Barnamálaráðherra um fátæk börn: „Við erum að falla þarna“

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra segir í þætt­inum Pressu að þörf sé á miklu meiri póli­tískri umræðu um þá stað­reynd að börnum sem búi við fátækt á Íslandi hafi fjölgað. Rúmlega 10 þús­und börn eru fátæk hér á landi sam­kvæmt UNICEF, það er eitt barn af hverju átta. „Við þurfum að stíga inn í aðgerðir í meira mæli gagn­vart þessum hópi,“ segir Ásmundur Einar.

Barnamálaráðherra um fátæk börn: „Við erum að falla þarna“

„Ég ætla ekki að sitja hér og segja að það sé í lagi að við séum með tíu þús­und börn sem búa við þessar aðstæður vegna þess að það er ekki í lagi.“

Þetta segir Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra í þætt­inum Pressu sem er á dag­skrá Heim­ild­ar­innar í hádeg­inu í dag.

Tvær skýrslur þar sem fátækt hefur verið mæld á Íslandi hafa komið út að und­an­förnu.

Í skýrslu UNICEF, Barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, kemur fram að 12,4 pró­sent barna á Íslandi búa við fátækt en það eru um 10.500 börn. Í skýrsl­unni segir að yfir­völd margra ríkra landa hafi sofið á verð­inum á góð­ær­is­tímum. Að í stað þess að upp­ræta fátækt í efna­hags­legri vel­sæld hafi hún auk­ist í mörgum efn­uð­ustu ríkjum heims.

Staða einhleypra foreldra „sérstaklega alvarleg“


Í hinni skýrsl­unni sem birtir nið­ur­stöður rann­sóknar Vörðu – rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins og Öryrkja­banda­lags­ins kemur fram að stór hluti fatl­aðs fólks á Íslandi er sára­fá­tækur. Meira en helm­ingur metur fjár­hags­stöðu sína nokkuð eða mun verri en fyrir ári. Staða ein­hleypra for­eldra er sér­stak­lega alvar­leg. Tæplega helm­ingur ein­hleypra for­eldra getur ekki veitt börnum sínum nauð­syn­legan klæðnað og nær­ing­ar­ríkan mat. Um fjögur af hverjum tíu geta ekki gefið börnum sínum jóla- og afmæl­is­gjafir. Fjórð­ungur ein­hleypra mæðra þurftu mat­ar­að­stoð á síð­ast­liðnu ári og ríf­lega átta af hverjum tíu ein­hleypum for­eldrum búa við slæma and­lega heilsu. 

„Þessar skýrslur tökum við mjög alvar­lega en ég myndi líka vilja sjá miklu meiri póli­tíska umræðu um hvernig við ætlum að ná þessum börnum. Vegna þess að eitt barn sem býr við fátækt er einu barni of mikið,“ segir Ásmundur Einar. 

Barnamálaráðherra: „Þurfum að gera betur“

Hann segir einnig að það sé „gríð­ar­lega mik­il­vægt“ að bæta stöðu fatl­aðra for­eldra og þeirra sem séu á örorku. „Félags­mála­ráð­herra er að vinna að end­ur­skoðun örorku­kerf­is­ins með aukn­ingu þar inni í huga. Ég styð hann ein­dregið í að ná árangri í að bæta almenna stöðu þessa hóps.“

Ásmundur segir að skýrsl­urnar sýni að við séum „að falla þarna“ og er að vísa til fjölg­unar í hópi fátækra barna. Hann seg­ist taka nið­ur­stöð­unum alvar­lega. „Þegar við búum í landi sem er jafn­ríkt og það er og við erum með 10 þús­und börn sem mæl­ast með ein­hvern ver­ald­legan skort sem teng­ist hús­næð­is­málum, íþróttum æsku­lýðs- og tóm­stunda­starfi, þá þurfum við að gera betur.“

Í Pressu í dag verður einnig rætt um fátækt við þær Krist­ínu Hebu Gísla­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Vörðu – rann­sókna­stofn­un­ar vinnu­mark­aðar­ins, Elínu Ebbu Ásmunds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Hlut­verka­set­urs og Ingu Sæland, þing­konu og for­mann Flokks fólks­ins. Útsend­ing hefst klukkan 12.00 á hádegi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er enginn fátækur með vonina og ljósið í hjarta sínu segja þau frelsuðu almenn almenn ammenn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu