Strengdir þú þér áramótaheit?

Heim­ildin spurði fólk á förnum vegi hvort því hefði tek­ist að ná sínum ára­móta­heitum fyrir árið 2023.

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fór á stúf­ana og spurði fólkið á göt­unni hvort því hefði tek­ist að ná sínum ára­móta­heitum vegna árs­ins sem er að líða. 

Við­mæl­endur áttu það sam­eig­in­legt að muna illa eftir fyrri ára­móta­heitum en sumir þeirra ætla að strengja ný fyrir kom­andi ár. 

Í rann­sókn frá Maskínu sem gerð var árið 2022 um ára­móta­heit kom fram að aðeins 15,7 pró­sent af þeim sem svör­uðu könn­un­inni strengdu sér ára­móta­heit. Seinustu ár hafa á bil­inu 19,4 pró­sent til 21,6 pró­sent strengt ára­móta­heit og því tölu­verð fækkun á þeim sem strengja sér ára­móta­heit.

Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar ætla ekki allir að strengja ára­móta­heit en þeir sem það gera ætla að verða betri útgáfa af sjálfum sér, vera dug­legri í rækt­inni og hætta að taka í vör­ina. 

Hvert verður þitt ára­móta­heit fyrir 2024? 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár