Vesturbyggð leggst gegn affriðun Vatnsfjarðar

Bæj­ar­stjórn Vest­ur­byggðar vill að haf­ist verði handa „nú þegar“ við tvö­földun Vest­ur­línu og að beðið verði með að kanna hvort ástæða sé til að breyta frið­lýs­ingu Vatns­fjarðar líkt og Orkubú Vest­fjarða hefur farið fram á svo þar megi reisa virkjun.

Vesturbyggð leggst gegn affriðun Vatnsfjarðar
Friðland Vatns­fjörður var frið­aður árið 1975 eða fyrir tæp­lega hálfri öld. Mynd: Elva Björg Einarsdóttir

Ekki er tíma­bært að kanna hvort breyta ætti frið­lýs­ing­ar­skil­málum Vatns­fjarðar, að mati bæj­ar­stjórnar Vest­ur­byggðar sem fjörð­ur­inn er innan. Áður en að slíku kemur ætti að setja þá tvo virkj­un­ar­kosti á Vest­fjörðum sem þegar eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar í for­gang og hefja strax vinnu við tvö­földun Vest­ur­línu, einu meg­in­flutn­ings­lín­unnar inn á Vest­firði. Tvö­föld­unin sé nauð­syn­leg til að tryggja flutn­ing raf­orku til og frá svæð­inu.

„Þannig fái nátt­úran í Vatns­firði áfram að njóta vafans, og að ekki verði gengið lengra en nauð­syn­legt er,“ segir í umsögn bæj­ar­stjórn­ar­innar um erindi Orkubús Vest­fjarða til umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra um afnám eða breyt­ingu frið­lýs­ingar Vatns­fjarðar svo fyr­ir­tækið geti reist þar vatns­afls­virkjun. Markmið fyr­ir­tæk­is­ins með nýrri virkjun á svæði sem nú er friðland er að auka orku­fram­leiðslu innan svæð­is­ins í þeim til­gangi að afhend­ingar­ör­yggi raf­magns, svara auk­inni eft­ir­spurn fyr­ir­tækja eftir orku og hafa til reiðu „grænt vara­afl“ svo ekki þurfi að brenna olíu. Þá mætti líka nýta virkj­un­ina til jöfn­unar á móti vind­orku.

En bæj­ar­stjórnin segir: „Lokið verði fyrst við þær fram­kvæmdir sem þegar hafa verið und­ir­búnar til að mæta þeim mik­il­vægu almanna­hags­munum sem fel­ast í aðgengi að orku á Vest­fjörðum áður en ákvörðun er tekin um afnám eða breyt­ingu á frið­lýs­ing­ar­skil­málum Vatns­fjarðar.“

Þær tvær virkj­un­ar­hug­myndir á Vest­fjörðum sem Vest­ur­byggð vísar til í umsögn sinni og eru þegar í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar eru Aust­ur­gils­virkjun og Hval­ár­virkjun. Fyrr­nefnda hug­myndin snýst um að virkja Aust­ur­gilsá sem fellur í Selá í Skjald­fann­ar­dal við Ísa­fjarð­ar­djúp. Uppsett afl hennar er áformað um 35 MW. Síð­ar­nefnda hug­myndin hefur verið mjög umdeild, ekki síst meðal íbúa Árnes­hrepps sem er fámenn­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Með Hval­ár­virkjun (55 MW) yrðu vötn á Ófeigs­fjarð­ar­heiði stífluð og rennsli þriggja áa virkjað.

Gjöbreytt ásýnd fossa

Orkubú Vest­fjarða fór þess á leit við umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra snemma árs að hann breytti skil­málum Friðlands­ins í Vatns­firði. Ráðherra vildi frek­ari gögn og skil­aði fyr­ir­tækið grein­ar­gerð sinni nú í haust.

Samkvæmt henni myndu 3-4 hekt­arar af birki­skógi raskast með bygg­ingu virkj­un­ar­innar, vörður á fornri þjóð­leið mögu­lega sömu­leiðis og skert rennsli í ám, um allt að 74 pró­sent, myndi gjör­breyta ásýnd fossa. Þá má búast við raski á sér­stæðum jarð­mynd­unum, m.a. skessukötlum. Að auki myndu miðl­un­ar­lón skerða óbyggð víð­erni.

Til þess­arar nið­ur­stöðu vitnar bæj­ar­stjórn Vest­ur­byggðar í umsögn sinni og að virkjun og tengdar fram­kvæmdir kæmu til með að raska nátt­úru­fars- og menn­ing­ar­þáttum sem hafi hátt vernd­ar­gildi. „Virkj­unin myndi hafa í för með sér rask á birki sem nýtur sér­stakrar verndar, áhrif á vatna­líf, rask á búsvæðum dýra, áhrif á menn­ing­arminjar á svæð­inu, þ.e. varð­aðri Þing­manna­leið og áhrif á rennsli í Vatndalsá og Austurá sem mun hafa áhrif á ásýnd fossa sem njóta sér­stakrar verndar í nátt­úru­vernd­ar­lögum“.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Friðlandið í Vatnsfirði

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár