju en er sömu­leiðis aðeins á spor­baug sýn­ing­ar­innar frekar en þátt­tak­andi.

María Thelma Smára­dóttir kemur sterk til leiks í nokkrum smærri hlut­verkum. Þá sér­stak­lega sem æsku­gyðjan Iðunn í safa­ríkri og seðj­andi söngsenu. Önnur smærri hlut­verk skilja ekki mikið eftir sig fyrir utan inn­komu Ang­ur­boðu, leikin af Ólafíu Hrönn Jóns­dóttur, skiln­að­ar­móð­irin sem situr ekki á skoð­unum sínum, yfir­gefin og bitur.

Leikmynd í lausu lofti

Lista­mað­ur­inn Vytautas Narbutas snýr aftur til Þjóð­leik­húss­ins og hannar leik­mynd­ina fyrir Eddu. Hringsviðið er hreyfi­afl enda er heimur goð­anna á helj­ar­þön um him­in­hvolfin. Fyrir miðju hangir askur Ygg­dras­ils, und­ir­staða heims­ins og upp­spretta alls lífs. En þó að hringsviðið sé lag­lega notað þá er Ygg­dras­ill nán­ast dauður að innan, líf­laust skraut frekar en mið­punktur alheims­ins.

Aftur á móti er ljósa­hönnun Ástu Jónínu Arn­ar­dóttur ljós­lif­andi, barma­full af dýpt, lit­brigðum og skuggum. Salka Vals­dóttir semur tón­list­ina ásamt Agli Andra­syni sem flytur, bæði ung að árum sem eru að feta sig á lista­braut­inni. Hljóð­heim­ur­inn er hljóm­þýður en stóru nót­una er ekki að finna.

Athygli vekur að sam­hliða Karen Briem, bún­inga­hönn­uði sýn­ing­ar­innar, er Andri Unnarson skrif­aður fyrir sjálf­bærni­hönnun bún­ing­anna sem er von­andi merki um nýja og umhverfi­vænni tíma í sviðs­listum. Þó að sjálf­bærni sé mark­miðið bera bún­ing­arnir með sér ofgnótt, úrkynjun og hnignun. En eins og með margt annað í Eddu þá skilja bún­ing­arnir lítið eftir sig, vel hann­aðir á ein­staka per­sónur en sam­heng­islitlir.

Endalok og/eða upphaf

Að afbyggja og end­ur­skil­greina epík­ina er bráð­nauð­syn­legt fyrir nútíma­sam­fé­lag. Einnig að setja spurn­ing­ar­merki við ráð­andi öfl, ríkj­andi valda­stéttir og ríkt fólk.  Guðir og goð, eða fólk sem telur sig vera slík, eiga ekk­ert með að standa á stalli enda eru þau ekk­ert betri en við hin.

Eins og svo oft áður er Þor­leifur Örn upp­fullur af spenn­andi og rammpóli­tískum hug­myndum en tekst ekki að skapa þeim nægi­lega sterkan far­veg. Þannig skol­ast sumar þeirra til, aðrar verða eftir á leið­inni og þær sterk­ustu verða kraft­minni en efni standa til. Leik­hóp­ur­inn nær þannig sjaldan að fanga sundr­uðu sam­böndin sem steypa heim­inum til glöt­unar. Heild­ar­hug­hrifin tengj­ast laus­legum böndum þó að hápuntki væri náð í kynn­gi­mögn­uðu loka­at­riði.

Eftir stendur Óðinn einn, heim­ur­inn graf­inn í ösku og dufti. Þegar síðan síð­asta veran yfir­gefur þennan heim eru bara potta­plönt­urnar eft­ir­stand­andi. Færa má rök fyrir því að Ragnarök séu yfir­stand­andi nákvæm­lega núna. Kannski nærir askan plönt­una, kannski deyr hún. En örlögin eru ekki sjálf­stætt afl heldur mann­anna verk líkt og guð­irnir, ábyrgðin er okkar.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár